Bæjarráð Hornafjarðar
880. fundur
3. desember 2018
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 47
Fundargerð samþykkt.
2.
Stekkaklettur: framtíðarstefna
Sæmundur vék af fundi og Sigrún Sigurgeirsdóttir var á fundinum undir þessu máli í síma. Tvær umsóknir bárust, frá Náttúrustofu Suðausturlands og Hlyni Pálmasyni.
Bæjarráð þakkar fyrir áhugaverðar umsóknir.
Bæjarráðs samþykkir að ganga til samninga við Hlyn Pálmason. Umsókn hans uppfyllti allar kröfur auglýsingarinnar og felur í sér nýnæmi og menningartengsl fyrir samfélagið.
Guðbjörg Lára óskaði eftir að samningur við Hlyn fái umsögn í bæjarráði áður en hann verður undirritaður.

3.
Fjárhagsáætlun 2019
Bæjarráð samþykkir að veita 750 milljónir í framkvæmdir og að hækka jólagjöf starfsmanna sveitarfélagsins í 10.000 kr. 2018 og 2019. Aukafjármagn í jólagjöf verður tekið af óráðstöfuðu fyrir árið 2018.
Vísað til nánari vinnu starfsmanna.
Vísað til nánari vinnu starfsmanna.
4.
Samningur milli íbúðafélagsins og sveitarfélagsins
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi þjónustusamning við Íbúðafélag Hornafjarðar. Gildistími samningsins er frá 1. desember 2018.
5.
Akurey
Verðkönnun vegna förgunar Akureyjar lögð fram.
Þrjú tilboð bárust: frá Rósaberg, Íslenska Gámafélaginu og Ólafi Halldórssyni.
Starfmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Fjármagnið verði tekið af rekstrarafgangi og förgunarsjóði.
Þrjú tilboð bárust: frá Rósaberg, Íslenska Gámafélaginu og Ólafi Halldórssyni.
Starfmönnum falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Fjármagnið verði tekið af rekstrarafgangi og förgunarsjóði.
6.
Stöðuleyfi: Aðstaða fyrir kajaksiglingar við Óslandsbryggju
Erindi dags. 20. nóvember frá Huldu Laxdal um beiðni til kajak siglinga og aðstöðubyggingu fyrir kajakræðara lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að veita leyfi fyrir kajak siglingum við Óslandsbryggju.
Ekki verður lagt fjármagn í frekari uppbyggingu á svæðinu að svo stöddu.
Ekki verður lagt fjármagn í frekari uppbyggingu á svæðinu að svo stöddu.
7.
Stöðuleyfisumsókn: fyrir matarvagn á móts við Gömlubúð
Erindi dags. 24. október frá Tuluníus ehf þar sem óskað er eftiir stöðuleyfi fyrir sölu/matarvagn.
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum frá umsækjanda.
8.
Stöðuleyfi: Umsókn um kofa/hýsi á torgi við Gömlubúð
Erindi frá Bergþóru Ó. Ágústsdóttur þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir kofa/hýsi við
Bæjarráð óskar eftir frekari gögnum frá umsækjanda.
9.
Auglýsing umsóknar um byggðarkvóta fiskveiðiársins 2018/2019
Lagt fram til kynningar.
10.
Til samráðs: Verkefni nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögn í samráði við bæjarráðsfulltrúa.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Ungmennafélagið Sindri
Erindi dags. 12. nóvember frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfis til áfengisveitinga fyrir Ungmennafélagið Sindra.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa Karlakórinn Jökull
Erindi dags. 27. nóvember frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfis til áfengisveitinga fyrir Karlakórinn Jökul.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
13.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Fundargerðin lög fram til kynningar.