Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

898. fundur
29. apríl 2019 kl. 16:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Björgvin Óskar Sigurjónsson 1. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 47
Málsnúmer 1904010F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 216
Málsnúmer 1904009F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 55
Málsnúmer 1904007F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
4.
Menningarmálanefnd - 53
Málsnúmer 1904006F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
5.
Atvinnumálanefnd - 48
Málsnúmer 1904008F
Farið yfir fundargerð.
Fundargerð samþykkt.
6.
Lóðaútdráttur Hagaleira 10
Málsnúmer 201904097
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóðar við Hagaleiru 10. Tíu umsóknir bárust. Umsækjendur eru: Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Guðlaugur J. Vilhjálmsson, Auður Jónsdóttir, Elín Freyja Hauksdóttir, Jón Þorsteinsson, Kristinn Þór Guðlaugsson, Jón Birnir Jónsson, Þóra Birna Jónsdóttir, Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir og Aðalheiður Fanney Björnsdóttir.
Páll Róbert Matthíasson dró út lóðarumsækjendur og var Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir dregin út. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni til Ingu Kristínar og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Bifreiðastæði við Mánagarð og Tjaldsvæði Hafnar
Málsnúmer 201904058
Í framhaldi af umræðu á síðasta fundi bæjarráðs. Það vantaði frekari upplýsingar um kostnað vegna lagningar og þess efnis sem þarf að nota við lögnina.
Uppfærð kostnaðaráætlun lögð fram.
8.
Malbikunarframkvæmdir 2019
Málsnúmer 201810018
Farið yfir fyrirhugaðar malbikunarframkvæmdir ársins. Skiplagsstjóra falið að auglýsa komu malbikunarflokks.
9.
Skólaakstur: Útboð 2019
Málsnúmer 201902111
Lagt fram minnisblað fræðslustjóra vegna skólaaksturs.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að útboði skólaaksturs.
10.
Leik-og grunnskólar: Sérfræðiþjónusta
Málsnúmer 201904099
Samningar við sálfræðiþjónustuna Sensus og þjónustu talmeinafræðings renna út í lok júní áþessu ári. Skólafólk hefur mikinn áhuga á því að geta átt samstarf við sálfræðing sem býr ástaðnum svo ekki þurfi að bíða eftir næstu ferð með að vinna í oft áríðandi málum nemenda.
Fræðslustjóra falið að afla tilboða í þjónustu sálfræðings og talmeinafræðings.
11.
FAS: List- og verknámshús
Málsnúmer 201901045
Framhaldsskólann vantar aðstöðu til að hægt sé að sinna listnáms-, matreiðslu- og fjallamennskukennslu svo viðunandi geti talist. Í þarfagreiningu um húsnæðisþörf skólans vegna þessara greina kemur m.a. fram að FAS vill áfram samnýta list- og verkgreinastofur í Vöruhúsi með öðrum en telur brýna þörf á að fá sérhannað húsnæði fyrir sviðslistir og faglega kennslu í matreiðslugreinum. Áætlanir um það húsnæði gera ráð fyrir samnýtingu með t.d. grunnskólanum og leikfélaginu svo eitthvað sé nefnt. Skólann vantar einnig húsnæði undir búnað og kennslu í fjallamennsku. Fræðslu- og tómstundanefnd telur að bætt aðstaða fyrir nám og þróun kennslu í list- og verkgreinum með þeim hætti sem þarfagreiningin leiðir í ljós, sé brýnt samfélagsverkefni. Nefndin hvetur bæjarstjórn til að styðja við skólann um að ná mennta- og menningarmálaráðuneytinu að borðinu til viðræðna um nauðsynlega uppbyggingu á aðstöðu
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð bendir á að mikilvægt er að allir þættir verði skoðaðir svo ekki verði vanmat á framtíðarþörfum.
12.
Skipulag: Skóla-, íþrótta- og útivistarsvæði
Málsnúmer 201806028
Skipulagsforsögn Alta ráðgjafastofu og fundagerðir stýrihóps frá 4. og 8. apríl sl. lagðar fram til umræðu. Fræðslu- og tómstundanefnd styður tillögur og forgangsröðun stýrihópsins.
Lagt fram til kynningar.
13.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots
Málsnúmer 201903067
Á fundi fræðslu- og tómstundanefndar 20. mars var starfsmönnum falið að leita lausna vegna húsnæðisvanda Kátakots vegna aukins fjölda barna í frístund næstu ár og leggja tillögur fyrir nefndina á fundi hennar í apríl.
Starfsmönnum falið að skoða frekari lausnir með það fyrir augum að auka nýtingu á núverandi húsnæði sveitarfélagsins. Slíkar lausnir geta kallað á aukið starfsmannahald.
14.
Rekstrar- og stjórnsýsluúttektir
Málsnúmer 201803021
Auglýst hefur verið eftir mannauðs- og gæðastjóra í kjölfar rekstrar- og stjórnsýsluúttektar.
Bæjarstjóra falið að kalla eftir lokaútgáfu af skýrslu Capacent um rekstrar- og stjórnsýsluúttekt sem bæjarráð hefur unnið með síðan í september 2018. Ein af niðurstöðum úttektarinnar var að auglýsa eftir mannauðs- og gæðastjóra. Umsóknafrestur er nú liðinn og eru umsækjendur um stöðuna 7 talsins. Unnið er úr umsóknum.
15.
Umsókn um styrk: Austfjarðartröllið 2019
Málsnúmer 201904080
Stefnt er á að halda Austfjarðatröllið 2019, keppni sterkustu manna landsins verður dagana 15.-17. ágúst 2019 víðsvegar um austurland. Óskað er eftir styrk til verkefnisins.
Erindinu hafnað.
16.
Nýheimar: rekstur og áætlanir
Málsnúmer 201802104
Ársreikningur Nýheima Þekkingaseturs lagður fram til kynningar.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa:Hótel Skaftafell ehf
Málsnúmer 201904083
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi skv. lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald nr. 85/2007 með síðari breytingum. Sótt er um rekstrarleyfi í flokki II fyrir Hótel Skaftafell vegna veitingasölu í Skaftafelli.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
18.
Aðalfundur Sláturfélagsins Búa svf.2019
Málsnúmer 201904067
Fundarboð á aðalfund Sláturhússins Búa sem haldinn verður þriðjudaginn 30. apríl.
Viðhengi
Fundarboð
19.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 201801057
Lagt fram til kynningar.
20.
Vorþing Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins: Kynning
Málsnúmer 201904062
Lagt fram til kynningar.