Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

887. fundur
4. febrúar 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson varamaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 58
Málsnúmer 1901008F
Fundargerð samþykkt.
2.
Áhaldahús, starfsmannamál
Málsnúmer 201901140
Ósk um aukin stöðugildi í Áhaldahúsi.
Bæjarráð samþykkir að auka stöðugildi um eitt árið 2019.
Fjármagn tekið af rekstarafgangi ársins og vísað í gerð viðauka.
3.
Stöðuleyfi: Umsókn um kofa/hýsi á torgi við Gömlubúð
Málsnúmer 201811038
Vísað til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.
4.
Stöðuleyfisumsókn: fyrir matarvagn á móts við Gömlubúð
Málsnúmer 201810088
Vísað til umfjöllunar í atvinnumálanefnd.
5.
Boðun á XXXlll.landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 201901133
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verður haldið 29. mars á Grand hóteli í Reykjavík.
Lagt fram til kynningar.
Fulltrúar sveitarfélagsins ásamt bæjarstjóra eru Ásgerður K. Gylfadóttir og Páll Róbert Matthíasson.
6.
Íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201902005
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um leiguverð íbúða sveitarfélagsins.
7.
Loftlagsverkefni - Mælingar
Málsnúmer 201902003
Bæjarráð óskar eftir kynningu á gagnagreiningu frá fyrirtækinu Klappir á næsta fundi.
8.
Ósk eftir viðræðum um vatnstankinn á Fiskhól
Málsnúmer 201805097
Erindi frá Magnúsi Guðjónssyni og Ragnari Péturssyni þar sem óskað er eftir að fá að leigja eða kaupa vatnstankinn á Fiskhóli.
Bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um núverandi stöðu vatnstanksins.
9.
Umsókn um lóð:Fákaleira 10 a
Málsnúmer 201901144
Umsókn Níels Brimars Jónssonar um lóð að Fákaleiru 10 c lögð fram.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðar og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa: Þorrablót eldri borgara:
Málsnúmer 201901130
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi dags. 28. janúar um tækifærisleyfi í Sindrabæ frá Félagi eldri borgara.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð hefur nú þegar afgreitt leyfið í gegn um tölvupóst.

11.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Málsnúmer 201901095
Starfsmanni falið að vinna að erindisbréfum fyrir almannavarnarnefnd, umhverfis- og skipulagsnefnd og atvinnu- og menningarmálanefnd.
Samþykktunum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
12.
Kynning 15.febrúar: Sveitarfélög og heimsmarkmið
Málsnúmer 201901142
Erindi frá forsætisráðuneytinu dags. 28. janúar, þar sem kynnt eru heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Sveitarfélög eru hvött til að senda fulltrúa sína á kynningarfund um heimsmarkmiðin og innleiða þau í starfi sínu til að skapa betra líf og umhverfi fyrir okkur öll.
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019
Málsnúmer 201901146
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Umsókn um styrk
Málsnúmer 201902010
Erindi frá Þórdísi Imsland þar sem hún óskar eftir styrk frá sveitarfélaginu vegna þátttöku í Söngvakeppni sjónvarpsins.
Bæjarráð samþykkir að styrkja Þórdísi um 50 þúsund kr. upphæðin verði tekið af óráðstöfuðu.