Bæjarráð Hornafjarðar
902. fundur
27. maí 2019
kl.
16:00
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Skólaakstur: Útboð 2019
Ragnhildur gerði grein fyrir útboði fyrir skólaakstur, útboðið verður auglýst á vegum ríkiskaupa.
2.
Fjárhagsáætlun 2019: Viðauki I
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka I við fjárhagsáætlun ársins. Viðbótar fjárheimildum samkvæmt meðfylgjandi skjali verður mætt með lækkun á hanbæru fé og aukinni lántöku.
Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
3.
Loðnukvóti
Bæjarráð óskaði eftir upplýsingum frá fjármálastjóra um hvaða áhrif loðnubrestur hefur á rekstur sveitarfélagsins.
Minnisblað fjármálastjóra lagt fram.
Að mati fjármálstjóra er ekki ástæða til að breyta tekjuáætlun sveitarfélagsins eða hafnarinnar
að svo komnu máli. Grannt verður fylgst með þróun mála og brugðist við síðar ef þurfa þykir.
Að mati fjármálstjóra er ekki ástæða til að breyta tekjuáætlun sveitarfélagsins eða hafnarinnar
að svo komnu máli. Grannt verður fylgst með þróun mála og brugðist við síðar ef þurfa þykir.
4.
Beiðni um endurnýjun á leyfi: Bílastæði fyrir afþreyingarfyrirtæki á Höfn
Erindi frá ferðaþjónustuaðilum þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið heimili þeim að nýta svæði þar sem byggðarsafnið var áður, undir bílastæði fyrir stóra farþegabifreiðar. Skipulagsnefnd gaf leyfi á fundi sínum þann 6. júní 2018, til að leggja á svæðinu til 1. júní 2019.
Bæjarráð samþykkir að veita afþreyingarfyrirtækjum heimild til að nýta bílastæðið til 1. júní 2020, með fyrirvara um að bílastæðið verði ekki nýtt á meðan unglingalandsmótið stendur yfir 29. júlí - 6. ágúst.
5.
Byggingaráform Hafnarbraut 38
Bæjarráð felur skipulagsstjóra að senda lóðarhafa áskorun um að ljúka byggingarleyfisumsókn að öðrum kosti verði lóðarúthlutun afturkölluð.
6.
Hönnun og útboð, fráveita áfangi 3
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 141.321.000 kr.
Eitt tilboð barst frá Rósaberg ehf. upp á 185.871.019 kr. sem er 32% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð hafnar tilboðinu.
Eitt tilboð barst frá Rósaberg ehf. upp á 185.871.019 kr. sem er 32% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð hafnar tilboðinu.
7.
Malbikunarframkvæmdir 2019
Gunnlaugur fór yfir áætluð svæði fyrir malbikun í sumar.
8.
UNICEF: Verklag um ofbeldi og vanrækslu fyrir stofnanir sem starfa með börnum.
Erindi frá UNICEF dags. 22. maí þar sem sveitarfélög eru hvött til að gera verklagsreglur vegna gruns um ofbeldi og vanrækslu fyrir allar stofnanir sem starfa með börnum.
Lagt fram til kynningar og vísað til félagsmálanefndar.
9.
Rammasamningur: Aðild að raforkusamning
Erindi frá Ríkiskaupum þar sem fram kemur að undirbúningur vegna útboða á raforkukaupum. Sambærilegur rammasamningur er nú í gildi fyrir ríkisstofnanir RS Raforka. Að þessu sinni vilja Ríkiskaup bjóða þeim sveitarfélögum sem þess óska og eru aðilar að rammasamningakerfi Ríkiskaupa að taka þátt í útboðinu. Ríkiskaup reikna með því að útboðið verði auglýst í júní og samningur verði kominn á í september 2019
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í útboði á raforkukaupum.
10.
Ingólfshöfði: stjórnunar -og verndaráætlun
Í byrjun maí undirritaði umhverfis- og auðlindaráðherra stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Ingólfshöfða.Stjórnunar- og verndaráætlun er stefnumótandi skjöl, unnin í samvinnu við rétthafa lands, sveitarfélagið og hagsmunaaðila. Stjórnunar- og verndaráætlun er hugsuð sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn og leggja fram stefnu um verndun friðlýstra svæða og hvernig viðhalda skuli verndargildi þeirra til framtíðar.Áætlunin gildir til ársins 2028 og er henni skipt í fjóra kafla. Fyrstu tveir innihalda bakgrunnsupplýsingar um svæðin, í þriðja kafla er að finna stefnumótun og markmið í fjórða kafla er að finna þær sérreglur sem gilda. Aðgerðaáætlun fylgir áætluninni. Að fimm árum liðnum skal meta árangur verndarráðstafana og endurskoða og uppfæra aðgerðaáætlun.
Lagt fram til kynningar og vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
11.
Ósk eftir viðræðum um vatnstankinn á Fiskhól
Á fundi bæjarráðs þann 4. feb. var bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um núverandi stöðu vatnstanksins.
Bæjarstóri greindi frá stöðu mála.
Bæjarráð óskar eftir fundi með aðilum málsins.
Bæjarráð óskar eftir fundi með aðilum málsins.
12.
Grænbók um stefnu í málefnum sveitarfélaga
Grænbók er um stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga hefur verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Þær umræður og ábendingar sem fram koma í tengslum við umræðuskjalið verða nýttar til að fullvinna drög að tillögu til þingsályktunarum stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga.
Bæjarráð fór yfir áherslur sveitarfélagsins um stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga.
Bæjarstjóra falið að senda umsögn sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að senda umsögn sveitarfélagsins.
13.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2019
Lagt fram til kynningar.
14.
Stöðuleyfisumsókn: Sölubás á móts við Gömlubúð - endurnýjun
Ósk um áframhaldandi stöðuleyfi frá Dyngjunni Travel ehf. fyrir kofa/hús á svæði á móts við Gömlubúð, til 30. apríl 2020.
Bæjarráð veitir áframhaldandi stöðuleyfi í eitt ár með skilyrði fyrir að starfsemi verði í húsinu.
15.
Fundargerðir HAUST 2019
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.