Bæjarráð Hornafjarðar
855. fundur
23. apríl 2018
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 44
Fundargerð lögð fram.
Ragnhildur fór yfir fundargerð nefndar.
Rætt um stöðu mála varðandi húsnæði fyrir starfsmenn við Hofgarði í Öræfum. Einnig farið yfir erindi frá leikskólastjórum á Austurlandi.
Fundargerð samþykkt.
Rætt um stöðu mála varðandi húsnæði fyrir starfsmenn við Hofgarði í Öræfum. Einnig farið yfir erindi frá leikskólastjórum á Austurlandi.
Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 40
Fundargerð lögð fram.
Eyrún Helga fór yfir fundargerð nefndar.
Rætt um útgáfu Skaftfellings og fyrirkomulag útgáfunnar.
Bæjarráð leggur til að forstöðumaður Hornafjarðarsafna ræði við stjórn Félags eldri Hornfirðinga um möguleika á að taka að sér að skipa ritnefnd Skaftfellings.
Fundargerð samþykkt.
Rætt um útgáfu Skaftfellings og fyrirkomulag útgáfunnar.
Bæjarráð leggur til að forstöðumaður Hornafjarðarsafna ræði við stjórn Félags eldri Hornfirðinga um möguleika á að taka að sér að skipa ritnefnd Skaftfellings.
Fundargerð samþykkt.
3.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 296
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð samþykkt.
4.
Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins
Sveitarfélagið er samstarfsaðili Landlæknisembættisins um heilsueflandi samfélag. Velferðarteymið er samkvæmt ákvörðun bæjarráðs starfshópur verkefnisins og tómstundarfulltrúi sveitarfélagsins heldur utan um verkefnið. Til skoðunar hefur verið stuðningur sveitarfélaga við starfsmenn sem vilja stunda heilsueflingu. Lögð er fram tillaga um að hver starfsmaður í 100% starfi fær árlega greiddan styrk að upphæð kr. 15.000. Styrkirnir eru greiddir gegn framvísun kvittunar fyrir líkamsræktarúrræði að eigin vali, kaupum á líkamsræktarfatnaði t.d. göngu- eða hlaupaskóm eða öðrum búnaði í samráði við forstöðumann. Tillagan nær bæði til starfsmanna sveitarfélagsins og HSU Hornafirði.
Bæjarráð samþykkir að framlagða tillögu um styrk til heilsueflingar starfsmanna. Bæjarráð felur velferðarteymi sveitarfélagsins að móta reglur um framkvæmd. Kostnaður vegna þessa á árinu 2018 verði tekin af órráðstöfuðu.
5.
Olíutrektir fyrir heimili
Bæjarráð fól starfsmanni að kanna möguleika og kostnað við að safna matarolíu sem fellur til á heimilum og koma til endurvinnslu. Leitað var til EcoFunnel með tilboð í trektir sem hægt að skrúfa ofan á gosílát. Einnig var rætt Íslenska Gámafélagið sem hefur samþykkt að taka við olíu frá íbúum á flokkunarstöð sveitarfélagsins. Kostnaður við kaup á 360 stk. er 91.735. krónur, trektunum yrði úthlutað frítt til þeirra sem óska að taka þátt í söfnun á matarolíu.
Bæjarráð samþykkir kaup á 360 trektum í samræmi við framlög gögn. Umhverfissamtök Austur-Skaftafellssýslu hafa lýst áhuga á að koma að innleiðingu á þessu verki. Bæjarráð felur starfsmanni að ganga frá pöntun og ræða við Umhverfissamtök Austur-Skaftafellssýslu um aðkomu þeirra að málinu.
6.
Malbikunarframkvæmdir 2018
Undirbúningur fyrir malbikunarframkvæmdir hefur staðið yfir frá því í desember s.l. en þá ákvað bæjarráð hvaða staðir ætti að malbika nú í vor. Ljóst er að einhver verkefni nást ekki, er það á stöðum þar sem vinna þarf mikla undirvinnu og leggja nýjar lagnir. Fjöldi verkefna hjá verktökum á svæðinu veldur því að ekki næst að klára nauðsynlega undirvinnu fyrir malbik.
Gunnlaugur fór yfir stöðu framkvæmda í undirbúningi vegna malbikunarframkvæmda 2018.
Bæjarráð telur rétt að malbikunarframkvæmdir verði á dagskrá þar til endanlegar er ljóst hvaða svæði hægt verður að malbika.
Bæjarráð telur rétt að malbikunarframkvæmdir verði á dagskrá þar til endanlegar er ljóst hvaða svæði hægt verður að malbika.
7.
Styrkbeiðni Skákfélagið Hrókurinn
Erindi dagsett 12. apríl. Hrókurinn hefur komið að fjölmörgum mannúðarmálum og hjálparstarfi á þeim tuttugu árum sem hann hefur starfað. Í tilefni af tímamótunum stendur til að félagar Hróksins heimsæki öll sveitarfélög í landinu. Óskað er eftir stuðningi sveitarfélaga af þessu tilefni í formi þess að gerast Brons, Silfur eða Gullbakhjarl.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 25.000 krónur.
8.
Grunnskóli Hornafjarðar: Ósk um fleiri tölvur
Erindi dagsett 18. apríl frá skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar. Ósk um auka fjárveitingu vegna kaupa á 24 Chromebook tölvum. Með þessum kaupum yrði eitt bekkjarsett eða 24 slíkar vélar í hvoru húsi.
Ragnhildur fór yfir reynslu af notkun þeirra véla sem keyptar voru árið 2017. Bæjarráð samþykkir viðbótarfjármagn að upphæð 1 milljón króna til kaupa á chromebook vélum sem tekin verði af óráðstöfuðu.
9.
Umsögn um rekstrarleyfi: Funi ehf.
Farið yfir umsagnir.
Í gangi er endurskoðun á ferðaþjónustukafla aðalskipulags sveitarfélagsins þar sem horft er til þess að minni ferðaþjónusta, allt að 10 gestir, rúmist innan landnotkunar landbúnaður.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfur leyfis.
Í gangi er endurskoðun á ferðaþjónustukafla aðalskipulags sveitarfélagsins þar sem horft er til þess að minni ferðaþjónusta, allt að 10 gestir, rúmist innan landnotkunar landbúnaður.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfur leyfis.
10.
Umsögn: frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða 425. mál
Umhverfis- og auðlindaráðherra leggur fram frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða.
Einnig lögð fram tvö bréf frá Smábátafélaginu Hrollaugi Hornafirði þar er farið yfir frumvarpið og gerðar athugasemdir frá þeirra sjónarmiði.
Bæjarráð harmar þá þætti frumvarpsins sem rýra möguleika til eflingar á strandveiðum hringinn í kringum landið. Þar er sérstaklega horft til þess að fella út þá svæðaskiptngu sem verið hefur frá upphafi strandveiða.
Bæjarráð harmar þá þætti frumvarpsins sem rýra möguleika til eflingar á strandveiðum hringinn í kringum landið. Þar er sérstaklega horft til þess að fella út þá svæðaskiptngu sem verið hefur frá upphafi strandveiða.
11.
Umsögn: Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaráætlun 2018 -2024 mál 480
Alþingi ályktar, sbr. lög um byggðaáætlun og sóknaráætlanir, nr. 69/2015, að fela ríkis-stjórninni að vinna að framkvæmd eftirfarandi stefnu og aðgerðaáætlunar í byggðamálum og að gert verði ráð fyrir framkvæmdinni við gerð fjárlaga hvers árs.Helstu viðfangsefni byggðaáætlunar verði að takast á við fækkun íbúa á einstökum svæðum, einhæft atvinnulíf, tæknibreytingar og þróun og aðlögun er varðar einstakar atvinnu-greinar, aðlögun vegna áhrifa loftslagsbreytinga, að tryggja greiðar samgöngur og aðgengi að þjónustu og bregðast við harðnandi alþjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki. Lögð verði sérstök áhersla á svæði sem standa höllum fæti í þessu samhengi. Markmið stjórnvalda eru að: a. jafna aðgengi að þjónustu, b. jafna tækifæri til atvinnu og c. stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð fagnar að unnið sé að gerð byggðaráætlunar.
Bæjarráð fagnar að unnið sé að gerð byggðaráætlunar.
12.
Ársfundur Stapa 2018
Ársfundur Stapa lífeyrissjóðs sem haldinn verður 9. maí í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri.
lagt fram til kynningar.
13.
Arðgreiðsla 2018 Lánasjóðs sveitarfélaga
Erindi frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. dagsett 9. apríl. Tilkynning um arð vegna rekstrarársins 2017, í samræmi við samþykkta tillögu frá aðalfundi. Arðgreiðsla til Sveitarfélagsins Hornafjarðar nemur 4.184.192 krónur.
Bæjarráð fagnar góðu gengi lánasjóðsins og að eigendur sjóðsins njóti arðgreiðslna í samræmi við eignarhlut.