Bæjarráð Hornafjarðar
852. fundur
26. mars 2018
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Ráðning félagsmálastjóra
Nýir starfsmenn félags- og velferðarsviðs komu á fund bæjarráðs. Bæjarráð býður Elísu og Skúla velkomin til starfa.
2.
Menningarmálanefnd - 39
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 43
Farið yfir fundargerð.
Ásgerður lagði til að þrír viðbótarstarfsdagar leikskólans verði foreldrum að kostnaðarlausu. Bæjarráð samþykkir tillöguna. Skólastarf á Leikskólanum Sjónarhóli mun hefjast mánudaginn 20. ágúst eftir sumarfrí og skipulagsdaga.
Bæjarráð tekur undir bókun fræðslunefndar um skýrslu Vöruhúss starfsársins 2017 og styður að farið verði í viðræður við Nýsköpunarmiðstöð, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið um stuðning við nýsköpun og nýsköpunarkennslu á landsbyggðinni m.a. í gegnum Fab Lab smiðjur.
Fundargerð samþykkt.
Ásgerður lagði til að þrír viðbótarstarfsdagar leikskólans verði foreldrum að kostnaðarlausu. Bæjarráð samþykkir tillöguna. Skólastarf á Leikskólanum Sjónarhóli mun hefjast mánudaginn 20. ágúst eftir sumarfrí og skipulagsdaga.
Bæjarráð tekur undir bókun fræðslunefndar um skýrslu Vöruhúss starfsársins 2017 og styður að farið verði í viðræður við Nýsköpunarmiðstöð, Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið um stuðning við nýsköpun og nýsköpunarkennslu á landsbyggðinni m.a. í gegnum Fab Lab smiðjur.
Fundargerð samþykkt.
4.
Stigatafla: íþróttahús ósk um aukafjárveitingu
Stigatafla í íþróttahúsi er biluð og hafa tilraunir til lagfæringa ekki skilað árangri. Forstöðumaður íþróttamannvirkja hefur skoðað hvaða möguleikar eru í stöðunni. Endurnýjun á stigatöflu kostar um 2,6 milljónir króna og óskað er eftir aukafjárveitingu að upphæð 2 milljónir króna til að endurnýja stigatöflu í íþróttahúsi.
Máli frestað.
5.
Stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta/Destination management plan (DMP)
Á fundi bæjarráðs nr. 851 óskaði bæjarráð eftir að atvinnu- og ferðamálafulltrúi myndi taka saman drög að svari.
Farið yfir tillögu atvinnu- og ferðamálafulltrúa að forgangsröðun verkefna í Sveitarfélaginu Hornafirði. Bæjarráð samþykkir framlagðar tillögur og felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að senda inn svar.
6.
Klæðning á Höfn 2018
Minnisblað skipulagsstjóra um lagningur bundins slitlags lagt fram.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að forgangsröðun vegaframkvæmda og skoða hvað rúmast innan frjárheimilda.
7.
Umsókn um lóð Hagaleira 16
Umsókn Karls Ágústs Guðnasonar dags 22. mars um lóð.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðarinnar og vísar málinu til bæjarstjórnar.
8.
Ályktun: um félagsheimilið Hrollaugsstaði
Erindi frá Kvenfélaginu Ósk dagsett 15. mars. Ályktun um ástand og viðhald á Hrollaugsstöðum.
Bæjarráð þakkar fyrir framkomna ályktun. Farið var yfir rekstur hússins síðustu ár. Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að vinna viðhaldsáætlun fyrir fjárhagsáætlun 2019.
9.
Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Bæjarstjóri hefur leitað til KPMG og Capacent um að framkvæma úttekt á starfsemi ráðhúsins. fara yfir, meta og kortleggja verkferla og afgreiðslu mála hjá sveitarfélaginu. Að málinu munu koma allir starfsmenn í ráðhúsinu og forstöðumenn stofnanna ásamt bæjarráði. Eftir yfirferð og samtöl við báða aðila er lagt til að semja við Capasent um verkið.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Capacent.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Kaffi Höfn
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dagsett 20.mars. Beiðni um umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis veitingastaður í flokki III. Kaffihöfn að Hafnarbraut 42.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfsins.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa nemendafélag FAS
Erindi frá Sýslumanni á Suðurlandi dagsett 22. mars. Beiðni um umsögn vega útgáfu tækifærisleyfis Nemendafélags FAS
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
12.
Samstarf um framtíð húss í landi Hafnarnes
Erindi Hlyns Pálmasonar dagsett 15. mars 2018. Hugmynd um framtíðarnýtingu á húsi í landi Hafnarness inn við Stekkjakeldu.
Bæjarráð hefur áður svarað sambærilegu erindi en í því svari kom fram að ekki er búið að ákveða með framtíð og skipulag á svæðinu. Þar til þau mál eru komin á hreint verður ekki tekin afstaða til annarrar notkunar á húsinu en þegar hefur verið tekin.
13.
Umsögn: frumvarp til laga - breytingar á ýmsum lögum mál nr. 389
Umhverfis- og samgöngunefnd óskar eftir umsögn vegna frumvarps til laga um breytingar á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórna- og byggðamála
Bæjarráð gerir athugasemd við það að sveitarfélög séu ekki talin með sem umsagnaraðilar um málefni sem varðar þau, svo sem byggðaáætlun og sveitarstjórnarlög. Í frumvarpinu kemur fram að samráð skal haft við landshlutasamtök. Að mati bæjarráðs er slíkt fyrirkomulag ótækt þar sem hlutverk landshlutasamtaka er óljóst í íslensku stjórnkerfi og þarf að skýra ef svo á að vera.
14.
Fundargerðir HAUST 2018
Fundargerð HAUST nr. 140.
Lagt fram til kynningar.