Bæjarráð Hornafjarðar
907. fundur
22. júlí 2019
kl.
10:30
-
11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir
staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá
1.
Skólaakstur: Útboð 2019
Tvö tilboð bárust frá 785 FHM og Fallastakki sbr. meðfylgjandi skjal. Fræðslustjóra falið að vinna að samningagerð. Rætt um tilraunaverkefni um frístundaakstur og fræðslustjóra falið að kanna þörfina.
2.
Staða sveitarsjóðs 2019
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs. Sorpmálin eru framyfir áætlun. Fjármálastjóra falið að greina kostnaðinn í málaflokknum. Í heild er reksturinn í jafnvægi.
3.
Skógrækt við Höfn (grænn trefill)
Bæjarráð er jákvætt fyrir verkefninu og felur starfsmönnum að vinna að verkefninu með skógræktarfélaginu.
4.
Breyting lóðarmarka: Stafafellsfjöll 33
Breyting samkvæmt meðfylgjandi skjölum lögð fram til staðfestingar. Stærð lóðar er óbreytt.
Bæjarráð samþykkir breytingu lóðarmarka í samræmi við fyrirliggjandi gögn.*
5.
Umsókn um lóð: Álaugarvegur 12
Vésteinn Fjölnisson og Sigurður Gunnar Jónsson sækja um afnot af lóð við Álaugarveg 12 til geymslu og landtöku svifnökkva auk búnaðar sem tengist starfsemi Icehover.
Bæjarráð heimilar tímabundin afnot af svæðinu til 1. október 2020.
6.
Ensk nöfn á íslenskum stöðum
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur íbúa og ferðaþjónustuaðila til að hafa frumkvæði að því að nota íslensk staðarheiti og örnefni.
7.
Stefna í úrgangsmálum
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
8.
Fundarboð: Landsfundur um jafnréttismál 4.-5. september 2019
Lagt fram til kynningar.
9.
Umsögn: Flugeldasýning á Jökulsárlóni 2019
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn fyrir hönd slökkviliðsstjóra.
10.
Umsögn: Flugeldasýning á mótslitum unglingalandsmóts UMFÍ
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn sem landeigandi og fyrir hönd slökkviliðsstjóra.*
11.
Umsögn um útgáfu leyfa: Bessadýr, Apotek Guesthouse
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
12.
Fundargerðir stjórnar SASS
Lagt fram til kynningar.