Bæjarráð Hornafjarðar
894. fundur
25. mars 2019
kl.
16:00
-
17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 54
Fundargerðin samþykkt.
2.
Hofgarður: Ráðning skólastjóra
Tveir umsækjendur voru um stöðu skólastjóra Leik- og grunnskólans í Hofgarði: Áslaug Traustadóttir grunnskólakennari og Brynja Kristjánsdóttir Leik- og grunnskólakennari. Fræðslu- og tómstundanefnd mælti með ráðningu Brynju Kristjánsdóttur í stöðuna.
Bæjarráð samþykkir að ráða Brynju Kristjánsdóttur í starf skólastjóra í Hofgaði.
3.
Baðvörður í Mánagarði
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með því að ráða baðvörð í Mánagarð í 50% starf þann tíma dagsins sem fimleikaæfingar standa yfir eða frá ca. 14:00 - 18:00 virka daga. Hlutverk hans væri m.a. að gæta öryggis barna, líta til með umgengni og annast ræstingar. Mælt er með því að ráðið verði í starfið frá 1. sept. 2019.
Bæjarráð samþykkir að auka stöðugildi úr 25% í 50% sem rúmast innan ramma íþróttamiðstöðvarinnar.
4.
Samningar um rekstur HSU Hornafirði 2019
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að samningar um rekstur HSU Hornafirði renna út á þessu ári. Hefja þarf undirbúning að viðræðum um endurnýjun samninganna með erindi til heilbrigðisráðuneytisins.
Bæjarráð leggur á þá áherslu að samið verði um rekstur heilbrigðisþjónustu með sambærilegum hætti og nú er í gildi.
Starfsmönnum falið að undirbúa viðræður við ráðuneytið.
Starfsmönnum falið að undirbúa viðræður við ráðuneytið.
5.
Samningur við Björgunarfélag Hornafjarðar
Bæjarráð samþykkir að heildar styrkur til Björgunarfélagsins verði 3.000.000 kr. á ári næstu fjögur árin. Mismunur frá fjárhagsáætlun verður tekið af óráðstöfuðu.
6.
Öryggisúttekt
Sveitarfélagið Skaftárhreppur óskar eftir samstarfi við öryggisúttekt á þjóðvegi 1 í sýslunum í samstarfi við Mýrdalshrepp.
Bæjarráð samþykkir að fara í umferðaröryggisúttekt í samstarfi við Skaftárhrepp og Mýrdalshrepp. Úttektin kostar frá 250-300 þús kr. sem verður tekið af óráðstöfuðu.
7.
Landsskipulagsstefna - Samráðsvetvangur
Erindi frá Skipulagsstofnun dags. 13. mars þar sem greint er frá að hafin er vinna að Landsskipulagsstefnu 2015-2026. Skipulagsstofnun óskar eftir skráningu tengiliða á samráðsvettvanginn.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um styrk: Hjólabók Skaftafellssýslu
Erindi frá Ómari Smára Kristinssyni dags. 17. mars, þar sem óskað er eftir styrk til útgáfu Hjólabókar um Skaftafellssýslur.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 50 þúsund.
Fjármunirnir verða teknir af óráðstöfuðu.
Fjármunirnir verða teknir af óráðstöfuðu.
9.
Ósk um samstarfssamning við sveitarfélagið
Erindi frá Skotfélagi Austur- Skaftafellsýslu þar sem óskað er eftir að gerður verið samstarfssamningur við Skotfélagið við uppbyggingu á æfingasvæði.
Bæjarráð óskar eftir að fá nánari upplýsingar frá Skotfélaginu um ráðstöfun þeirra fjármuna sem úthlutaðir voru til félagsins í maí 2018.
10.
Loftlagsverkefni Landverndar, sveitarfélagsins og Sambandsins
Bæjarráð óskaði eftir skýringu frá umhverfisráðuneytinu hvers vegna ráðuneytið synjaði Landvernd og sveitarfélaginu um styrk í verkefnið.
Í svari frá ráðuneytinu kemur fram að Landvernd sótti um styrk í verkefnið og bendir á að ráðuneytinu ber ekki skylda til að rökstyðja við þriðja aðila um synjun styrksins.
11.
Fundargerðir: Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðin lögð fram til kynningar.