Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

886. fundur
28. janúar 2019 kl. 16:00 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson varamaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 46
Málsnúmer 1901002F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 52
Málsnúmer 1901009F
Fundargerð samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 44
Málsnúmer 1901010F
Umræður um lið 2. undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis.
Framkvæmdastjóra falið að vinna að greinargerð um rekstrarkostnað fyrir sjúkrarými sem sér einingu fyrir fund með heilbrigðisráðherra þann 6. febrúar.
Fundargerð samþykkt.
4.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 213
Málsnúmer 1901011F
Fundargerð samþykkt.
5.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Lögð fram tillaga að verkáætlun og drög að íbúakönnun. Íbúakönnuninni vísað til umfjöllunar í fastanefndum sveitarfélagsins.
Starfsmanni falið að sækja um að halda lokaráðstefnu í haust.
6.
Bílastæði fyrir afþreyingarfyrirtæki á Höfn
Málsnúmer 1901098
Erindi frá ferðaþjónustuaðilum þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið útbúi bílastæði fyrir atvinnubíla.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar því til nánari útfærslu í skipulagsnefnd.
7.
Kjarasamningsumboð til Sambands sveitarfélaga
Málsnúmer 201901106
Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið skuldbindi sig til að afhenda Sambandi íslenskra sveitarfélaga upplýsingar um laun og önnur starfskjör starfsmanna sveitarfélagsins. Einnig heimilar sveitarfélagið að ópersónurekjanleg launagögn verði afhent viðkomandi heildarsamtökum launþega sem um það gera samkomulag við sambandið. Við vinnslu persónuupplýsinga ber bæði sveitarfélaginu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga að gæta að skilyrðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Sveitarfélagið Hornafjörður felur hér með Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningagerðar fyrir sína hönd.
8.
Vatnsveita: Eftirlitsskýrsla árið 2018
Málsnúmer 201901103
Vísað til skipulagsstjóra.
9.
Sjónarhóll: Ósk um aukið starfshlutfall í stoðþjónustu
Málsnúmer 201901073
Fræðslu- og tómstundanefnd styður ósk leikskólans um 50% aukningu á starfi í stoðþjónustunni.
Bæjarráð samþykkir að auka starfshlutfall stoðþjónustu um 50%. Fjármagn tekið af ramma leikskólans.
10.
Reglur um foreldragreiðslur
Málsnúmer 201901033
Bæjarráð samþykkir breytingar og framlengingu á reglum um foreldragreiðslur út árið 2019.
11.
Álit Samkeppniseftirlitsins
Málsnúmer 201812077
Lagt fram til kynningar.
12.
Héraðsskjalasafn:Skýrsla um starfsemi
Málsnúmer 201901006
Megin niðurstöður og athugasemdir skýrslunar kynntar en þær miðast við ákvæði laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn, reglna sem settar eru á grundvelli þeirra og reglugerðar nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn.
Skýrslunni vísað til umfjöllunar í menningarmálanefndar.
13.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Málsnúmer 201901095
Farið yfir samþykktir sveitarfélagsins þar sem lagt er til að sameina atvinnumálanefnd og menningarmálanefnd í atvinnu- og menningarmálanefnd annarsvegar og umhverfisnefnd og skipulagsnefnd í umhverfis- og skipulagsnefnd hinsvegar.
Sæmundur lýsir sig mótfallinn því að sameina umhverfisnefnd og skipulagsnefnd í eina nefnd vegna mikilvægi beggja málaflokka.
14.
Landskipti Grænahraun
Málsnúmer 201812078
Erindi frá eigendum jarðarinnar Grænahrauns Valdimars og Valþórs Ingólfsona þar sem óskað er eftir að jörðinni verði skipt upp.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Málsnúmer 201801057
Fundargerðin lögð fram til kynningar.