Bæjarráð Hornafjarðar
909. fundur
19. ágúst 2019
kl.
16:00
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 2
Fundargerð samþykkt.
2.
Byggingaráform Hafnarbraut 38
Á fundi bæjarráðs 23. nóvember 2015 var Hallmari Hallmarssyni úthlutað byggingarétt á lóðinni Hafnarbraut 38 og var lóðin afturkölluð 8. nóvember 2016 skv. reglum um úthlutun á byggingarétti frá 25. ágúst 2008 þar sem tilgreint er að hefja skal framkvæmdir á lóð eigi síðar en 9 mánuðum eftir að lóðarúthlutun hefur verið samþykkt. Lóðarhafa hefur tvívegis verið veittur frestur til að skila inn fullnægjandi gögnum fyrir byggingarleyfi, skilyrði fyrir útgáfu byggingaleyfis hafa því ekki verið uppfyllt.Fyrir hönd bæjarráðs sendi skipulagsstjóri lóðarhafa áskorun um að hefja framkvæmdir á lóðinni þann 29. maí sl. og veitti lóðarhafa 14 daga frest til að skila inn til byggingafulltrúa fullnægjandi gögnum vegna útgáfu byggingaleyfis.
Bæjarráð samþykkir að afturkalla úthlutun á byggingarétti á lóðinni Hafnarbraut 38.
3.
Lífskjarasamningur 2019-2022
Minnisblað fjármálastjóra með samanburði á vísitöluhækkun á gjaldskrám sveitarfélagsins lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að ekki verði gjaldskrárhækkanir á leikskólagjöldum og lengdri viðveru hjá sveitarfélaginu eins og áætlanir segja til um.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða hvaða áhrif það hefur á fjárhagsáætlun ársins.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða hvaða áhrif það hefur á fjárhagsáætlun ársins.
4.
Kynningarefni sveitarfélagsins
Logo staðlar sveitarfélagsins lagðir fram, tilgangur með þeim er skapa betri ímynd sveitarfélagsins með samræmdum auglýsingum og merkingum. Einnig er sýnt hvernig á að nota Heilsueflandi Samfélag merkið á kynningarefnið.
Lagt fram til kynningar.
5.
Kosning í svæðisráð: Vatnajökulsþjóðgarður
Erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu dags. 15. ágúst þar sem kemur fram að tafir hafa orðið á að senda út tilnefningarbréf fyrir nýtt svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarð. Óskað er eftir að framlengja skipunartíma núverandi svæðisráðs þar til nýtt svæðisráð hefur verið kosið.
Lagt fram til kynningar.
6.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Fyrirspurn barst um laun fyrir fulltrúa í Svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðar.
Starfsmönnum falið að skoða hvernig greitt er fyrir setu í öðrum svæðisráðum.
7.
Ósk um styrk : Hvítur dagur frumsýning
Erindi dags. 10. ágúst frá aðstandendum kvikmyndarinnar Hvítur, hvítur dagur þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið veiti styrk að upphæð 400 þúsund til kaupa á sýningarbúnaði til þess að hægt verði að sýna kvikmyndir í sveitarfélaginu þar sem ekki er til slíkur búnaður.
Bæjarráð hafnar fyrirliggjandi ósk og vísar til styrkveitinga hjá atvinnu- og menningarmálanefnd og hjá sjóðum SASS.
8.
Ósk um styrk vegna malbikunar við hús Björgunarfélags Hornafjarðar
Erindi dags. 15. ágúst frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið komi til móts við björgunarfélagið við malbikunarframkvæmdir á plani við hús björgunarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að koma að malbikun við hús Björgunarfélags Hornafjarðar þar sem kostnaðurinn rúmast innan fjárhagsáætlunar 2019.
9.
Hofgarður: Leikskólastarf
Erindi frá Íbúasamtökum Öræfinga þar sem skorað er á sveitarfélagið að finna lausnir á mönnun leikskólans Lambhaga í Öræfum.
Bæjarráð gefur bæjarstjóra heimild til að gera samning við starfsmenn leikskólans Lambhaga um 50% afslátt af leigu í húsnæði sveitarfélagsins til tveggja ára.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa: Flosi hf, Svínafelli
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 29. júlí þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi fyrir gistingu í flokki II fyrir Flosa hf. kt. 710883-0259.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa: Flatatún ehf, Svínafelli
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi til sölu á gistingu í flokki II gistiskáli fyrir Flatatún kt. 560403-2830.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa: Litlahorn ehf.
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 20. mars þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn um rekstarleyfi til sölu á gistingu í flokki II stærra gistiheimili Horn frá Litlahorni kt. 510872-0299.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
13.
Umsókn um lóð: Borgartún 4
Tröllaferðir sækir um eina lóð við Borgartún 4 í Öræfum.
Bæjarráð samþykkir að veita lóðina til Tröllaferða ehf. og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
14.
Umsókn um lóð Krosseyjarvegur 21-23
Umsókn Jökulfells ehf. um tvær lóðir Krosseyjarveg nr. 21-23.
Bæjarráð óskar eftir að fá forsvarsmenn Jökulfells á fund.