Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

893. fundur
18. mars 2019 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Erla Þórhallsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 306
Málsnúmer 1902009F
Umræður um notendaráð fatlaðs fólks.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 215
Málsnúmer 1903006F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hönnun: Víkurbraut 24 húsnæði málefna fatlaðs fólks
Málsnúmer 201802105
Minnisblað frá félagsmálastjóra lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að veita fjármuni í vetvangsferð, tekið af óráðstöfuðu.
4.
Upplýsingar um fjárhagsáætlun 2019
Málsnúmer 201903058
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dags. 12.03. 2019 lagt fram.
Lagt fram til kynnningar.
Fjármálastjóra falið að svara erindinu.
5.
Skúr við Áhaldahús
Málsnúmer 201903085
Skotfélagið óskar eftir afnotum á þurrsalerni sem stóð við Hrollaugshóla.
Bæjarráð samþykkir að veita Skotfélaginu heimild til afnota á húsinu.
6.
Lónsöræfi: skemmdir á brú
Málsnúmer 201901067
Bæjarstjóri greindi frá samskiptum við Vegagerðina og opinbera aðila vegna kostnaðar vegna byggingar á nýrri brú.
7.
Hafnarbraut 25
Málsnúmer 201901091
Tjón vegna Hafnarbrautar 25 er ekki bætt skv. upplýsingum frá tryggingafélagi sveitarfélagsins.
Húsið er metið ónothæft.
Starfsmönnum falið að kanna kostnað við að rífa og farga húsinu og svara umsækjendum.
8.
Stofnframlag - bygging eða kaup á almennum íbúðum
Málsnúmer 201903029
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Ekki verður sótt um stofnframlag á þessu ári.
9.
Götulýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201903086
Starfsmönnun falið að kanna rekstrarkostnað við götulýsingu í dag og hver hann mun verða eftir gjaldskrárhækkun í júlí 2019, kanna þörf á endurnýjun og reynslu annarra sveitarfélaga sem nú þegar hafa gert samning við Rarik.
10.
Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024
Málsnúmer 201903055
Sveitarfélögin á Suðurlandi eru beðin um að tilnefna fjóra fulltrúa á samráðsvettvang, tvo kjörna fulltrúa og tvo aðra fulltrúa úr sveitarfélaginu. Sveitarstjórar eru velkomnir á þennan fyrsta samráðsvettvang þ.e.a.s. ef þeir koma ekki sem kjörnir fulltrúar. Sveitarfélögin eru hvött til að gæta að jöfnu kynjahlutfalli.
Frestað til næsta fundar.
11.
Skert framlag úr jöfnunarsjóði
Málsnúmer 201903090
Bókun vegna áforma fjármálaráðherra og ríkisstjórnarinnar um að skerða tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar mótmælir harðlega þeim áformum fjármálaráðherra og ríkisstjórnar að skerða framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um a.m.k. 2,8 milljarða á árunum 2020 og 2021. Skerðingin kemur harðast niður á útgjaldajöfnunarframlögum, en þau renna einkum til sveitarfélaga á landsbyggðinni sem hafa mörg hver veikan fjárhag. Skerðingin kemur einnig niður á framlögum til þjónustu við fatlað fólk og getur falið í sér að dregið verði úr þeirri þjónustu.
Áætlað tekjutap sveitarfélaga á Suðurlandi af framlögum til útgjaldajöfnunar og vegna fasteignaskatts er tæpar 505 millj.kr. og vegna málefna fatlaðra 29 millj.kr. Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks.
Framlög til málefna fatlaðra hafa ekki staðið undir rekstrarkostnaði og bætir þetta ekki stöðu þess málaflokks.
Einhliða ákvörðun ríkisvaldsins af þessu tagi er í andstöðu við það formlega samráðsferli ríkis og sveitarfélaga sem hefur þróast á undanförnum árum og fela áform þessi í sér algeran trúnaðarbrest gagnvart sveitarfélögunum í landinu. Ekki getur með nokkrum hætti talist eðlilegt að áhersla á að bæta afkomu ríkissjóðs skili sér í skerðingum á tekjum sveitarfélaganna, sem standa undir mjög stórum hluta almannaþjónustu í landinu.
Bæjarráð krefst þess að áform um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs verði afturkölluð þegar í stað.

12.
Öryggisúttekt
Málsnúmer 201903087
Skaftárhreppur og Mýrdalshreppur eru að skoða að láta gera öryggisúttekt á vegunum um sveitarfélögin. Sveitarstjórinn í Skaftárhreppi hafði samband til að kanna hug Sveitarfélagsins Hornafjarðar um hvort áhugi sé á þátttöku.
Bæjarstjóra falið að kanna hvort öryggisúttektin sé ýtarlegri en umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins.
13.
Framkvæmd sveitarfélaga á framsali ráðningarvalds
Málsnúmer 201903082
Lagt fram til kynningar.
14.
Forathugun vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd
Málsnúmer 201903080
Erindi frá Útlendingastofnun þar sem kannaður er vilji bæjarstjórnar um að gera þjónustusamning við Útlendingastofnun um alþjóðlega vernd.
Starfsmönnum falið að kanna málið fyrir næsta fund.
15.
Aðalfundur: Lánasjóður sveitarfélaga 2019
Málsnúmer 201903045
Aðalfundur Lánasjóðs íslenskra sveitarfélaga verður haldinn þann 29. mars nk.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri fari sem fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundinn.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa: Jón Ríki Hólmi
Málsnúmer 201902113
Sýslumaður benti á að leyfið er ekki í samræmi við lögreglusamþykkt sveitarfélagsins, þe. opnunartími veitingarstaðarins þar sem sótt var um rekstarleyfi í flokki II.
Bæjarráð er jákvætt fyrir að opnun veitingarstaðarins verði til kl. 01:00 þar sem ekki er truflun af staðnum vegna staðsetningar.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa Söluskáli Freysnesi
Málsnúmer 201805045
Bæjarráð er jákvætt fyrir útgáfu leyfisins.
18.
Reglugerð um húsnæðisáætlun
Málsnúmer 201902007
Bæjarráð felur starfsmönnum að leita eftir tilboðum í gerð húsnæðisáætlunar.