Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

877. fundur
12. nóvember 2018 kl. 17:00 - 18:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Björgvin Óskar Sigurjónsson 2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 46
Málsnúmer 1810012F
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfisnefnd - 46
Málsnúmer 1811002F
Fundargerð samþykkt.
3.
Lóðaútdráttur Hagaleira 14
Málsnúmer 201810112
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóða við Fákaleiru 1-3.
Fjórar umsóknir bárust um lóðirnar eftirfarandi sóttu um lóð; Ágúst Elvarsson, Ingvar G. Snæbjörnsson, Guðmundur Ingvarsson og Guðrún Stefanía V. Ingólfsdóttir.
Sæmundur dró út lóðarumsækjanda og var Ingvar G. Snæbjörnsson dregin út.
4.
Humarhátíð 2018
Málsnúmer 201804060
Kristín og Kristín Vala fóru yfir Humarhátíð 2018 sem var haldin af áhugasömum einstaklingum og þótti takast mjög vel.
5.
Staða sveitarsjóðs 2018
Málsnúmer 201805075
Staða sveitarsjóðs fyrstu níu mánuði ársins 2018.
Ólöf fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs miðað við lok september. Staða málaflokka er í samræmi við áætlun.
6.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Málsnúmer 201709394
Skipulagsnefnd vísaði málinu til bæjarráð og lagði til að unnin verði viljayfirlýsing þar sem hótelbygging verði heimiluð að uppfylltum skilyrðum. Einnig lagði nefndin til að verkefninu verði gefinn 12 mánaðar frestur.
Vísað til starfsmanna til að kanna lögmæti málsins.
7.
Viðbragðsáætlun almannavarnarna
Málsnúmer 201809077
Unnið er að gerð viðbragðsáætlunar m.a. vegna sóttvarna. Óskað hefur verið eftir því að Mánagarður verði notaður ef kemur til viðbragða vegna sóttvarna.
Bæjarráð samþykkir að Mánagarður verði nýttur til viðbragða vegna sóttvarna.

8.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Ásgerður greindi frá stöðu mála við undirbúnings vegna byggingu nýs hjúkrunarheimilis.
9.
Opið bréf til bæjarráðs
Málsnúmer 201811013
Erindi frá þjónustuþegum og starfsfólki við frekari liðveislu lagt fram.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu og vinna áfram að málinu.
10.
Málþing um stöðu eldri borgara
Málsnúmer 201811019
Ósk um að haldið verði málþing um stöðu eldri borgara
Vísað til heilbrigðis- og öldrunarnefndar.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Jöklaveröld Hoffelli
Málsnúmer 201810064
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 22. október, þar sem óskað er eftir umsögn vegna gistinga í flokki IV fyrir Jöklaveröld ehf.
Björgvin vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
12.
Landfræðileg upplýsingagögn sveitarfélaga
Málsnúmer 201811020
Vísað til Skipulagsstjóra.
13.
Tilkynning um niðurfellingu Einholtsvegar af vegskrá
Málsnúmer 201810076
Erindis Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar niðurfellingar á Einholtsvegi nr. 9819-01 dags. 22. október 2018.
Sveitarfélagið Hornafjörður telur að ekki sé heimilt að fella Einholtsveg nr. 9819-01 af vegskrá á þeim rökum að ekki sé föst búseta á fyrir hendi.
Við enda Einholtsvegar nr. 9819-01 er Einholt staðsett. Samkvæmt upplýsingum þjóðskrár er föst búseta í Einholti.