Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

915. fundur
1. október 2019 kl. 14:30 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 5
Málsnúmer 1909015F
Fundargerð samþykkt.
2.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 52
Málsnúmer 1909013F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 220
Málsnúmer 1909011F
Fundargerð samþykkt.
4.
Stofnun rekstrarfélags um þjónustusláturhús, afurðavinnslu og heildsölu
Málsnúmer 201909087
Ósk Sláturfélagsins Búa um að sveitarfélagið taki þátt í stonfun einkahlutaféalgs um rekstur þjónustusláturhúss við bændur, þar sem hægt verði að slátra dýrum frá bændum.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að taka þátt í stofnun Þjónustusláturhúss með hlutafjárþátttöku.
5.
Malbikunarframkvæmdir 2019
Málsnúmer 201810018
Gunnlaugur gerði grein fyrir malbikunarframkvæmdum 2019. Kostnaður vegna framkvæmdanna er samkvæmt áætlun. Bæjarráð lýsir ánægju með framkvæmdina í heild sinni sem gekk mjög vel.
6.
Framkvæmdaáætlun 2019-2020 og 2020-2023
Málsnúmer 201909066
Gunnlaugur fór yfir framkvæmdalista sveitarfélagsins næstkomandi ár.
Umræður um framkvæmdir sveitarfélagsins.
7.
Líkamsræktartæki
Málsnúmer 201909086
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra.
Kaup á nýju bretti vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
8.
Samstarfsverkefni við Pólland
Málsnúmer 201909064
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt er hugmynd að samstarfsverkefni við sveitarfélög í Póllandi á vegum Evrópusambandsins.
Lagt fram til kynningar, bæjarráð felur starfsmanni að fylgjast með verkefninu.
9.
Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024
Málsnúmer 201903055
Erindi frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir umsögn við Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024.
Lagt fram til kynningar.
10.
Svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið
Málsnúmer 201909065
Fundargerðir um svæðaskipulag fyrir suðurland 2020-2032 lagðar fram þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið taki þátt í vinnunni.
Lagt fram til kynningar.
11.
Sameining safna á Suðurlandi
Málsnúmer 201903077
Fundargerð héraðskjalavarða Héraðsskjalasafns Árnesinga, Héraðsskjalasafns Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga, Héraðsskjalasafns Austur-Skaftfellinga og Héraðsskjalasafns Vestmannaeyja frá því 25. september 2019 lögð fram til kynningar. Óskað er eftir að söfnin verði sameinuð.
Fundargerðin lögð fram til kynningar, bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
12.
Umf. Sindri: Samningur 2019
Málsnúmer 201906061
Bæjarráð samþykkir að heildarupphæð styrksins sé 19.5 milljónir.
13.
Ársfundur Jöfnunarsjóðs 2.okt 2019
Málsnúmer 201909077
Erindi dags. 18. september frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem boðað er til ársfundar hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þann 2. október.
Bæjarstjóri verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
14.
Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum - Ársfundur
Málsnúmer 201909084
Erindi frá Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum þar sem boðað er á ársfund 4. október.
Bæjarstjóri verður fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa: Nemendafélag FAS (26.sept)
Málsnúmer 201909067
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna dansleikjar FAS í Sindrabæ.
Bæjarráð hefur nú þegar afgreitt leyfið í gegn um tölvupóst með jákvæðri umsögn.
16.
Umsögn: Breyting á lögum um virðisaukaskatt
Málsnúmer 201909083
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn vegna breytingu á lögum um virðisaukaskatt.
Bæjarstjóra falið að vinna umsögn.
17.
Fundargerð: Aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ 2019
Málsnúmer 201909082
Fundargerðin lögð fram til kynningar.