Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

901. fundur
20. maí 2019 kl. 16:00 - 18:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 308
Málsnúmer 1905007F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 56
Málsnúmer 1905002F
Farið var yfir fundargerðina.
Bæjarráð fagnar því að styrkur hafi fengist til móðurmálskennslu í pólsku frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Áætlað er að kennsla hefjist í haust.
Fundargerð samþykkt.
3.
Borgartún 14: útleiga
Málsnúmer 201905065
Auglýst var eftir leigjendum á íbúð í Borgartúni 14 Öræfum. Þar sem fleiri en einn sækjast eftir leigunni er dregið á milli umsækjenda. Umsækjendur voru þrír. Vatnajökulsþjóðgarður, Tröllaferðir og Boris Dostal.
Erla Þórhallsdóttir dró út.
Vatnajökulþjóðgarður var dregin út og fær íbúðina að Borgartúni 14 til leigu.
Bæjarráð samþykkir að leigja Vatnajökulþjóðgarði íbúðina.
4.
Umferðaröryggisáætlun: Aðgerðir
Málsnúmer 201905018
Gunnlaugur gerði grein fyrir vinnu við aðgerðaráætlun um umferðaröryggisáætlun.
5.
Niðurstöður mælinga á fráveituvatni í Nesjum
Málsnúmer 201905015
Farið yfir gildi úr sýnatökum Haust. Gunnlaugur gerði grein fyrir að kaupa þarf ljósabúnað að tillögu Haust til að bæta starfsemina.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
6.
Ráðning félagsmálastjóra
Málsnúmer 201905066
Matthildur greindi frá umsóknarferli um stöðu félagsmálastjóra.
Fjórir sóttu um stöðuna. Umsækjendur voru:
Erla Björg Sigurðardóttir
Lovísa Ólafsdóttir
Torfey Rós Jónsdóttir
Þórhildur Sæmundsdóttir

Bæjarráð samþykkir að ráða Erlu Björg Sigurðardóttur í stöðu félagsmálastjóra og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Reglur um styrk til húsaleigu fyrir starfsmenn sveitarfélagsins
Málsnúmer 201904032
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við ráðleggingar lögfræðings og endurskoðanda sveitarfélagsins.
8.
Ályktun um refaveiðar - Búnaðarsamband Austur- Skaftafellssýslu
Málsnúmer 201905067
Aðalfundur Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga haldin í Holti þann 13.apríl 2019, skorar á Sveitarfélagið Hornafjörð að endurskoða og yfirfara refaveiðar í Austur Skaftafellssýslu með það að markmiði að grenjaleit og eyðing verði í höndum manna eða kvenna sem stunda hana á þeim tíma sem best þykir og hafa tíma og áhuga til þess. Einnig þarf að endurskoða gjald sem greitt er fyrir refaveiðar sem hefur verið óbreytt í tugi ára.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna og atvinnu- og menningarmálanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar.
9.
Húsnæðisáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201709114
Farið var yfir drög að húsnæðisáætlun sveitarfélagsins. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
10.
Túlka- og þýðingarþjónusta
Málsnúmer 201903075
Bæjarráð samþykkir stefnu og verklagsreglur um túlka- og þýðingaþjónustu og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Stekkaklettur: framtíðarstefna
Málsnúmer 201809041
Leigusamningur lagður fram til umræðu og fram komu ábendingar um innihald samningsins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa: Pakkhús - veitingar ehf
Málsnúmer 201905048
Erindi frá Sýslumanni dags. 15. maí þar sem óskað er eftir umsögn um tímabundið áfengisleyfi vegna sjómannadagskemmtunar.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
13.
Fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2019
Málsnúmer 201903130
Eftirfarandi bókun var samþykkt á 52. stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, sem fram fór í Borgartúni 30 þann 15. maí sl.Stjórn Samtaka sjávarútvegsveitarfélaga telur mikilvægt að unnin verði samantekt á heildaráhrifum loðnubrests 2019 og að niðurstöður hennar verði kynntar á fundi stjórnar þar sem bæjarstjórum þeirra sveitarfélaga sem um ræðir verði boðið einnig. Í framhaldinu muni stjórnin síðan álykta um með hvaða hætti ríkisvaldið gæti/ætti að bregðast við komi slíkar aðstæður upp hvort heldur er varðandi loðnu eða aðra veiðistofna. Formanni og starfsmanni falið að fylgja málinu eftir.Aðdragandi málsins er bókun bæjarráðs sveitarfélagsins Hornafjarðar sjá meðfylgjandi tölvupóst hér að neðan dags. 2. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.