Bæjarráð Hornafjarðar
858. fundur
14. maí 2018
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason
formaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
varaformaður
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Samningur vegna reksturs tjaldsvæðis 2017-2032
Farið yfir framkvæmdaáætlun í samningi um rekstur tjaldsvæðis. Unnið verður áfram að málinu og lokadrög verða tilbúin 1. júní nk.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 297
Bæjarráð tók undir bókun félagsmálanefndar um að sett verði á laggirnar fagnefnd til að sinna barnaverndarmálum. Málinu vísað til umbótavinnu í kjölfar stjórnsýsluúttektar.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Ósk um styrk vegna endurbóta
Sæmundur vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjármálasviðs með tilliti til stöðu á óráðstöfuðu þar sem fjármagn verði tekið af óráðstöfuðu.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjármálasviðs með tilliti til stöðu á óráðstöfuðu þar sem fjármagn verði tekið af óráðstöfuðu.
4.
Umsókn um lóð Fákaleira 7
Erindi frá lóðahafa Róslín Ölmu Valdemarsdóttur um að skila inn úthlutaðri lóð.
Sæmundur tók aftur sæti á fundinum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skil á lóð.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við skil á lóð.
5.
Fákaleira 7: umsókn um lóð
Umsókn Olgeirs Aðalsteins Jóhannessonar um lóð að Fákaleiru 7
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðar og vísar málinu til bæjarstjórnar.
6.
Umsögn um útgáfu leyfa Hammer 300 ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
7.
Erindi vegna gatnagerðar í Hæðagarði
Lagt fram erindi frá íbúum Nesjahverfis þar sem fram kemur hugmynd um að flytja gangstétt hægra megin (sléttutölu megin) þegar komið er inn í hverfið en grasflöt hinu megin (oddatölu megin). Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til skipulagsstjóra.
8.
Fundargerðir HAUST 2018
Fundargerð HAUST nr. 141.
Lagt fram til kynningar.