Bæjarráð Hornafjarðar
876. fundur
5. nóvember 2018
kl.
16:00
-
17:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 57
Sæmundur gerði athugasemdir við staðsetningu á viðvörunarskiltum skv. ábendingum sem hann fékk frá íbúum.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fjárhagsáætlun 2019
Fundir um fjárhagsáætlun eru áætlaðir 20. og 23. nóvember. 20. nóvember kl. 17:00 á Hrollaugsstöðum kl. 20:00 í Hofgarði og 23. nóvember í Nýheimumm kl 12:00.
Fjárhagsáætlun vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
3.
Þriggja ára áætlun 2020-2022
Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
4.
Álagningarreglur 2019
Lögð fram eftirfarandi tillaga að álagningarreglum 2018:
Útsvar 14,52%.
Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,45% af fm (hám. 0,625%).
Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,65% af fm (hám. 1,65%).
Lóðaleiga 1% af lóðamati.
Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati.
Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati.
Sorpgjöld eru skv. gjaldskrá.
Samþykkt að vísa reglunum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

5.
Sorphirðudagatal 2018-2019
Bæjarráð óskar eftir að fá magntölur og samanburð á milli ára frá því að nýtt kerfi var tekið í notkun.
Sorphirðudagatali vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og umfjöllunar í umhverfisnefnd.
Sorphirðudagatali vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og umfjöllunar í umhverfisnefnd.
6.
Dagur ísl. tungu og heimsókn ráðherra
Dagur íslenskrar tungu, 16. nóvember 2018, verður haldinn hátíðlegur af mennta-og menningarmálaráðuneytinu á Höfn í Hornafirði í ár.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra mun veita verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og opna Nýyrðabanka sem unnin hefur verið af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Ráðherra og föruneyti mun heimsækja ýmsar stofnanir sem tengjast menntun og kl.16:00 verður hátíðardagskrá í Nýheimum sem er öllum opin.
Bæjarráð hvetur íbúa til að taka þátt í hátíðarhöldunum.

7.
Erindi til bæjarráðs varðandi Holt á Mýrum
Erindi frá Kvenfélaginu Einingu þar sem farið er yfir þær endurbætur sem þarf að framkvæma á félagsheimilinu Holti á Mýrum og óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um rekstur félagsheimilisins.
Bæjarráð þakkar kvenfélaginu fyrir erindið og vísar óskum um samstarf og ábendingum um framkvæmdir til vinnu starfsmanna og fjárhagsáætlunargerðar.
8.
Stekkaklettur: framtíðarstefna
Sæmundur vék af fundi, Sigrún Sigurgeirsdóttir var í síma undir þessum lið.
Tveir aðilar sendu inn umsókn um tillögu að nýtingu á Stekkakletti.
Bæjarráð felur starfsmönnum að meta tillögurnar með tilliti til auglýsingarinnar.
Bæjarráð felur starfsmönnum að meta tillögurnar með tilliti til auglýsingarinnar.
9.
Boð á umhverfisþing 9.nóv 2018
Vísað til umhverfisnefndar.
10.
Ársfundur Umhverfisstofnunar_ náttúruverndarnefnda_sveitarfélaga og náttúrustofu
Vísað til umhverfisnefndar.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa House on the hill
Vísað er til beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 12. september sl. um umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna umsóknar Standey ehf., kt. 521216-0850, Litlubrú 1, 780 Höfn, um rekstrarleyfi fyrir gististað á Fiskhól 11 á Höfn. Nánar tiltekið er sótt um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, sbr. 3. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald m.s.b. og 3. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald m.s.b.
Húsið á Fiskhól 11 er skráð sem einbýlishús og er húsið staðsett á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði samkvæmt Aðalskipulagi Hornarfjarðar 2012-2030. Íbúðasvæði er skilgreint sem svæði fyrir íbúðarhúsnæði og nærþjónustu sem því tengist, auk minniháttar atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu eftir því sem nánar er kveðið á um í stefnu skipulagsins, sbr. 6.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Með hliðsjón af öllu framangreindu er ljóst að gisting í flokki II samkvæmt lögum nr. 85/2007 rúmast ekki innan íbúðarsvæðis. Gisting í flokki II fellur ekki undir minniháttar atvinnustarfsemi, líkt og heimagisting í flokki I, enda er slík starfsemi stunduð allt árið um kring og ekki háð neinum takmörkunum um útleigu eða samanlagðar tekjur.
Á svæðinu er í gildi deiliskipulag tjaldsvæðis og íbúðarsvæðis við Fiskhól, sem tók gildi 22. febrúar 2017. Ekkert deiliskipulag var í gildi fyrir gildistöku núverandi deiliskipulags. Var tilgangur deiliskipulagsins aðallega að staðfesta þá landnotkun sem fyrir var á svæðinu. Í deiliskipulaginu er ekki getið um heimild til reksturs gististaðar í flokki II á íbúðarsvæðinu.
Að öllu framangreindu virtu er umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar neikvæð við umsókn Standey ehf., dags. 3. september 2018, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II á Fiskhól 11.

12.
Umsögn um útgáfu leyfa Hraunhóll Apartment 218-0426
Vísað er í beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 4. júní sl. um umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna umsóknar frá Ólafi Jónssyni kt. 080673-5669 Hraunhól 4. Nánar tiltekið er sótt um rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II , sbr. 3. gr. laga nr. 85/2007 um veitinga, gististaði og skemmtanahald m.s.b.
Húsið á Hraunhól 4 er skráð sem einbýlishús og er húsið staðsett á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði skv. aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030.
Íbúðasvæði er skilgreint sem svæði fyrir íbúðarhúsnæði og nærþjónustu sem því tengist, auk minniháttar atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu eftir því sem nánar er kveðið á um í stefnu skipulagsins, sbr. 6.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Með hliðsjón af öllu framangreindu er ljóst að gisting í flokki II samkvæmt lögum nr. 85/2007 rúmast ekki innan íbúðarsvæðis. Gisting í flokki II fellur ekki undir minniháttar atvinnustarfsemi, líkt og heimagisting í flokki I, enda er slík starfsemi stunduð allt árið um kring og ekki háð neinum takmörkunum um útleigu eða samanlagðar tekjur.
Að öllu framangreindu virtu er umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar neikvæð við umsókn frá Ólafi Jónssyni kt. 080673-5669 Hraunhól 4, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II.

13.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.