Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

883. fundur
7. janúar 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Ásgrímur Ingólfsson 1. varamaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 212
Málsnúmer 1812010F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 51
Málsnúmer 1811006F
Fundargerð samþykkt.
3.
Færni til framtíðar
Málsnúmer 201812066
Fræðslunefnd hvetur til þess að sveitarfélagið bjóði öllum foreldrum á Hornafirði upp á uppeldisnámskeiðið "Færni til framtíðar", þeim að kostnaðarlausu.
Bæjarráð samþykkir að bjóða upp á fjögur námskeið á árinu 2019 fyrir foreldra barna á leikskólaaldri, foreldrum að kostnaðarlausu.
4.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 201709466
Velferðarráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður boða til opinnar hönnunarsamkeppni um nýbyggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í tengslum við núverandi hjúkrnarheimili Skjólgarð.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum með ráðuneytinu.
5.
Bílklippur fyrir Slökkvilið Hornafjarðar í Öræfum
Málsnúmer 201901005
Erindi frá Slökkviliði Hornafjarðar í Öræfum þar sem óskað er eftir fjárveitingu til að kaupa bílklipppur og búnað þann sem þeim fylgir.
Steinþór gerði grein fyrir mikilvægi þess að hafa klippur í Öræfunum.
Bæjarráð samþykkir kaup á nýjum klippum að upphæð 3.5 milljón án vsk.
Fjármagnið verði tekið af rekstarafgangi ársins 2019.
6.
Eftirlitsbifreið fyrir slökkvilið Hornafjarðar
Málsnúmer 201901019
Steinþór gerði grein fyrir þörf á tækjakosti slökkviliðsins.
Bæjarstjóra og slökkviliðstjóra falið að fara yfir brunavarnaráætlun sveitarfélagsins fyrirliggjandi ósk vísað í þá vinnu.
7.
Vatnasvæðanefnd: Ósk um fulltrúa frá sveitarfélaginu
Málsnúmer 201812085
Erindi frá Umhverfisstofnun dags. 14. desember þar sem óskað er eftir tilnefningu frá sveitarfélaginu um fulltrúa í vantasvæðanefnd í samræmi við lög nr. 36/2011.
Bæjarráð leggur til að Finnur Torfason formaður umhverfisnefndar verði tilnefndur fyrir hönd sveitarfélagsins.
8.
Undanþágulisti - verkfallsheimild
Málsnúmer 201901004
Samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er lagður fram listi yfir þá starfsmenn sveitarfélagsins sem ekki hafa verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir framlagðan lista og vísar málinu í lögformlegt ferli.
9.
Starfshópur um endurskoðun kosningalaga - ósk eftir athugasemd
Málsnúmer 201812101
Erindi frá starfshópi um endurskoðun kosningalaga dags. 19. desember 2018. Óskað er eftir athugasemdum við þá hugmynd að sett verði heildar löggjöf um framkvæmd kosninga.
Lagt fram til kynningar.
10.
Auglýsing umsóknar um byggðarkvóta fiskveiðiársins 2018/2019
Málsnúmer 201810030
Jákvætt svar barst frá ráðuneytinu vegna beiðni sveitarfélagsins um framlengingu á byggðarkvóta frá 2018.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Málsnúmer 201801057
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Heilsuefling starfsmanna sveitarfélagsins
Málsnúmer 201711006
Breytingar á reglum um heilsueflingu starfsmanna lagðar fram, skv. ráðleggingum frá endurskoðanda sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi reglur um heilsueflingu starfsmanna sveitarfélagsins.