Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

871. fundur
1. október 2018 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Ásgrímur Ingólfsson 1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 209
Málsnúmer 1809009F
Umræður um viðhaldsþörf á Birni Lóðs. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2019.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fjárhagsáætlun 2019
Málsnúmer 201808068
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun 2019 og mismunandi útfærslur á álagningu fasteignaskatts.
Sæmundur undrar sig á því að til standi að taka 100 milljón kr lán fyrir framkvæmdum á sama tíma og til stendur að lækka fasteignaskatt úr 0.5% niður í 0.45%. Með þessu er ekki verið að nýta þá tekjustofna sem sveitarfélagið hefur rétt á, heldur verið að uppfylla loforð um skattalækkun og varpa því til framtíðar að borga.
Meirihluti bæjarráðs bendir á að tekjur af fasteignaskatti hækka um 9% á milli ára að öllu óbreyttu. Því er meirihlutinn ákveðinn í að skila hluta af þessari hækkun til íbúanna og lækka fasteignaskatt um 10%. Það er skoðun núverandi meirihluta að þetta sé sanngjarnasta leiðin til að allir íbúar njóti góðs af.
3.
Fasteignagjöld 2019
Málsnúmer 201806049
Farið yfir mismunandi sviðsmyndir af álagningu fasteignaskatts.
4.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201709281
Fjallskilasamþykkt sveitarfélagsins var send til umsagnar í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, ábendingar bárust frá ráðuneytinu og var brugðist við þeim.
Bæjarráð samþykkir að atvinnumálanefnd verði falið fullnaðarafgreiðsla fjallskilamála og felur starfsmönnum að vinna að viðauka við fjallskilasamþykkt.
5.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Bæjarstjóri greindi frá stöðu mála varðandi byggingu hjúkrunarheimilis. Samráðsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur gefið samþykki fyrir framkvæmdinni og boðaður hefur verið fundur á miðvikudaginn nk.
Bæjarráð fagnar því að skriður er kominn á málið.
6.
Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Málsnúmer 201803021
Lögð fram drög að lokaskýrslu með niðurstöðum stjórnsýsluúttektar. Vísað til áframhaldandi vinnu hjá bæjarstjóra.
7.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Erindi frá Norðlenska dags. 26. september þar sem óskað er eftir að leigja hluta af frystirými í vesturhluta af rýminu þar sem Matarsmiðjan er með aðsetur.
Bæjarráð samþykkir erindið. Starfsmönnum falið að ganga frá samningum við Norðlenska og ákvarða leiguverð.
8.
Beiðni: Salernishús verði fjarlægt
Málsnúmer 201809025
Bæjarráð samþykkir að fjarlægja salernishús. Áætlaður kostnaður er 625.000 kr. og verði tekinn af óráðstöfuðu.
9.
Útboð - Fráveita og vatnsveita Hagaleiru
Málsnúmer 201806013
Eitt tilboð barst í verkið, frá Rósaberg ehf. að fjárhæð 36.360.306 kr. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 34.333.000 kr. Bæjarráð felur starfsmönnum að ganga frá samningi við verktaka.
10.
Hraðatakmarkanir við Freysnes
Málsnúmer 201806030
Svar frá Vegagerðnni um staðfestingu á hraðatakmarkandi aðgerðum sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar við Freysnes.
Bæjarráð óskar eftir kostnaðarmati á uppsetningu og rekstri viðvörunarljósa.
11.
Öryggismyndavélar
Málsnúmer 201809071
Erindi frá lögreglunni á Höfn. Kynntar hugmyndir að kaupum á öryggismyndavélum við aðkomu að Höfn.
Bæjarstjóra falið að kanna málið frekar.
12.
Viðbragðsáætlun almannavarnarna
Málsnúmer 201809077
Drög að viðbragðsáætlun lögð fram.
Lög fram lokadrög að viðbragðsáætlun um samfélagsleg áföll. Vísað til áframhaldandi vinnu og yfirlestrar hjá starfsmönnum.
13.
Fjármálaráðstefna 2018 - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 201809057
Fjármálaráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldin dagana 11.-12. október.
Aðalfulltrúar bæjarstjórnar, bæjarstjóri og fjármálastjóri fara á ráðstefnuna.
14.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 10.okt
Málsnúmer 201809081
Boð frá Samgöngu og sveitarstjórnarráðuneytinu á ársfund Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
15.
Fundargerðir: stjórnar og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarður 2018
Málsnúmer 201804010
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Málsnúmer 201801057
Lagt fram til kynningar.
17.
Stekkaklettur: framtíðarstefna
Málsnúmer 201809041
Sveitarfélagið hefur ákveðið að auglýsa húsnæðið að Stekkakletti til leigu.
Lögð fram drög að auglýsingu.
Bæjarráð samþykkir framlagða auglýsingu og felur starfsmönnum að senda hana til birtingar.
18.
Samgönguáætlun 2019?2023
Málsnúmer 201810001
Bæjarráð gerir alvarlegar athugasemdir við og lýsir miklum vonbrigðum yfir að vegstytting yfir Hornafjarðarfljót (hringvegur um Hornafjörð) skuli ekki vera að fullu fjármögnuð á þessari áætlun og að framkvæmdum verði frestað til 2021. Það hefur verið einhugur í bæjarstjórnum undanfarinna ára um framkvæmdina. Margra ára undirbúningsvinnu er lokið og framkvæmdaleyfi hefur verið gefið út.
Bæjarráð skorar á samgönguráðherra og þingmenn að endurskoða framlagða áætlun.