Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

922. fundur
19. nóvember 2019 kl. 14:30 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 313
Málsnúmer 1911004F
Fundargerð samþykkt.
2.
Reglur um fjárhagsaðstoð- Ákvæði til bráðabrigða
Málsnúmer 201911020
Félagsmálanefnd lagði fram tillögu um ákvæði til bráðbirgða í reglum um fjárhagsaðstoð að tilraunaverkefni verði sett á laggirnar með notendum fjárhagsaðstoðar sveitarfélagsins Hornafjarðar með þátttöku í starfsendurhæfingu, samfélagsþjónustu á vegum Fangelsismálastofnunar ríkisins og/eða annarri virkni. Lagt er til að með samkomulagi um félagslega ráðgjöf fái þátttakendur frádrátt vegna tekna við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Heimilt verði að veita undanþágu vegna atvinnutekna sem nema allt að 50.000 kr. á mánuði. Tilraunatímabilið mun standa frá 1. desember 2019 til 1. júlí 2020.
Bæjarráð samþykkir ofangreinda breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð og munu þær gilda frá 1. desember til 1. júli.
3.
Samningur við Ríki Vatnajökuls - ósk um endurnýjun
Málsnúmer 201910133
Olga og Hólmfríður fóru yfir starfsemi Ríki Vatnajökuls.
Bæjarráð samþykkir að gera samning við Ríki Vatnajökuls til tveggja ára framlagið verði helmingur af framlagi fyrir árið 2019.
4.
Öryggismyndavélar
Málsnúmer 201809071
Oddur Árnason greindi frá gagnsemi öryggismyndavéla hjá sveitarfélögum.
Bæjarstjóra falið að fá uppfærð verð í eitt sett af öryggismyndavélum sem greina númeraplötur.
5.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Tvö tilboð frá verkfræðistofunum ALTA og EFLU bárust í gerð deiliskipulags Miðsvæði Hafnar.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðinu frá EFLU sem er lægra.

6.
Álagningarreglur 2020
Málsnúmer 201910027
Bæjarráð samþykkir að vatnsgjaldið verði lækkað úr 0,18% í 0,15%.
7.
Vatnsveita: Gjaldskrá
Málsnúmer 201911041
Erindi dags. 13. nóvember frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem ráðuneytið áréttar að sveitarfélög er með öllu óheimilt að taka mið af arðsemiskröfu af því fjármagni sem bundið er í rekstri vatnsveitna við ákvörðun á upphæð vatnsgjalds. Sveitarfélögum er óheimilt að greiða sér arð úr rekstri vatnsveitna.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um samstarfsamning
Málsnúmer 201911005
Sæmundur vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar niðurfellingu á húsaleigu, jafnframt hvetur bæjarráð starfsmenn til að auka samstarf við Náttúrustofu Suðausturlands sem greitt er fyrir hverju sinni.
9.
Hitaveita
Málsnúmer 201911049
Um fjórðungur íbúa í þéttbýlinu og allir íbúar í Nesjum þurfa að leggja í nokkra fjárfestingu vegna breytinga á húsnæði sem fylgir því að tengjast hitaveitu.
Starfsmönnum falið að afla frekari gagna varðandi kostnað íbúa við að tengjast hitaveitu þar sem ekki er fjarvarmaveita. Einnig er óskað eftir upplýsingum frá RARIK um áhrif á húshitunarkostnað sveitarfélagsins.
10.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Málinu frestað til næsta fundar.
11.
Reglur um útleigu á húsnæði sveitarfélagsins
Málsnúmer 201910114
Ein breyting er á reglum um útleigu á húsæði sveitarfélagsins sem samþykktar voru 11. febrúar 2016.Breyting á reglunum er vegna ákvæða um leigu á Þrykkjunni.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi breytingu á reglunum.
12.
Matarsmiðja
Málsnúmer 201911050
Matarsmiðjan hefur ekki verið nýtt sem skildi, notendur eru fáir og sveitarfélagið er að greiða 3,4 milljónir með rekstrinum það sem af er árinu.
Lagt fram til kynningar.
13.
Ósk um samstarf vegna hugmyndar um nýja björgunarmiðstöð á Höfn
Málsnúmer 201907037
Þarfagreining um björgunarmiðstöð lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
14.
Bændur græða landið - umsókn um styrk
Málsnúmer 201911048
Erindi frá Landgræðslu ríkisins dags. 11. nóvember þar sem óskað er eftir samstarfi í verkefninu bændur græða landið.
Bæjarráð samþykkir 36 þúsund kr.framlag til verkefnisins.
Tekið af óráðstöfuðu.
15.
Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Málsnúmer 201911054
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
16.
Umsókn um lóð: Víkurbraut 25
Málsnúmer 201911028
Erindi frá Snorra Snorrasyni fyrir hönd óstofnaðs félags þar sem óskað er eftir að úthlutun á lóðinni Víkurbraut 25.Í umsókninni kemur fram að ef bæjarstjórn úthlutar þeim lóðinni verður óskað eftir því skipulagi verði breytt, húsin tengist saman. Þannig fæst betri nýting lóða og meiri fjöldi bílastæða.
Bæjarráð er jákvætt fyrir umsókninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa: Miðsker
Málsnúmer 201911017
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 6 nóvember þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi fyrir gististað í flokki II frá Assa 1969.
Bæjarráð er jákvætt fyrir rekstarleyfinu.
18.
Umsögn um frumvarp til laga um þjóðlendur
Málsnúmer 201911025
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignalanda, þjóðlendna og afrétta 317 mál.
Lagt fram til kynningar.
19.
Umsögn: Frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, 319. mál.
Málsnúmer 201911043
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir um umsögn um frumvarp til laga um húsnæðis- og mannvirkjastofnun 319. mál
Lagt fram til kynningar.
20.
Gjaldskrá og reglur -Gagnaveita
Málsnúmer 201910132
Nýjar gjaldskrá og reglur um gagnaveitu lagðar fram til kynningar.
Vísað til næsta fundar.