Bæjarráð Hornafjarðar
878. fundur
19. nóvember 2018
kl.
16:00
-
20:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Björgvin Óskar Sigurjónsson
2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Ráðgjafar Capacent kynntu niðurstöðu stjórnsýsluúttektarinnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra.
2.
Ríki Vatnajökuls 2018
Erindi frá Ríki Vatnajökuls dags. 24. september þar sem óskað er eftir endurnýjun og endurskoðun á samningi milli sveitarfélagsins og Ríki Vatnajökuls.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara í samningaviðræður við Ríki Vatnajökuls og leggja drög að samningi fyrir bæjarráð.
3.
Fjárhagsáætlun 2019
Tillögur að stofnbúnaði lagðar fram.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjárhagsáætlunar.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjárhagsáætlunar.
4.
Viðauki við fjárhagsáætlun
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dags. 7. nóvember þar sem óskað er eftir að sveitarstjórn sé upplýst um leiðbeinandi verklagsreglur um gerð viðauka við fjárhagsáætlun.
Lagt fram.
5.
Framkvæmd: Sjónarhóll /nýr Leikskóli á Höfn
Uppgjör á leikskólanum kynnt. Óskað er eftir auka fjármagni vegna breytinga á hljóðvist og í garði upp á 3.200 þús. Bæjarráð samþykkir að veita 3.200 þús. í breytingar á ofangreindum liðum og vísar þeim til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun.
6.
Stekkaklettur: framtíðarstefna
Lagt fram til kynningar bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Skólaganga utan lögheimilissveitarfélags
Bæjarráð samþykkir erindið.
8.
Málefni sláturhúss á Höfn
Sláturfélagið búi óskar eftir því að sveitarfélagið leggi til fjármagn í formi hlutafés inn í félagið.
Vísað til nánari vinnu bæjarstjóra.
9.
Reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til umsagnar
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa fyrir Hraunhól Apartment f.nr. 218-0424
Vísað er í beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 4. júní sl. um umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna umsóknar frá Ólafi Jónssyni kt. 080673-5669 Hraunhól 4. Nánar tiltekið er sótt um rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II , sbr. 3. gr. laga nr. 85/2007 um veitinga, gististaði og skemmtanahald m.s.b.
Húsið á Hraunhól 4 er skráð sem einbýlishús og er húsið staðsett á svæði sem skilgreint er sem íbúðarsvæði skv. aðalskipulagi Hornafjarðar 2012-2030. Íbúðasvæði er skilgreint sem svæði fyrir íbúðarhúsnæði og nærþjónustu sem því tengist, auk minniháttar atvinnustarfsemi sem samrýmist búsetu eftir því sem nánar er kveðið á um í stefnu skipulagsins, sbr. 6.2. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013. Með hliðsjón af öllu framangreindu er ljóst að gisting í flokki II samkvæmt lögum nr. 85/2007 rúmast ekki innan íbúðarsvæðis. Gisting í flokki II fellur ekki undir minniháttar atvinnustarfsemi, líkt og heimagisting í flokki I, enda er slík starfsemi stunduð allt árið um kring og ekki háð neinum takmörkunum um útleigu eða samanlagðar tekjur. Að öllu framangreindu virtu er umsögn Sveitarfélagsins Hornafjarðar neikvæð við umsókn frá Ólafi Jónssyni kt. 080673-5669 Hraunhól 4, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Lækjarhús
Erindi dags. 22. ágúst frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis flokki II fyrir Lækjarhús.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn með vísan í að skipulagsnefnd og bæjarstjórn hafa samþykkt að vinna að breytingu á gistiheimildum í aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030 í samræmi við breytingar á lögum og reglugerðum um veitingasölu, gistingu og skemmtanahald.
12.
Matís og matarsmiðjan
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
13.
Fræðslunetið: leiga í Nýheimum
Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að klára samning við Fræðslunetið.
14.
Færsla á ljósleiðara Borgartúni Öræfum
Vegna framkvæmda í Borgartúni Öræfum þarf að færa ljósleiðarastreng. Það felur í sér kostnað allt að 2,5 milljónir.
Bæjarráð samþykkir færslu á ljósleiðara og vísar málinu til gerðar viðauka.
15.
Humarhátíð 2018
Bæjarráð óskar eftir nánari gögnum.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og upplýsingum um hvað önnur sveitarfélög eru að veita í bæjarhátíðir.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og upplýsingum um hvað önnur sveitarfélög eru að veita í bæjarhátíðir.