Bæjarráð Hornafjarðar
873. fundur
15. október 2018
kl.
16:00
-
17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2019
Farið yfir stöðu framkvæmda og áætlaðar framkvæmdir ársins 2019.
2.
Ósk um styrk til miðlunar
Erindi frá Ungmennafélaginu Sindra þar sem óskað er eftir samstarfi um kaup á upptökubúnaði. Vísað til áframhaldandi vinnu og skoðunar hjá starfsfólki.
3.
Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/2019
Starfsmönnum falið að senda inn umsókn um byggðakvóta.
4.
Fyrirspurn um tannlæknaaðstöðu í nýju hjúkrunarheimili
Erindi frá Héðni Sigurðssyni þar sem vakin er athygli á þörf fyrir tannlæknaaðstöðu í nýju hjúkrunarheimili.
Vísað til stýrihóps um undirbúning byggingar nýs hjúkrunarheimilis.
Vísað til stýrihóps um undirbúning byggingar nýs hjúkrunarheimilis.
5.
Nýr lóðarsamning og ósk um stækkun á lóð: Bogaslóð 4
Vísað til skipulagsnefndar.
6.
21. ársfundur Umhverfisstofnunar 8.nóvember 2018
7.
Rekstrarstyrkur til Kvennaathvarfsins fyrir árið 2019
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2019.
8.
Fundargerðir: stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018
Fundargerð lögð fram til kynningar. Á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri 26.-28. september sl. var Ásgerður K. Gylfadóttir formaður bæjarráðs kjörin í stjórn sambandsins til næstu fjögurra ára. Bæjarráð óskar Ásgerði innilega til hamingju með kjörið.
9.
Akurey
Bæjarráð felur umsjónamanni eigna og framkvæmda að leita tilboða í förgun Akureyjar.
10.
Álagningareglur 2019
Rætt um forsendur og mögulegar breytingar á álagningarreglum. Ákvörðun þarf að liggja fyrir við fyrstu umræðu fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn í nóvember.
11.
Umsögn: Tillaga til þingsályktunar um stofnun ráðgjafastofu innflytjenda, 19. mál.
Bæjarstjóra og verkefnastjóra fjölmenningar falið að senda inn umsögn.
12.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri fór á fund stýrihóps um byggingu hjúkrunarheimilis á Hornafirði. Þar sem dregist hefur að nýr framkvæmdastjóri HSU Hornafirði hefji störf er óskað eftir skipun annars fulltrúa frá Hornafirði í hópinn. Næsti fundur hefur verið boðaður 17. október.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og næstu skrefum.
Bæjarráð samþykkir að Ásgerður formaður bæjarráðs komi inn í stýrihóp um byggingu nýs hjúkrunarheimilis í stað framkvæmdastjóra HSU Hornafirði.
Bæjarráð samþykkir að Ásgerður formaður bæjarráðs komi inn í stýrihóp um byggingu nýs hjúkrunarheimilis í stað framkvæmdastjóra HSU Hornafirði.
13.
Tilkynning um niðurfellingu Hoffellsvegar af vegskrá
Sveitarfélagið Hornafjörður telur að ekki sé heimilt að fella Hoffellsveg nr. 984-01 af vegskrá á þeim rökum að ekki sé föst búseta fyrir hendi. Vegagerðin vísar í c lið 2. mgr. 8. gr. vegalaga nr. 80/2007 en þar segir:
"Héraðsvegir eru vegir sem liggja að býlum, starfrækslu atvinnufyrirtækja, kirkjustöðum,opinberum skólum og öðrum opinberum stofnunum utan þéttbýlis, eru ákveðnir í staðfestu skipulagi og taldir upp í vegaskrá. Landeigandi skal þó kosta og vera veghaldari síðustu 50m að framangreindum stöðum ef vegur endar þar.]1) Jafnframt er heimilt að taka í tölu héraðsvega vegi að sumarbústaðahverfum sem tengja að minnsta kosti 30 bústaði við þjóðveg."
Sveitarfélagið Hornafjörður vill benda á að við enda Hoffellsvegar er Hoffellskirkja staðsett. Þar er starfsemi sem uppfyllir ofangreind skilyrði.