Bæjarráð Hornafjarðar
885. fundur
21. janúar 2019
kl.
16:00
-
18:22
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
formaður
Páll Róbert Matthíasson
varamaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Menningarmálanefnd - 49
Fundargerðin samþykkt.
2.
Lóðaútdráttur: Hagaleira 13
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóðar við Hagaleiru 13. Tvær umsóknir bárust.
Tvær umsóknir bárust umsækjendur eru: Claudia Maria Hildeblom og
Bjarni Malmquist Jónsson. Erla Þórhallsdóttir dró út lóðarumsækjendur og var Bjarni Malmquist Jónsson dregin út.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni til Bjarna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.
Malbikunarframkvæmdir 2019
Gunnlaugur fór yfir framkvæmdaráætlun fyrir árið 2019.
4.
Óskað eftir samþykki sveitarfélagsins vegna sölu á Ægissíðu 9
Erindi frá eigendum Ægissíðu 9 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið samþykki fyrirhugaða sölu á eignum staðsettum á lóðinni fasteignanúmer f2217180, landnúmer L173361.
Bæjarráð samþykkir eigendaskipti að Ægissíðu 9.
5.
Umsókn um lóð: Álaleira 15
Umsókn Þórdísar Gunnarsdóttur um lóð að Álaleiru 15 lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Skemmdir á brú í Lónsöræfum
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.
7.
Djúpavogshreppur: samningur um urðun sorps
Bæjarstjóri gerir grein fyrir fundi með sveitarstjóra Djúpavogshrepps.
Samningi um urðun sorps í Lóni við Djúpavogshrepp var sagt upp árið 2016 í tengslum við breytingu á sorphirðu og urðun sorps í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að fylgja eftir uppsögn samningsins við Djúpavogshrepp þar sem líftími urðunarstaðarins í Lóni styttist hraðar en gert var ráð fyrir.
Bæjarráð óskar eftir tölulegum upplýsingum um magn á sorpi sem fer til urðunar og endurvinnslu frá árinu 2016.
Bókun E- lista, frá Sæmundi Helgasyni; honum finnist það kaldar kveðjur sem bæjarráð sendir nágrönnum í Djúpavogshreppi, að segja upp samningi um sorpurðun nánast fyrirvaralaust. Nær væri að miðla betur upplýsingum um aukningu á sorpmagni til íbúa, fyrirtækja í okkar sveitarfélagi og til Djúpavogshrepps hvaða ástæður liggja fyrir því að urðunarstaðurinn í Lóni fyllist mun hraðar en ráð var fyrir gert. Uppsögnin þarf að mati Sæmundar að byggja á tölulegum upplýsingum og rökum sem hægt er að draga af þeim.

8.
Tryggingar: verðkönnun
Samningur við VÍS lagður fram til kynningar.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa Góuhóf Öræfi
Erindi dags. 17. janúar frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tækifærisleyfis í Hofgarði fyrir Góuhóf.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
10.
Hafnarbraut 25
Bæjarstjóra falið að auglýsa húsið laust til afnota.
11.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Stefnt er að sameiningu atvinnu- og menningarmálanefndar, umhverfis- og skipulagsnefndar.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
12.
Kjarasamningar: viðræður 2019
Kjarasamningar sveitarfélaga við stéttarfélög renna út á þessu ári. Sveitarfélagið hefur þessu tengt sagt upp sérákvæði sjúkraflutninga við AfL Starfsgreinasamband.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.