Bæjarráð Hornafjarðar
866. fundur
27. ágúst 2018
kl.
16:00
-
18:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Björgvin Óskar Sigurjónsson
2. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 299
Fundargerðin samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 47
Fundargerð samþykkt.
3.
Fjallskilasamþykkt
Árdís gerði grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á samþykktinni eftir að henni var vísað til ráðherra.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
4.
Persónuverndarstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Drög af persónuverndarstefnu sveitarfélagsins lögð fram.
5.
Umsögn um stofnun verndarsvæðis(þjóðgarðastofnun)
Erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu dags. 17. ágúst þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi um nýja stofnun sem ætlað er að hafa með höndum alla umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúru.
Ráðherra hefur boðað til fundar að Hótel Vatnajökli 3. september kl. 10:15-12:15.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Starfsmannamál
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.
7.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Lagt fram til kynningar.
8.
Alþjóðleg kvikmyndagerð á Hornafirði
Eftir skoðun málsins með lögfræðingi er það niðurstaðan að ekki er hægt að semja á þeim forsendum sem lagðar eru fram í umsókn.
9.
Fyrirspurn um húsnæðið Hafnarbraut 25
Erindi frá Arnfríði Silju Gylfadóttur dags. 12. ágúst þar sem óskað er eftir upplýsingum um áform sveitarféagsins varðandi húsnæði sveitarfélagsins á Hafnarbraut 25.
Bæjarráð þakkar áhugann en ákvörðun um framtíð hússins hefur ekki verið tekin og unnið er að skipulagsvinnu á svæðinu.
10.
Ritun fundargerða bæjarstjórnar
Frestað.
11.
Ósk um aukafjárveitingu
Ragnhildur greindi frá ósk um aukafjárveitingu vegna kaupa á iPad.
Bæjarráð samþykkir að veita allt að 900 þúsund kr. af óráðstöfuðu, til kaupa á iPad fyrir grunnskólann.
12.
Erindisbréf stýrihóps um heildarskipulag og uppbyggingu íþrótta- og skólasvæðis
Fram eru komnar tilnefningar í stýrihópinn frá fræðslu- og tómstundanefnd.
Meirihluti bæjarráðs B listi, vísar erindisbréfinu til afgreiðslu í bæjarstjórn. Guðbjörg Lára greiðir atkvæði gegn málinu.
Áætlaður kostnaður vegna stýrihópsins er 1.9 milljón á árinu 2018 sem verður tekið af óráðstöfuðu.
Meirihluti bæjarráðs B listi samþykkir að taka féð af óráðstöfuðu.
Guðbjörg Lára greiðir atkvæði gegn málinu.
Bókun Guðbjargar Láru D. lista: Ég er á þeirri skoðun að Fræðslu- og tómstundarnefnd eigi að vera þessi hópur, vinna út frá margskonar fyrirliggjandi gögnum í málinu og mynda sér afstöðu út frá þeim. Stofnun samráðshópsins er tvíverknaður að mínu mati.
Áætlaður kostnaður vegna stýrihópsins er 1.9 milljón á árinu 2018 sem verður tekið af óráðstöfuðu.
Meirihluti bæjarráðs B listi samþykkir að taka féð af óráðstöfuðu.
Guðbjörg Lára greiðir atkvæði gegn málinu.
Bókun Guðbjargar Láru D. lista: Ég er á þeirri skoðun að Fræðslu- og tómstundarnefnd eigi að vera þessi hópur, vinna út frá margskonar fyrirliggjandi gögnum í málinu og mynda sér afstöðu út frá þeim. Stofnun samráðshópsins er tvíverknaður að mínu mati.
13.
Unglingalandsmót 2019
Bæjarstjóri verður tengiliður fyrir bæjarráð við landsmótsnefnd.
14.
Umsókn um lóðir D, E og F í Útbæ á Höfn
Umsókn Marina Travel ehf. um lóðir við Óslandsveg D, E og F lögð fram.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðanna og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
15.
Landsþing 2018: Samband Íslenskra sveitarfélaga
Boðun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 26.-28. september á Akureyri lögð fram, ásamt erindi SASS um að sveitarfélögin undibúi og vinni að áhersluatriðum landshlutans fyrir landsþingið.
Lagt fram til kynningar.
16.
Umsókn um húsnæði í Miklagarði
Umsagnir starfsmanna lagðar fram.
Farið yfir umsagnir starfsmanna varðandi ástand hússins og hvað þarf að gera til að koma því í rekstrarhæft form.
Ljóst er að umtalsverðar úrbætur þarf að gera til þess að það megi verða.
Bæjarráð þakkar auðsýndan áhuga umsækjenda á starfsemi í húsinu.
Bæjarráð hafnar umsókninni að svo komnu máli.
Ljóst er að umtalsverðar úrbætur þarf að gera til þess að það megi verða.
Bæjarráð þakkar auðsýndan áhuga umsækjenda á starfsemi í húsinu.
Bæjarráð hafnar umsókninni að svo komnu máli.
17.
Hraunhóll 6: umsókn um lóð
Umsókn Halldórs Tjörva Einarssonar um lóð að Hraunhóli 6 lögð fram.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðarinnar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa Skyrhúsið
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 17. júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu rekstarleyfis til sölu gistingar í flokki II frá Skyrhúsinu ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
19.
Umsögn um útgáfu leyfa Seljavellir ehf
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 17. júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu rekstarleyfis til sölu gistingar í flokki IV frá Gistihúsinu Seljavöllum ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
20.
Umsögn um útgáfu leyfa Lambhús
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 17. júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu rekstarleyfis til sölu gistingar í flokki II frá Lambleikstöðum ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
21.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.