Bæjarráð Hornafjarðar
856. fundur
30. apríl 2018
kl.
16:00
-
18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 206
Fundargerð lögð fram.
Vignir fór yfir fundargerðina.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Samningur vegna reksturs tjaldsvæðis 2017-2032
Farið yfir samningsákvæði og aðgerðaáætlun vegna reksturs tjaldsvæðis ásamt erindi frá rekstraraðila. Óskar hann eftir fundi með sveitarfélaginu til að fara yfir framgang samnings og framkvæmdaáætlun. Bæjarráð samþykkir að funda með aðilum málsins en óskar eftir að umbeðnum gögnum verði skilað fyrir fundinn. Starfsmanni falið að boða rekstraraðila á næsta fund bæjarráðs.
3.
Klæðning á Höfn 2018
Farið yfir verkefnið. Vinnuflokkur er væntanlegur í byrjun júní. Klæðning verður lögð á Óslandsveginn, Ófeigstanga, Bátstanga, Krosseyjarveg og enda Sæbrautar.
4.
Malbikunarframkvæmdir 2018
Gunnlaugur fór yfir minnisblað um malbikunarframkvæmdir ársins. Áætlað er að malbikun hefjist um miðjan maí. Malbikunarstöðin verður staðsett við salthaugana á Ægissíðu. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um gæðamun á mögulegu efnisvali í jöfnunarlag.
5.
Útboð Vöruhús endurbætur 2018 2. áfangi.
Eftir yfirferð umsjónarmanns fasteigna er tilboðið 28% yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að ganga til samninga við tilboðsgjafa.
6.
Viðhaldsáætlun fasteigna sveitarfélagsins
Náðst hefur samkomulag við verktaka um að verð fyrir verkið verði 8.502.000 kr. sem er um 20% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að fela umsjónarmanni fasteigna að ganga til samninga við verktaka.
Bæjarráð samþykkir að fela umsjónarmanni fasteigna að ganga til samninga við verktaka.
7.
Stefna: Landvernd Hollvinir Hornafjarðar framkvæmdarleyfi hringvegar
Stefnu á hendur sveitarfélaginu var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur.
8.
Óslandssker: ósk um afnot vegna æðarvarps
Gunnar Ásgeirsson óskar eftir afnotum af Óslandsskeri til að koma upp æðarvarpi. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við afnotin.
9.
Þorgeirslundur: Umsókn um styrk vegna upplýsingaskilta
Lionsklúbbur Hornafjarðar óskar eftir styrk til að koma upp skiltum í Þorgeirslundi.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 200.000 kr. sem tekið verði af óráðstöfuðu.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 200.000 kr. sem tekið verði af óráðstöfuðu.
10.
Hafnarnes: Ósk um breytingu á lögun lóðar
Ósk um að lögun lóðar verði breytt. Við hönnun og samskipti við arkitekta um skipulag á lóðinni reynist betra að koma fyrirhuguðum byggingum fyrir á lóð ef lögun hennar fengist breytt án þess að lóð stækki.
Bæjarráð samþykkir breytingu á lögun lóðar við Hafnarnes.
11.
Skólahreysti 2018: Keppnisferð til Reykjavíkur
Grunnskóli Hornafjarða vann austurlandskeppni í skólahreysti 2018 það gerðist síðast árið 2008. 2. maí fer úrslitakeppnin fram í Reykjavík.
Bæjarráð samþykkir að styrkja ferðina um það sem vantar uppá vegna kostnaðar eða 100. þúsund krónur. sem tekið verði af óráðstöfuðu.