Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

899. fundur
6. maí 2019 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson 1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Skipulagsnefnd - 52
Málsnúmer 1904012F
Fundargerð samþykkt.
2.
Minigolf við Ekruna
Málsnúmer 1901025
Erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið komi að gerð Minigolfvallar í samstarfi við félagið.
Fjallað um erindi Félags eldri Hornfirðinga, starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Frestað til næsta fundar.
3.
Öryggisúttekt
Málsnúmer 201903087
Aðgerðarlisti vegna umferðaröryggisúttektar Euro Rap, í Sveitarfélaginu Hornafirði, Skaftárhreppi og Mýrdalshreppi. Hér liggja fyrir gögn frá Ólafi vegna Öryggisúttektar á vegum sýslunnar.
Umræður um umferðaröryggisúttekt á vegum í sveitarfélaginu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
4.
Umferðaröryggisáætlun
Málsnúmer 201709426
Farið var yfir aðgerðaráætlun umferðaröryggisáætlunar og greindi Gunnlaugur frá verkefnastöðu áætlunarinnar.
5.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Málsnúmer 201709224
Fulltrúar samstarfs sveitarfélags Hornfirðinga, Ystad, munu koma í heimsókn á Hornafirði 16.-17. maí næstkomandi.
Bæjarstjóri greindi einnig frá að könnun á vegum verkefnisins verður sett í loftið í kringum 20. maí.
6.
Sameining safna á Suðurlandi
Málsnúmer 201903077
Bæjarstjóri greindi frá fundi sem hún fór á að Skógum vegna sameiningu héraðsskjalasafna á Suðurlandi.
Bæjarstjóri kynnti málið fyrir fundarmönnum.
7.
Djúpavogshreppur: samningur um urðun sorps
Málsnúmer 201709258
Erindi frá Djúpavogshreppi um að lengja samning við sveitarfélagið um urðun sorps frá Djúpavogshreppi fram að áramótum 2019-2020.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samningi við Djúpavogshrepp til 31. desember 2019.
8.
Umsókn um styrk: Íspinninn
Málsnúmer 201905001
Erindi frá Margréti Gauju Magnúsdóttur dags. 10. apríl, þar sem óskað er eftir styrk til listahátíðar sem nefd er "Íspinninn listahátíð fyrir ungt listafólk í Öræfum"
Erindið kynnt og unnið áfram að málinu og verður tekið fyrir á næsta fundi.
9.
Reglur um styrk til húsaleigu fyrir starfsmenn sveitarfélagsins
Málsnúmer 201904032
Bæjarráð fór yfir drög að reglum um styrk til húsaleigu fyrir nýja starfsmenn.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Forathugun vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd
Málsnúmer 201903080
Sveitarfélagið hefur ekki tök á að taka við umsækjendum um alþjóðlega vernd að svo stöddu.
11.
Ungmennaráð 2018-2019
Málsnúmer 201901053
Bæjarráð boðar ungmennaráð á næsta fund bæjarráðs.
12.
Umsögn um frumvarp til laga um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða
Málsnúmer 201904061
Atvinnumálanefnd vísaði málinu til bæjarráðs með áherslu á að vinna að því að skipulagsvaldið verði ekki tekið frekar af sveitarfélaginu í frumvarpsdrögunum.
Bæjarstjóra falið að senda umsögn sveitarfélagsins.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa: Knattspyrnudeild Sindra
Málsnúmer 201904118
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tímabundið tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir Ungmennafélagið Sindra í Sindrabæ.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa: Martölvan/Gamla flugfélagið Hafnarbraut 24
Málsnúmer 201904114
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi til sölu á gistingar í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
15.
Aðalfundur og málþing Háskólafélagsins 2019
Málsnúmer 201905009
Erindi frá Háskólafélagi Suðurlands þar sem greint er frá að aðalfundur Háskólafélagsins og málþing verði þann 9. maí. 2019.
Lagt fram til kynningar.
16.
Ósk um vallarhús við Sindravelli
Málsnúmer 201905011
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
17.
Aðstaða til líkamsræktar
Málsnúmer 201901105
Lagt fram til kynningar og vísað til áframhaldandi vinnu hjá bæjarstjóra.
18.
Svæðisskipulag Suðurhálendisins - Skipan fulltrúa
Málsnúmer 201905012
Erindi frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa í verkefnisstjórn um svæðisskipulag á Suðurlandi.
Fulltrúar sveitarfélagsins verða.
Sigrún Sigurgeirsdóttir, Ásgrímur Ingólfsson og varamaður Páll Róbert Matthíasson.