Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

860. fundur
28. maí 2018 kl. 16:00 - 18:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sæmundur Helgason formaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Kristján Sigurður Guðnason 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Málsnúmer 201803021
Ráðgjafar Capacent í síma við bæjarráð. Farið yfir þá vinnu sem búin er að vera í gangi undanfarin mánuð. Tekin hafa verið viðtöl við starfsmenn í stjórnsýslunni og einnig haldnar vinnustofur til að vinna nánar með stöðuna.
2.
Menningarmálanefnd - 41
Málsnúmer 1805005F
Farið yfir fundargerð.
Rætt um barnastarfið í sumar og mikilvægi þess að auglýsa það vel.
Ákveðið hefur verið að breyta eldra merki Hornafjarðasafna þannig að það henti Menningarmiðstöð Hornafjarðar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnumálanefnd - 41
Málsnúmer 1805008F
Farið yfir fundargerð.
Rætt um stefnumótandi stjórnunaráætlun fyrir ferðaþjónustu í hverjum landshluta DMP. Ljóst er að búið er að vinna mikla vinnu í greiningu á stöðunni. Næst er að vinna aðgerðaráætlun á grunni DMP vinnunnar. Íslandsstofa hefur samþykkt að veita fjámagni til að ráðgjafar verið áfram við verkefnið til að vinna aðgerðaráætlun. Slík aðgerðaráætlun getur kallað á að endurskoða þyrfti stefnur, áætlanir og aðal- og deiliskipulag á hverju svæði.
Sæmundur ræddi um sjóð hjá Vegagerðinni sem kemur til helminga til móts við sveitarfélögin vegna kostnaðar við lagningu hjól- og göngustíga sem þarf að sækja í.
Norræna samstarfverkefnið styður við þá vinnu sem unnin hefur verið í innan DMB áætlunina.
Fundargerð samþykkt.
4.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 38
Málsnúmer 1805009F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
5.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 45
Málsnúmer 1805007F
Farið yfir fundargerð.
Róbert ræddi um niðurstöðu skólapúlsins og hefur hún jákvæðari en fyrri niðurstöður hafa sýnt. Niðurstöður í heild sinni má sjá á heimasíðu Grunnskóla Hornafjarðar. Róbert ræddi einnig um úttekt frá Rannsóknir og greining. Niðurstöður sýna að máln eru að þróast í rétta átt.
Sæmundur spurði um nýtingu á ungmennahúsi. Fræðslustjóri upplýsti að umræðan væri á þann veg að ungmennahús þurfi að fá tíma til að festa sig í sessi. Búið er að auglýsa eftir forstöðumanni Þrykkjunnar.
Fundargerð samþykkt.
6.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 207
Málsnúmer 1805012F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
7.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201805081
Ársreikningur HSU Hornafirði lagður fram.
Bæjarráð vísar ársreikning til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Heimaþjónustudeild: Ósk um tímabundna viðbótar, stöðugildi verkefnastjóra
Málsnúmer 201805095
Beiðni um tímabundna ráðningu verkefnastjóra til eins árs viðheimaþjónustudeild og málefni fatlaðra. Vegna aukinna umsvifa í daglegum rekstri deildarinnar og við frekari liðveislu auk fyrirhugaðs flutnings starfseminnar að Víkurbraut 24.
Bæjarstjóri upplýsti að umbeðin verkefnastjórastaða rúmast innan fjárheimilda deildarinnar 2018.
Bæjarráð samþykkir beiðnina.
9.
Unglingalandsmót 2019
Málsnúmer 201605078
Fundargerð undirbúningshóps vegna unglingalandsmóts 2019 lagðar fram.
10.
Lóðaumsókn: Fákaleira 13
Málsnúmer 201805073
Umsókn Rafn Arnar Rafnkelsson um lóð að Fákaleiru 13.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðar til umsækjanda.
Málinu vísað til bæjarstjórna.
11.
Stöðuleyfisumsókn: matarvagn við Akurey
Málsnúmer 201805102
Erindi Karls Jóhanns Guðmundssonar, ósk um heimild til að nýta land sveitarfélagsins undir matarvagn. Óskað eftir heimild til að staðsetja matarvagn við Akurey.
Bæjarráð samþykkir leyfi til landnýtingar fyrir veitingavagn í samræmi við umsókn og samþykktir sveitarfélagsins um götu og torgsölu. Nákvæm staðsetning verði unnin í samvinnu við starfsmenn sveitarfélagsins.
12.
Ósk eftir viðræðum um vatnstankinn á Fiskhól
Málsnúmer 201805097
Erindi frá Ragnari Péturssyni og Magnúsi Guðjónssyni um viðræður við sveitarfélagið um gamla vatnstankinn. Hugmyndin er að koma upp starfsemi en útlit tanksins mun halda sér.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við höfunda erindis og fá frekari upplýsingar um áformin.
13.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201805104
Í dag 28.maí kl 13:20 var sveitarfélagi Hornafjarðar birt stefna. Gerð er krafa um að sveitarfélagið viðurkenni skaðabótaskyldu gagnvart Ice Lagoon ehf vegna tjóns sem félagið telur sig hafa orðið fyrir vegna athafna sveitarfélagins á árunum 2010 til 2017.
Í byrjun febrúar 2018 kom erindi frá Lögmönnum Laugardal Björn Þorri Viktorsson fyrir hönd Ice Lagoon ehf. Óskað er eftir viðræðum um viðurkenningu á bótaskyldu sveitarfélagsins. Bæjarráð tók fyrir svar við því erindi á fundi nr.847 24. Febrúar í niðurlagi þess bréf kemur fram „Óljóst er hvernig útreikningar Ernst & Young styðja við grundvöll kröfunnar en þeir útreikningar ganga út á að bera saman EBITDA félagsins á tilteknu tímabili við tilbúnar forsendur um tilteknar sölutölur á sama tímabili. Ekki er þó rökstutt sérstaklega eða reynt að færa á það sönnur hvernig þær rekstrarforsendur ættu að eiga við um umbjóðanda þinn. Ennfremur er ekkert rökstutt hvaða tilteknu athafnir sveitarfélagsins eða eftir atvikum bæjarfulltrúa þess eigi að hafa valdið hinu útreiknaða tjóni, líkt og byggt er á í minnisblaðinu.
Þegar af þeirri ástæðu er bótakröfu umbjóðanda þíns alfarið hafnað en tekið skal fram að önnur sjónarmið innan skaðabótaréttarins, s.s. að skilyrði sakarreglunnar séu uppfyllt, að orsakatengsl séu til staðar auk þess sem skylda aðila til að takmarka tjón sitt, geta leitt til sömu niðurstöðu.
Meint tjón félagsins er því alfarið ósannað og bótakröfunni hafnað.“
Meirihluti bæjarráðs telur furðu sæta að lögmaður Ice Lagoon ehf Jón Þór Ólason hdl hjá Jónatansson&co komi fram í fjölmiðlum 23. maí með fullyrðingar um að sveitarfélaginu hafi verið stefnt, áður en stefnan er birt sveitarfélaginu en það var ekki gert fyrr en í dag, 28.maí. Fulltrúi framsóknarflokks situr hjá þar sem hann hefur ekki geta kynnt sér málið nægilega vel þar sem erindið barst inn í dag.
Bæjarráð óskar eftir að Árni Helgason lögmaður hjá JÁS taki málið að sér.
14.
Stefna: Landvernd Hollvinir Hornafjarðar framkvæmdarleyfi hringvegar
Málsnúmer 201802088
Stefnu Landverndar og Hollvina Hornafjarðar var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur 26. apríl s.l. Stefnendur hafa nú áfrýjað málinu til Landsréttar. JÁS Lögmenn hafa skilað greinagerð til Landsrétta fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar um stöðu málsins.