Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

867. fundur
3. september 2018 kl. 16:00 - 18:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Ásgrímur Ingólfsson 1. varamaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Matthildur Ásmundardóttir
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga-og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 43
Málsnúmer 1808001F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 40
Málsnúmer 1808005F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Menningarmálanefnd - 43
Málsnúmer 1808004F
Eyrún fór yfir stöðugildi Menningarmiðstöðvarinnar, óskað var eftir að auka stöðugildi um eina 100% stöðu tímabundið og 50% til framtíðar.
Vísað til vinnu við fjárhagsáætlun.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um kostnað við að farga Akurey.
Fundargerðin samþykkt.
4.
Umhverfisnefnd - 43
Málsnúmer 1808006F
Fundargerðin samþykkt.
5.
Staða sveitarsjóðs 2018
Málsnúmer 201805075
Staða sveitarsjóðs fyrstu átta mánuði ársins 2018.
Ólöf fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs miðað við lok júlí. Staða málaflokka er í samræmi við áætlun.
6.
Fjárhagsáætlun 2019
Málsnúmer 201808068
Ólög gerði grein fyrir dagskrá vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
7.
Ársskýrsla HSU Hornafirði 2017
Málsnúmer 201808043
Matthildur fór yfir árskýrslu HSU á Hornafirði.
8.
Framkvæmd ljósleiðari á Mýrum og í Nesjum
Málsnúmer 201807037
Ólöf gerði grein fyrir stöðu málsins.
9.
Ritun fundargerða bæjarstjórnar
Málsnúmer 201808050
Breyting á ritun fundargerða mun verða þannig að ekki verði ritað beint upp eftir ræðum bæjarfulltrúa.
10.
Yfirlýsing um uppsögn samnings
Málsnúmer 201808070
Vísað til fræðslustjóra.
11.
Ósk um samstarf og styrk: Dagur sjálfboðaliða og félagasamtaka á Höfn
Málsnúmer 201808069
Erindi frá Nýheimum þekkingarsetri dags 31. ágúst þar sem óskað er eftir styrk til að fjármagna viðburðinn, Dag sjálfboðaliða og félagasamtaka á Hornafirði.
Bæjarráð samþykkir að veita 350 þúsund kr. til verkefnisins sem verði tekið af óráðstöfuðu.
12.
Tilkynning um niðurfellingu Kvískerjavegar af vegskrá
Málsnúmer 201808060
Erindi Vegagerðarinnar dags. 22. ágúst 2018 um fyrirhugaða niðurfellingu Kvískerjavegar nr. 9861-01 af vegaskrá.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við áformin.
13.
Upplýsingabréf frá Félagi Hópferðaleyfishafa
Málsnúmer 201808063
Erindi frá Félagi Hópferðaleyfishafa dags. 23. ágúst 2018 lagt fram, þar sem félagið afhendir sveitarfélaginu afrit af bréfi til samgöngumálaráðherra. Vegna ólögmætra krafna Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga um rekstrarleyfissviptingu nokkurra hópferðarfyrirtækja.
Lagt fram.
Viðhengi
Bréf
14.
Beiðni um uppsetningu á auglýsingaskiltum
Málsnúmer 201809003
Erindi frá Körfuknattleiksdeild Sindra þar sem óskað er eftir að auka við auglýsingaskilti og setja heiti styrktaraðila á íþróttahúsið.
Bæjarráð samþykkir beiðnina frá Körfuknattleiksdeildinni.
15.
Skotfélag A-skaftafellssýslu óskar eftir samstarfi
Málsnúmer 1808059
Erindi frá Skotfélagi Austur-Skaftafellssýslu dags. 28. ágúst þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um uppbyggingu á nýju æfingasvæði fyrir unglingalandsmót.
Bæjarráð hafnar erindinu.
16.
Umsókn um lóð: Miðós 8A
Málsnúmer 201808053
Umsókn RARIK ohf. um lóð að Miðósi 8 A lögð fram.
Vísað til skipulagsnefndar.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa Litlahorn
Málsnúmer 201805036
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 7. maí 2018 þar sem óskað er eftir umsögn vegna útgáfu rekstarleyfis til sölu veitinga í í flokki II frá Litlahorni ehf.
Frestað til næsta fundar.
18.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarður 2018
Málsnúmer 201804010
Sæmundur óskaði eftir að fundargerðir Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráðs verði kynntar fyrir atvinnumálanefnd.
Ásgrímur bókar, óskar eftir að deiliskipulagsvinna sem á sér stað við Jökulsárlón verði kynnt fyrir kjörnum fulltrúum.
Matthildur greindi frá undir liðnum Þjóðgarðsstofnun, að umsagnarferli líkur þann 5. september og fór yfir efni fundar sem var í dag með umhverfisráðherra um málið.
Fundargerðin lögð fram.