Bæjarráð Hornafjarðar
884. fundur
14. janúar 2019
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
1. varamaður
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 305
Bæjarráð óskar eftir greiningu á húsnæðiskerfi sveitarfélagsins, hvaða eignir eru leigðar út annars vegar í félagslega kerfinu og hins vegar í almenna.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Skipulagsnefnd - 48
Farið yfir fundargerð. Umræður um breytingu á ferðaþjónustukafla Aðalskipulags Hornafjarðar 2012-2030.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
3.
Reglur um foreldragreiðslur
Reglur sveitarfélagsins um foreldragreiðslur féllu úr gildi í júlí 2018.
Bæjarráð óskar eftir nánari greiningu fræðslustjóra og félagsmálastjóra á biðlista eftir leikskólaplássi og eftir plássi hjá dagforeldrum.
4.
Ný reglugerð um jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
5.
Lausaganga búfjár
Borist hafa ábendingar um að lausaganga á stórgripum sé ábótavant og að samþykktir sveitarfélagsins takmarki ekki lausagöngu nema að hluta í sveitarfélaginu.
Starfsmönnum falið að vinna að málinu.
6.
Fyrirspurn um sorp á víðavangi í Lóni
Umhverfisfulltrúa falið að skoða málið og svara erindinu.
7.
FAS: List- og verknámshús
FAS hefur fengið styrk frá Menntamálaráðuneytinu í gerð þarfagreiningar vegna lista- og verknámsaðstöðu við skólann. FAS mun setja á stofn starfshóp sem mun halda utan um vinnuna og óskar eftir fulltrúa sveitarfélagsins í þá vinnu.
Bæjarráð samþykkir að Ragnhildur Jónsdóttir fræðslustjóri taki sæti í starfshópnum.
8.
Lýsing á leiksvæði
Starfsmönnum falið að skoða mögulegar lausnir til að bæta öryggi og aðstæður á leiksvæðinu við enda Heiðarbrautar og Hólabrautar.
9.
Umsókn um útgáfu leyfa Þorrablótsnefnd Suðursveit og Mýra
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Þorrablót Nesja- og Lónmanna
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
11.
Fundargerðir stjórnar Nýheima 2018
Lagt fram til kynningar.
12.
Umsögn um frumvarp: Hornafjarðarflugvöllur mál nr. 149
Sett á dagskrá bæjarráðs þar sem þingsályktunartillagan hefur enn ekki fengið umræðu á alþingi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ítreka fyrri bókanir bæjarráðs og bæjarstjórnar við þingmenn og forseta Alþingis.
13.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Lagt fram til kynningar.