Bæjarráð Hornafjarðar
889. fundur
18. febrúar 2019
kl.
16:00
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri upplýsti að búið er að auglýsa hönnunarsamkeppni á nýju hjúkrunarheimili á Höfn.
Bæjarráð fagnar því að framgangur er á málinu.
Bæjarráð fagnar því að framgangur er á málinu.
2.
Málefni sláturhúss á Höfn
Sláturfélagið Búi óskar eftir að sveitarfélagið leggi til hlutafé.
Bæjarráð leggur til að veita allt að þriðjung hlutafés í Sláturfélagið Búa miðað við að heildarhlutafé sé 32 milljónir. Þetta vilyrði er veitt með þeim fyrirvörum að heildarhlutafjármögnun gangi upp, rekstaráætlun dags. 11.01. 2019 standist og sölusamningar náist.
3.
Loftlagsverkefni Landverndar, sveitarfélagsins og Sambandsins
Erindi frá Landvernd þar sem tilkynnt er að Landvernd hefur ekki lengur tök á að reka Loftslagsverkefni Landverndar. Ástæða þessarar ákvörðunar er sú að ekki fékkst áframhaldandi styrkur í verkefnið frá umhverfisráðuneytinu.Jafnframt er bent á að möguleiki er á að halda áfram í óformlegri samvinnu í samstarfi við Klappir ehf.
Bæjarráð harmar að ekki hafi fengist áframhaldandi styrkur frá umhverfisráðuneytinu í Loftlagsverkefni.
Starfsmanni falið að óska eftir skýringum frá umhverfisráðuneytinu.
Starfsmanni falið að óska eftir skýringum frá umhverfisráðuneytinu.
4.
Loftlagsverkefni - mælingar
Frestað.
5.
Humarhátíð 2019
Bæjarstjóra falið að ræða við humarhátíðarnefnd 2018.
6.
Lónsöræfi: skemmdir á brú
Bæjarstjóri gerði grein fyrir samskiptum við Vegagerðina vegna skemmda á göngubrú í Lónsöræfum. Brúin var byggð á kostnað Vegargerðarinnar og landeigenda til helminga árið 1953 og síðan hefur Vegagerðin viðhaldið brúnni. Kostnaður við að endurreisa brúnna er áætlaður á bilinu 15-20 milljóna.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Stjórn: Auglýsing eftir framboðum í stjórn
Erindi frá Lánasjóði Íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir framboðum í stjórn lánasjóðsins.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um lóð: Sæbraut
Umsókn um lóð frá Íslenska Gámafélagnu við Sæbraut.
Bæjarráð mælir með að veita lóðina til afnota tímabundið á samningstíma við Íslenska gámafélagið.
Vísað til skipulagsstjóra.
Vísað til skipulagsstjóra.
9.
Umsókn um lóð: Hagaleira 9
Umsókn Nínu Síbyl Birgisdóttur um lóð að Hagaleiru 9.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa Hafnarnes gistihús
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, beiðni um umsögn um rekstrarleyfi í flokki II fyrir Dímu ehf.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við útgáfu leyfisins.
11.
Ferðumst saman: stefna í almenningssamgöngum
Drög að stefnu í almenningssamgöngum liggur til umsagnar á samráðsgátt alþingis. Í stefnunni er lagt til að samþætta almenningssamgöngur og m.a. lagt til að leggja af ríkisstyrki á innanlandsflug til Hafnar því ekki er forsvaranlegt að vera með tvær ríkisstyrktar leiðir á sama áfangastað. Lögð áhersla á að styrkja almenningsvagna eingöngu.
Bæjarráð mótmælir harðlega þeim áformum sem koma fram í drögum að stefnu í almenningssamgöngum að leggja af ríkisstyrk á innanlandsflug til Hafnar í Hornafirði. Verði þetta að veruleika er veruleg hætta á að flugsamgöngur til Hafnar munu leggjast af. Fjöldi farþega í flugi til Hafnar hefur aukist frá árinu 2012. Hlutfall niðurgreiðslu á hvern farþega er lægstur á flugleiðinni til Hafnar af þeim leiðum sem eru ríkisstyrktar. Bæjarráð leggur áherslu á að drögin verði skoðuð gaumgæfilega og í samhengi við aðra stefnumótun s.s. byggðaráætlun 2018-2024 þar sem lagt er til að innanlandsflug verði raunhæfur kostur fyrir íbúa landsbyggðarinnar og samgönguáætlun 2019-2033 þar sem lögð eru fram markmið um að ferðatími innanlands til höfuðborgarinnar verði aldrei meira en 3,5 klst. Einnig væri áhugavert að fá upplýsingar um hvað ríkið fær til baka í formi skatta og gjalda af flugleiðinni.
Bæjarstjóra falið að senda umsögn um drögin í samráðsgátt Alþingis.
Bæjarstjóra falið að senda umsögn um drögin í samráðsgátt Alþingis.
12.
Málefni fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands
Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með forsvarsmönnum fuglaathugunarstöðvarinnar.
13.
Fundargerðir stjórnar SASS 2018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Reglugerð um húsnæðisáætlun
Vísað til félagsmálanefndar.