Bæjarráð Hornafjarðar
857. fundur
7. maí 2018
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 40
Farið yfir fundargerð.
5 manns á atvinnuleysisskrá m.v. febrúar sl., en þeim hefur fækkað úr 11 síðan um áramót. Er þetta um 0,4% af áætluðu vinnuafli á svæðinu, en það eru 1401 manneskja. Hefur áætluðu vinnuafli fjölgað um 109 manns á síðustu 12 mánuðum, eða úr 1292 aðilum. Á sama tíma hefur atvinnulausum fækkað úr 0.8% í 0.4%.
Fundargerð samþykkt.
5 manns á atvinnuleysisskrá m.v. febrúar sl., en þeim hefur fækkað úr 11 síðan um áramót. Er þetta um 0,4% af áætluðu vinnuafli á svæðinu, en það eru 1401 manneskja. Hefur áætluðu vinnuafli fjölgað um 109 manns á síðustu 12 mánuðum, eða úr 1292 aðilum. Á sama tíma hefur atvinnulausum fækkað úr 0.8% í 0.4%.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 42
Farið yfir fundargerð.
Rætt um framtíðarbyggingarlóðir. Sæmundur telur mikilvægt að í framtíðarskipulagsáætlunum verði að gera ráð fyrir litlum lóðum fyrir byggingu lítilla húsa.
Fundargerð samþykkt.
Rætt um framtíðarbyggingarlóðir. Sæmundur telur mikilvægt að í framtíðarskipulagsáætlunum verði að gera ráð fyrir litlum lóðum fyrir byggingu lítilla húsa.
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnustefna 2015-
Atvinnumálanefnd hefur unnið að gerð atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið. Á síðasta fundi samþykkti nefndin að vísa stefnunni áfram í samþykktarferli.
Rætt um drög að atvinnustefnu. Bæjarráð óskar eftir að fastanefndir sveitarfélagsins fari yfir drögin og skili inn athugasemdum ef þörf er á til atvinnumálanefndar.
4.
Hafnarvík Heppa: Frágangur akfærra stíga
Skipulagsstjóri kynnir hugmyndir um hellulögn á Heppu ásamt kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að kaupa hellustein og kanntsteina í verkið. Bæjarráð óskar eftir að skipulagsstjóri kanni með verktaka til að vinna undirvinnu fyrir hellulögn.
5.
Klæðning á Höfn 2018
Skipulagsstjóri kynnir stöðuna vegna komu klæðningarflokks í júní.
Skipulagsstjóri fór yfir stöðu mála og kostnaður vegna klæðningar.
6.
Malbikunarframkvæmdir 2018
Skipulagsstjóri kynnir stöðuna vegna komu malbikunarflokks í maí.
Farið yfir stöðu mála varðandi malbikunar nú í vor.
7.
Erindi vegna gatnagerðar í Hæðagarði
Erindi frá íbúum í Nesjahverfi dagsett 3. maí. Í erindu kemur fram ósk um að ekki verði sett bílastæði öðru megin í götunnu eins og kynnt hefur verið.
Bæjarráð samþykkir að tekið verði tillit til erindis íbúa í Nesjahverfi og að hætt verði við fyrirhuguð bílastæð í götu. Bæjarráð ferlu skipulagsstjóra að útfæra og koma málinu í ferli.
8.
Umsókn um lóð Hagaleira 4 og 6
Umsókn Finns Karls Vignissonar og Sveins Rafnkelssonar um lóðir að Hagaleiru 4 og 6.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóða og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
9.
Umsókn um lóð: Hagaleira 2
Umsókn Bjarna Þórs Jakobssonar um lóð að Hagaleiru 2.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðar og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
10.
Lóðaumsókn: Borgartún 1 og 2
Umsókn Straumhvarfs ehf um lóð að Borgartúni 1 og 2.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóða og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Tímabundinn afsláttur af lóðagjöldum
Rætt um framlengingu á reglum um tímbundna niðurfellingu gatnagerðargjalda. Afsláttur af lóðagjöldum hafa verið í gildi í um 3 ár og skilað talsverðum árangri.
Bæjarráð telur rétt að reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda verði framlengt um 12 mánuði. Sæmundur telur að mikilvægt sé að einnig verði útfærð leið til að styðja við húsbyggendur í dreifbýli.
Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda til bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa reglum um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda til bæjarstjórnar.
12.
Fundur með heilbrigðisráðherra
Bæjarstjóri og framkvæmdarstjóri HSU Hornafirði áttu fund með heilbrigðisráðherra 3. maí s.l. Á fundinum var ákveðið að klára samngingsdrög vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis og að stefna á að skrifa á allra næstu dögum. Einnig kom fram á fundinum að byggt verður 30 rýma hjúkrunarheimili ásamt kapellu, líkhúsi og annari stoðþjonustu. núverandi húsnæði hjúkrunarheimilisins verður breytt til að hýsa hluta af stoðrýmum heimilisins.
Bæjarstjóri upplýsti að tölvupóstur hafi komið frá heilbrigðisráðuneytinu um að skrifa ætti undir fimmtudaginn 17.maí kl 13:00 í heilbrigðisráðuneytinu.
Bæjarráð fagnar að búið er að ákveða dagsetningu undirskriftar og nú geti næsti þáttur farið af stað, skipun framkvæmdarnefndar og val á hönnuðum.
Bæjarráð fagnar að búið er að ákveða dagsetningu undirskriftar og nú geti næsti þáttur farið af stað, skipun framkvæmdarnefndar og val á hönnuðum.
13.
Öræfajökull : jarðskjálfta og áætlanir
Bæjarstjóri upplýsir um fund með vísindaráði Almannavarna um stöðuna í Öræfum. Ákveðið hefur verið að boða til íbúafundar í Öræfum þriðjudaginn 8. maí.
Bæjarstjóri upplýsti um fyrirhugaðan íbúafund í Öræfum. Fara á yfir þróun mála í Öræfajökli og aðrar jarðhræringar á svæðinu.
14.
Fundargerðir: stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 859 lögð fram.
lagt fram til kynningar.
15.
Beiðni um landskipti fyrir Dilksnesland/lóð2
Erindi frá Kristjáni Jónssyni kt 280544-4189, eiganda jarðarinnar Dilksnesland/Lóð 2, landnúmerið 159474, óskar eftir umsögn og samþykki fyrir landskiptum á jörðinni samkvæmt uppdrætti sem fylgdi með erindinu. Spildan sem skipt er úr landi Dilksnesland/Lóð 2 er nefnd Skjólshólar landnúmer 226461 og fastanúmer 250-0058, landskiptin eru vegna áforma um að skipta þessari lóð út úr upprunalandinuog afsala.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun viðkomandi lóðar skiptingu hennar úr upprunalandi. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.