Bæjarráð Hornafjarðar
881. fundur
10. desember 2018
kl.
20:00
-
23:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
2. varamaður
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd - 47
Farið yfir fundargerð.
Sæmundur óskar eftir samnaburðargögnum milli ára undir lið 6. Grænt bókhald.
Fundargerð samþykkt.
Sæmundur óskar eftir samnaburðargögnum milli ára undir lið 6. Grænt bókhald.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 47
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fjárhagsáætlun 2019
Farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið á fjárhagsáætlun milli umræðna ásamt forgangsröðun framkvæmda. Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022 til afgreiðslu í bæjarstjórn.
4.
Staða sorpmála
Umhverfisnefnd leggur til að sorphirðingu verði fjölgað í dreifbýli. Lagt er til að almenna tunnan verði tæmd á 3 vikna fresti og endurvinnslutunnan verði tæmd á 6 vikna fresti.
Bæjarráð óskar eftir frekari skoðun á sorpmálum í dreifbýli áður en ákvörðun um fjölgun ferða verði tekin. Tunna undir endurvinnanlegt sorp er helmingi stærri í dreifbýli en í þéttbýli sem ætti að duga heimilum í sveitum miðað við núverandi hirðingatíðni.
5.
Íbúafundur í Nesjum vegna gatnagerðar
Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að unnið verði að hreinsunarátaki í Nesjum í samráði við íbúa.
Bæjarráð tekur undir tillögur umhverfisnefndar og stefnir á hreinsunarátak í vor.
6.
Náttúrustofa Suðausturlands: Samningur
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn um fyrirliggjandi drög að rekstrarsamningi milli sveitarfélaga annars vegar og Umhverfis- og auðlindaráðuneytis hins vegar um samning um rekstur Náttúrustofa.
7.
Humarhátíð 2018
Skoðaður var samanburður á framlögum sveitarfélaga til bæjarhátíða.
Bæjarráð samþykkir 1 mkr. hækkun á framlagi til humarhátíðarnefndar 2019. Fjármagn verði tekið af rekstrafgangi.
Bæjarráð samþykkir 1 mkr. hækkun á framlagi til humarhátíðarnefndar 2019. Fjármagn verði tekið af rekstrafgangi.
8.
Styrkbeiðni: Bændur græða landið 2018
Bæjarráð samþykkir umbeðinn styrk að fjárhæð 54.000 kr sem tekið verði af rekstrarafgangi ársins.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa Kartöfluhúsið ehf
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
10.
Hugmyndir um uppbyggingu í ferðaþjónustu á Höfn
Á fundi sínum 7.11.2018 sl. lagði skipulagsnefnd til að unnin verði viljayfirlýsing þar sem hótelbygging verði heimiluð að uppfylltum skilyrðum. Einnig lagði nefndin til að verkefninu verði gefinn 12 mánaðar frestur.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir tillögu skipulagsnefndar og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Guðbjörg Lára Sigurðardóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Guðbjörg Lára setur sig á móti viljayfirlýsingu varðandi byggingu hótels á vesturenda hafnarsvæðisins. Búið er að skipuleggja lóðir fyrir svona starfsemi rétt vestan við þetta svæði með stórkostlegu útsýni yfir fjörðinn og jöklana. Það er varhugavert þegar verið er að breyta deiliskipulögum sem lagt hefur verið fjármagn og vinnu í eftir hentisemi fjáraðila. Þetta er mjög mikilvægt svæði miðbæjar Hafnar. Hafnarstjórn hefur sett sig á móti þessari tillögu og því hefur ekki verið virt að vetthugi og telur Guðbjörg Lára að þessi bygging þrengi að atvinnustarfsemi hafnarsvæðisins.
Á teikningum er ekki gert ráð fyrir bílastæðum fyrir hótelið og sér hún ekki í hendi sér að þessi lóð og svæði hafi rými til að hýsa stæði hótel. Einnig er útlit hótelsins ekki í samræmi við hugmyndina Hafnarvík Heppa, uppbygging gamalla bygginga á Hafnarsvæðinu í sem upprunalegustum stíl.
Þá má nefna að lykt frá hafnarvinnslu er óumflýjanleg og dæmi hafa sýnt víðsvegar um landið að það hefur alltaf haft í för með sér óánægju íbúa og gesta á þeim svæðum sem hefur verið byggt í kring um starfsemi sem lykt fylgir."

11.
Golfklúbbur Hornafjarðar: Samstarfssamningur 2018
Sæmundur vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir hækkun á framlagi til Golfklúbbsins um 1 mkr. á ári. Bæjarráð hvetur golfklúbbinn að huga betur að barna- og unglingastarfi.
Fræðslustjóra falið að klára samningagerð.
Bæjarráð samþykkir hækkun á framlagi til Golfklúbbsins um 1 mkr. á ári. Bæjarráð hvetur golfklúbbinn að huga betur að barna- og unglingastarfi.
Fræðslustjóra falið að klára samningagerð.
12.
Umf. Sindri: Samstarfssamningur 2018
Lagt til að semja til eins árs og nýta næsta ár í að endurskoða fyrirkomulag samnings. Lagt til að hækka grunnstyrk miðað við vísitölu og setja aukið fjármagn í leikjanámskeið og 17. júní hátíðarhöld.
Sæmundur tók aftur sæti á fundinum.
Ásgrímur vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlengingu á núgildandi samningi til eins árs þar sem grunnfjárhæð samnings er hækkuð miðað við þrónun vísitölu neysluverðs frá apríl 2015. Einnig samþykkir bæjarráð að hækka framlag vegna umsjónar með 17. júní hátíðarhöldum 2019 uppí 800 þkr. Þá samþykkir bæjarráð hækkun á framlagi til leikjanámskeiða 2019 uppí 1,5 mkr.
Fræðslustjóra falið að ganga frá samningi og vinna að heildarendurskoðun samnings við Ungmennafélagið á árinu 2019.

13.
Ósk um styrk til miðlunar
Ungmennafélagið Sindri óskar eftir styrk til kaupa á upptökubúnaði.
Ásgrímur vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð felur starfsmönnum að skoða rammasamningsverð á upptökubúnaði.
Bæjarráð felur starfsmönnum að skoða rammasamningsverð á upptökubúnaði.
14.
Sindrabær: Húsvarsla og ræsting
Ásgrímur tók aftur sæti á fundinum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðu á fundinum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræðu á fundinum.
15.
Almenningssamgöngur á Suðurlandi
Minnisblað SASS um rekstur almenningssamgangna á Suðurlandi lagt fram til kynningar. Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála. Grafalvarleg staða er komin upp og ljóst að almenningssamgöngur munu leggjast af á Suðurlandi árið 2019 ef ekki verður brugðist við. Bæjarráð hvetur SASS og Vegagerðina að vinna fljótt og farsællega að framtíð almenningssamgangna á Suðurlandi.