Bæjarráð Hornafjarðar
870. fundur
24. september 2018
kl.
16:00
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 44
Fundargerð samþykkt.
2.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 300
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 48
Fundargerð samþykkt.
4.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs - 83. fundur
Fundargerð samþykkt.
5.
Fjárhagsáætlun 2019
Ólöf gerði grein fyrir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð óskar eftir fleiri útfærslum v. lækkunar fasteignaskatts.
Bæjarráð óskar eftir fleiri útfærslum v. lækkunar fasteignaskatts.
6.
Ráðning framkvæmdastjóra HSU Höfn
Ásgerður og Matthildur viku af fundi undir þessum lið. Ólöf Ingunn fjármálastjóri hefur haft umsjón með ráðningaferlinu.Umsækjendur um stöðu framkvæmdastjóra voru sjö en tveir drógu umsókn sína tilbaka. Arnfríður Silja Gylfadóttir, hjúkrunarfræðingur.Berglind Ólafsdóttir, ráðgjafi.Guðbjörg Ómarsdóttir, sérfræðingur.Guðrún Dadda Ásmundardóttir, forstöðumaður.Gunnar Örn Reynisson, framkvæmdastjóri.Niðurstaða faglegs mats Capacent er að Guðrún Dadda Ásmundardóttir er hæfust til starfsins sbr. meðfylgjandi greinargerð.
Bæjarráð er sammála um að ráða Guðrúnu Döddu Ásmundardóttur í starf framkvæmdastjóra HSU á Höfn.
7.
Málefni sláturhúss á Höfn
Erindi frá Sláturfélaginu Búa dags. 20. september með ályktun aðalfundar sláturfélagsins þar sem kemur fram að Norðlenska hyggst hætta slátrun stórgripa og ákvörðun verði tekin á næstu vikum um hvort sauðfjárslátrun muni fara fram í haust. Einnig kemur fram í ályktuninni að yfirgnæfandi líkur eru á að ekki verði slátrað á vegum Norðlenska á næsta ári. Fundurinn skorar á stjórn Búa að leita allra leiða til að tryggja áframhaldandi rekstur sláturhúss á Höfn.
Eiríkur og Hermann gerðu grein fyrir stöðu sláturhúss á Höfn.
8.
Mikligarður
Menningarmálanefnd lagði til á fundi sínum þann 18. september að bæjarráð fái verkfræðistofu til að kanna kostnað við að lyfta Miklagarði.
Bæjarráð samþykkir að leita til verkfræðistofu til að láta kanna kostnað við að lyfta Miklagarði.
Fjármunir verða teknir af óráðstöfuðu.
Fjármunir verða teknir af óráðstöfuðu.
9.
Skólagjöld Tónskóla 2019
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til 5% hækkun skólagjalda Tónskólans á árinu 2019 til þess að ná því markmiði að skólagjöld standi undir rekstrarkostnaði þegar laun og innri leiga eru undanskilin. Með því er náð markmiðum 11. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.
Bæjarráð samþykkir gjaldskránna.
10.
Gjaldskrá sundlaugar 2019
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að hækka staka tíma úr kr. 900 í kr. 950, barnagjald úr kr. 200 í kr. 250, fjölskylduverð úr kr. 2.000 í kr. 2.200- og árskort fullorðinna úr kr. 29.800 í kr. 31.000- Aðrir liðir verði ekki hækkaðir.
Bæjarráð samþykkir gjaldskránna.
11.
Persónuverndarstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Bæjarráð samþykkir að vísa persónuverndarstefnu sveitarfélagsins til afgreiðslu í bæjarstjórn.
12.
Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
13.
Tilraunaverkefni til byggingar á íbúðum
Bæjarstjóra falið að senda umsókn til Íbúðalánasjóðs.
14.
Beiðni um endurnýjun samnings milli Sveitarfélagsins og Björgunarfélagsins á Höfn
Erindi frá Björgunarfélaginu á Höfn dags. 17. september, þess efnis að samningur við sveitarfélagið rennur út í árslok 2018.
Starfsmönnum falið að fara yfir og vinna að nýjum samningi.
15.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
16.
VÍS: Lokun skrifstofu á Hornafirði
Vátryggingafélag Íslands sendi frá sér tilkynningu þess efnis að skrifstofu félagsins verði lokað á Höfn.Sveitarfélagið er með allar tryggingar hjá VÍS.
Bæjarráð harmar lokun skrifstofu VÍS á Höfn og felur starfsmönnum að vinna að útboði á öllum tryggingum sveitarfélagsins.
17.
Fræðslunetið: leiga í Nýheimum
Bæjarstjóri fór yfir samskipti við Fræðslunetið.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
18.
Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga 2018
Starfsmönnum falið að senda kjörbréf til SASS.
19.
Fundargerðir HAUST 2018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Umsögn um útgáfu leyfa Nemendafélag FAS
Erindi Sýslumannnsins á Suðurlandi dags. 17. september þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi í Sindrabæ þann 21. september.
Bæjarráð afgreiddi umsögnina í gegn um síma og gaf jákvæða umsögn.