Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

859. fundur
22. maí 2018 kl. 16:00 - 18:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 41
Málsnúmer 1805001F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarvík Heppa: Frágangur akfærra stíga
Málsnúmer 201805013
Farið yfir minnisblað skipulagsstjóra vegna frágangs stíga á Hafnarvík Heppu.
Bæjarráð hefur samþykkt að fara í verkefnið á grunni framlagðs minnisblaðs. Heildarkostnaður er um 11,5 mkr., þar af aðkeypt vinna 7 mkr.
3.
Malbikunarframkvæmdir 2018
Málsnúmer 201710033
Farið yfir minnisblað skipulagsstjóra vegna malbikunarframkvæmda 2018.
4.
Staða sveitarsjóðs 2018
Málsnúmer 201805075
Staða sveitarstjóðs fyrstu fjóra mánuði ársins 2018
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs miðað við lok apríl. Staða málaflokka er í samræmi við áætlun.
5.
Fjárhagsáætlun 2018: Viðauki II
Málsnúmer 201805079
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna viðauka II við fjárhagsáætlun í samræmi við ákvarðanir og stöðu á óráðstöfuðu. Óráðstafað verði 5 mkr.
6.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Málsnúmer 201711076
Á fundi nr. 853 fól bæjarráð bæjarstjóra að fara yfir reglur um kjör fulltrúa. Lögð fram endurskoðuð samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins. Kjör fulltrúa gerð greinilegri og hækkun lögð til á kjör fyrir setur í nefndum sveitarfélagsins. Greiðsla fyrir setinn fund hækki úr 13.838 kr. í 22.024 kr.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um kjör kjörinna fulltrúa.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7.
Samningur: Bygging 30 rýma hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201805077
Skrifað var undir samkomulag um byggingdu 30 rýma hjúkrunarheimilis þann 17. maí. Kostnaðarskiptin vegna byggingar hjúkrunarheimilisins verður 85% ríkið og 15% sveitarfélagið. Markmið sveitarfélagsins verður að einnig verði í húsinu kapella, líkhús og önnur stoðþjónusta. Mun kostnaður vegna þessara viðbóta verða sveitarfélagsins að mestu. Einnig þarf að tryggja að hönnun skili hagkvæmum rekstri til framtíðar og skiptir þar miklu staðsetning 4 sjúkrarýma. Samkvæmt samkomulaginu tilnefnir sveitarfélagið tvo fulltrúa í starfshóp sem fer með stjórnun og ábyrgð á undirbúningi verkefnisins. Fyrsta verkefnið verður að vinna að áætlunargerð og fullnaðarhönnun.
Bæjarráð fagnar undirskrift og tilnefnir framkvæmdastjóra HSU Hornafirði og bæjarstjóra í starfshóp vegna byggingar hjúkrunarheimilis.
8.
Ósk um samstarfssamningur: Uppbygging á nýju svæði félagsins
Málsnúmer 201805076
Bæjarráð samþykkir að veita Skotfélagi Hornafjarðar 5 mkr. styrk 2018 til að hefja uppbyggingu á skotsvæði. Fjárhæð verði tekin af rekstrarafgangi ársins og vísað í viðauka II við fjárhagsáætlun 2018. Ákvörðun um samstarfssamning vísað til nýs bæjarráðs.
9.
Ósk um styrk: Körfuknattleiksdeild í fyrstu deild
Málsnúmer 201805078
Erindi dagsett 10. maí. Meistaraflokkur UMF Sindra í körfuknattleik tryggði sér í fyrsta sinn sæti í fyrstu deild. Þessum árangri fylgir aukin kostnaður spilaðir eru þrjár umferðir og gerðar eru meiri kröfur á liðin í fyrstu deild. Óskað er eftir fjárframlagi til að koma hluta af auknum kostnaði á næstu leiktíð.
Bæjarráð fagnar árangri meistaraflokks körfuknattsleiksdeildar UMF Sindra og óskar þeim til hamingju. Bæjarráð telur sér ekki fært að styrkja rekstur einstakra deilda UMF Sindra umfram aðrar en bendir á að samþykktar hafa verið styrkbeiðnir vegna stofnbúnaðar sem bæta aðbúnað. Bæjarráð hafnar því styrkbeiðni. Bæjarráð samþykkir 500 þkr. styrk til búnaðarkaupa í tilefni góðs árangurs meistaraflokks.
10.
Ósk um leiðréttingu á fasteignagjöldum 2015-2018
Málsnúmer 201805074
Erindi til dagsett 18. maí beiðni um leiðréttingu álagra fasteignagjalda 2015 til 2018.
Bæjarráð óskar eftir lögfræðiáliti á erindinu.
11.
Erindi frá eiganda í Efra Firði
Málsnúmer 201805048
Erindi móttekið 14. maí. Athugasemdir vegna sorpstaðar sveitarfélagsins í landi Fjarðar í Lóni og ósk um niðurfellingar á fasteignaskatti 2018.
Bæjarráð hafnar erindinu.
12.
Leiðrétting skráningar ríkiseigna
Málsnúmer 201804112
Erindi Framkvæmdarsýslu ríkisins vegna leiðréttingar á skráningu Litlabrú 2 Ríkissjóður Íslands verið skráður eigandi að 62,37% hluta og Sveitarfélagið Hornafjörður að 37,63% hluta.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd.
13.
Ósk um umsögn: Flugeldasýning á Jökulsárlóni 2018
Málsnúmer 201805065
Erindi móttekið 16. maí beiðni um umsögn vegna flugeldasýningar 11. ágúst að Jökulsárlóni á milli kl 23:00 og 23:55
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa Farfuglaheimilið Vagnsstöðum
Málsnúmer 201804097
Erindi Sýslumanns á Suðurlandi dagsett 13. júní
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa Hali sveitahótel
Málsnúmer 201804039
Erindi Sýslumanns á Suðurlandi ósk um umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa Þórbergssetur
Málsnúmer 201804040
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa Hali sveitahótel/sumarhús
Málsnúmer 201804041
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa Hali íbúðir/sveitahótel
Málsnúmer 201804042
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
19.
Umsögn um útgáfu leyfa Pakkhús v.sjómannaskemmtun
Málsnúmer 201805039
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um útgáfu leyfis.
20.
Úttekt slökkviliða 2017
Málsnúmer 201805024
Úttekt Mannvirkjastofnunar á Slökkviliði Hornafjarðar 2017. Gerð er athugasemd við að ekki er varaslökkviliðsstjóri við slökkviliðið. Upplýsingar vantar um slökkvivatn og virkni brunahana og aðbúnaður við loftþjöppu þarfnast lagfæringar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og slökkviliðsstjóra að bregðast við athugasemdum og auglýsa stöðu varaslökkviliðsstjóra.
21.
Landsþing SÍS: 25-28. september 2018
Málsnúmer 201805071
Landsþing SÍS mun fara fram 26 til 28. september 2018. Fjöldi fulltrúa fer eftir fjölda íbúa á hverjum tíma ræður fjölda fulltrúa á þinginu. Sveitarfélagið á 2 fulltrúa á þinginu í haust.
Lagt fram til kynningar. Það verður hlutverk nýrrar bæjarstjórnar að kjósa fulltrúa á landsþing.
22.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2018
Málsnúmer 201801056
Fundargerð stjórnar nr.92
Lagt fram til kynningar.
23.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Málsnúmer 201801057
fundargerð nr. 532
Lagt fram til kynningar.
24.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarður 2018
Málsnúmer 201804010
Fundargerðir stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs nr 117 og 118 ásamt fundargerð svæðisráðs suðursvæðis nr 58
Lagt fram til kynningar.