Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

890. fundur
26. febrúar 2019 kl. 14:30 - 16:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 53
Málsnúmer 1901017F
Fundargerð samþykkt.
2.
Menningarmálanefnd - 50
Málsnúmer 1902004F
Fundargerð samþykkt.
3.
Umf. Sindri: Ósk um sundkort fyrir meistaraflokka
Málsnúmer 201901101
Bæjarráð samþykkir að veita iðkendum 18 ára og eldri sem skráðir eru í meistarflokki Umf. Sindra og keppa á Íslandsmótum, gjaldfrjálsan aðgang að sundlaug Hafnar til reynslu árið 2019.
Aðgangurinn er gjaldfrjáls á undirbúnings- og keppnistímabili íþróttagreina og gildir því ekki allt árið um kring. Skilyrði fyrir gjaldfrjálsum aðgangi þessa hóps er að Umf. Sindri útbúi nafnalista fyrir starfsmenn sundlaugar ásamt afmörkun á undirbúnings- og keppnistímabili íþróttagreina. Í árslok verði gerð greining á hvernig nýtingin er.
4.
Fjölmenning
Málsnúmer 201902070
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að stofnaður verði fjölmenningarhópur sem sinni þessu hlutverki og til að vinna markvisst að framgangi fjölmenningar í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að hópurinn verði skipaður fulltrúum úr fræðslu- og tómstundanefnd, félagsmálanefnd, atvinnumálanefnd, menningarmálanefnd, heilbrigðis- og öldrunarnefnd og ungmennaráði. Hugmyndinni var vísað til nánari umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.
Bæjarráð vísar málinu til nánari útfærslu starfsmanna í velferðarteymi.
5.
Styrkja og úthlutunarreglur menningarmálanefndar.
Málsnúmer 201709143
Reglum um styrkjaúthlutun til menningarmála er skipt upp í tvennt verkefnastyrki og rekstarstyrki.
Bæjarráð vísar reglunum til umræðu í menningarmálanefnd, starfsmanni falið að bera umræður á fundinum undir nefndina.

6.
Ísland ljóstengt 2019 - Umsókn um styrk
Málsnúmer 201811065
Erindi frá Ísland ljóstengt þar sem boðið er að sveitarfélagið fái styrk allt að 60% heildarkostnaði við lagningu ljósleiðara á þá staði sem eftir á að fjármagna. Frestur til að þiggja boð sjóðasins er til kl. 12:00 8. mars.
Starfsmanni falið að staðfesta styrkinn.
7.
Íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 201902005
Starfsmönnum falið að vinna að sölu á eign sveitarfélagsins. Starfsmönnum falið að skoða markaðsverð leiguhúsnæðis í Öræfum og koma með tillögu að gjaldskrá.
8.
Stofnun vegsvæða vegna hringvegar um Hornafjarðarfljót
Málsnúmer 201711068
Óskað er eftir staðfestingu afsalsins hjá bæjarráði og bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir að afsal vegna vegsvæðis úr landi Hafnar land.nr. 218195 sem Vegagerðin gerði við landeigendur vegna byggingar Hringvegar um Hornafjarðrafljót. Heildarstærð hins nýja vegsvæðis er 55.872,3 fm.
Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
9.
Stefnumótun í málefnum barna
Málsnúmer 201902105
Erindi frá Ásmundi Einarssyni félags- og barnamálaráðherra þar sem hann boðar heildarendurskoðun barnaverndarlaga sem og endurskoðun á félagslegri umgjörð og stuðningi við börn á Íslandi með áherslu á snemmtæka íhlutun og samvinnu kerfa. Þeir sem hafa áhuga á að koma að vinnunni geta sent inn ábendinar.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálanefnd, fræðslu- og tómstundanefnd og ungmennaráðs.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa: Kvennakór Hornafjarðar
Málsnúmer 201902075
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 18. febrúar þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærilsleyfi til áfengisveitinga frá Kvennakór Hornafjaðar.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa Reynivellir 2
Málsnúmer 201809008
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi til sölu gistingar í flokki II frá Grænatangi ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa: Lionsklúbbur Hornafjarðar
Málsnúmer 201902072
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 14. febrúar þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærilsleyfi til áfengisveitinga frá Lionsklúbbi Hornafjaðar.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.