Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

888. fundur
11. febrúar 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og umhverfisfulltúi
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 49
Málsnúmer 1901015F
Máli nr. 12. fyrirspurn um breytingu á lóð: Hagaleira 14 1810089 vísað aftur til afgreiðslu í skipulagsnefnd.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti.
2.
Umhverfisnefnd - 48
Málsnúmer 1901013F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Hermann og Eiríkur gerðu grein fyrir rekstaráætlun vegna sláturhúss og aðkomu sveitarfélagsins að rekstri sláturhúss.
Bæjarráð er jákvætt fyrir samstarfi við Sláturfélagið Búa.
4.
Loftlagsverkefni - Mælingar
Málsnúmer 201902003
Starfsmanni falið að fá tilboð frá Klöppum á kerfi til mælinga á orkunotkun sveitarfélagsins.
5.
Styrkir bæjarráðs
Málsnúmer 201902036
Bæjarráð samþykkir að veita eftirfarandi aðilum styrki fyrir árið 2019.
Fuglaathugunarstöð 200.000.
Hollvinir Hornafjarðar
0.
Skógræktarfélag A. -Skaftafellssýslu 275.000.
Hirðingjarnir 125.000.
Umhverfissamtök A- skaft 100.000.
Vírdós 100.000.
785 FHM ehf. 125.000.
Björgunarsveitin Kári 475.000.
Lionsklúbbur Hornafjarðar 100.000.
Afhending styrkja fer fram þann 8. mars í Nýheimum.
6.
Umsókn um lóð: Fákaleira 11-13
Málsnúmer 201902031
Umsókn Mikaels ehf. um lóð að Fákaleiru 11 og 13 lögð fram.
Bæjarráð mælir með úthlutuninni og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
7.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Málsnúmer 201901095
Bæjarráð vísar samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarsfélagsins Hornafjarðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
8.
Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar
Málsnúmer 201902034
Vísað til atvinnumálanefndar og menningarmálanefndar til umsagnar.
9.
Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar
Málsnúmer 201902033
Vísað til umhverfisnefndar og skipulagsnefndar til umsagnar.
10.
Erindisbréf almannavarnarnefndar
Málsnúmer 201902035
Vísað til almannavarnarnefndarmanna til umsagnar.
11.
Ósk um nýtt örnefni: Heinabergslón og Hoffelslón
Málsnúmer 201901124
Erindi frá Vatnajökulsþjóðgarði fyrir hönd landeigenda Hoffells og Miðfells dags. 24. janúar. Óskað er eftir að lónið framan við Hoffellsjökul milli Geitafells og Öldutanga fái formlega nafnið Hoffellslón sem er nafnið sem það gengur undið í daglegu tali. Jafnframt er óskað eftir að lónið framan við Heinabergsjökul fái formlega nafið Heinabergslón sem er nafið sem það gengur undir í daglegu tali.
Bæjarráð samþykkir örnefnin Hoffellslón og Heinabergslón.
Vísað til starfsmanna að vinna áfram að málinu skv. lögum um örnefni nr. 22/2015.
12.
Fyrirspurn um kostnað v.Ice lagoon ehf
Málsnúmer 201810060
Erindi frá lögmanni Ice lagoon ehf. þar sem óskað er eftir upplýsingum um kostnað sveitarfélagsins vegna lögmannsþjónustu vegna aðgerða og tilrauna til stöðvunar atvinnurekstar Ice Lagoon ehf.
Bæjarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins falið að svara erindi lögmanns Ice lagoon ehf.