Bæjarráð Hornafjarðar
875. fundur
26. október 2018
kl.
16:00
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 210
Fundargerð samþykkt.
2.
Útdráttur vegna umsóknar um Fákaleiru 1-3
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóða við Fákaleiru 1-3.
Tveir sóttu um lóðirnar, Guðmundur Ingvarsson og Mikael ehf. sóttu um lóðirnar.
Formaður bæjarráðs dró út lóðarumsækjanda og var Mikael ehf. dregin út.
Formaður bæjarráðs dró út lóðarumsækjanda og var Mikael ehf. dregin út.
3.
Fjárhagsáætlun 2019
Borgþór og Björn mættu á fundinn og fóru yfir ramma og stofnbúnaðaróskir fyrir árið 2019
Bæjarráð hvetur íbúa til að koma með ábendingar að smærri verkefnum fyrir árið 2019 í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is undnir þátttaka.
Umræður um samninga við félagasamtök. Styrkjaramma vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Umræður um samninga við félagasamtök. Styrkjaramma vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
4.
Unglingalandsmót 2019
Drög að samstarfssamningi vegna Unglingalandsmóts sem mun fara fram á Höfn um verslunarmannahelgina 2019 lagður fram.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
5.
Famlög sveitarfélaga til SASS
Framlög til SASS 2019 eru kr. 1.974 á íbúa m.v. annan ársfjórðung 2018.
Lagt fram til kynningar.
6.
Umsögn um frumvarp: tillaga um skráningu og mat fasteigna, 212. mál.
Vísað til starfsmanna að vinna að málinu.
7.
Tilkynning um niðurfellingu Einholtsvegar af vegskrá
Erindi frá Vegagerðinni dags.22. október þar sem kemur fram að vegagerðin mun fella Einholtsveg af vegaskrá þar sem ekki er lengur föst búseta fyrir hendi.
Frestað til næsta fundar.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa Lækjarhús
Erindi dags. 22. ágúst frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis flokki II fyrir Lækjarhús.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum um fjölda leyfilegra gistirýma á svæðinu.
9.
Öryggisstefna í tölvumálum
Grunnur að öryggisstefnu kynntur og vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og þjónustuaðila.
10.
Persónuverndarlög: innleiðing reglugerðar, starfshættir
Persónuvernd mun halda kynningu á persónuverndarlögum fyrir alla íbúa sveitarfélagsins á Hótel Höfn þann 12. nóvember kl. 12:00-14:00.
Bæjarráð hvetur alla til að mæta og kynna sér persónuverndarlögin.
Bæjarráð hvetur alla til að mæta og kynna sér persónuverndarlögin.
11.
Fyrirspurn um húsnæði: Hafnarbraut 25
Erindi frá Kíwanisklúbbnum Ós dags. 12. ágúst þar sem óskað er eftir að klúbburinn fái afnot á Hafnarbraut 25 þegar húsið losnar.
Ekki er ljóst hvenær húsið losnar, ef húsið verður nýtt áfram þá verður það auglýst.
12.
Heimahjúkrun og aðhlynning aldraðra í heimahúsum
Erindi dags. 10. október frá fundi aðstaðdendum aldraðra þar sem skorað er á bæjarstjórn sveitarfélagsins að bæta heilbrigðis- og félagsþjónustu við aldraða í sveitarfélaginu sem búa á eigin heimili.
Vísað til umfjöllunar í Heilbrigðis- og öldrunarnefnd og Félagsmálanefnd.
13.
Verkefnastjóri fjölmenningar
Bæjarráð lýsir ánægju með starf verkefnastjóra fjölmenningar sem hefur verið tilraunaverkefni frá 1. janúar 2018. Bæjarráð vill festa starfið í sessi með því að auglýsa það sem framtíðarstarf.
14.
Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Lagt fram til kynningar, jafnframt að ráðgjafar Capacent kynni lokaniðurstöðu fyrir starfsmönnum sveitarfélagsins. Bæjarstjóra falið að leita tilboða í ráðgjöf vegna mannauðsmála hjá sveitarfélaginu.
15.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Starfshópur um verkefnið lagði til við bæjarráð að semja við Spacescape um skipulagsvinnu við verkefnið.
Bæjarráð er ekki tilbúið að leggja út í þann viðbótarkostnað sem tilboðið hljóðar uppá.
Bæjarráð er ekki tilbúið að leggja út í þann viðbótarkostnað sem tilboðið hljóðar uppá.