Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

924. fundur
3. desember 2019 kl. 14:30 - 15:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 7
Málsnúmer 1911009F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 201909012
Farið yfir fjárhagsáætlun.
3.
Álagningarreglur 2020
Málsnúmer 201910027
Umræður um álagningareglur.
4.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023
Málsnúmer 201910115
Umræður um fjárhagsáætlun til þriggja ára.
5.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
6.
Framkvæmd ljósleiðari á Mýrum og í Nesjum
Málsnúmer 201807037
Farið yfir áætlun um framkvæmd ljósleiðara og samskipti við landeigendur.
Nýjar teikningar um lagningu ljósleiðara með hitaveitu lagðar fram til kynningar.
7.
Kerfisáætlun Landsnet 2020-2029
Málsnúmer 201911089
Erindi frá Landsneti þar sem greint er frá að hafin er vinna við kerfisáætlun 2020-2029 samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003. Samhliða er unnið umhverfismat á umhverfisáhrifum kerfisáætlunar skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 23. desember 2019.
Lagt fram til kynningar.
8.
Stjórnsýslukæra um ákvörðun byggingafulltrúa
Málsnúmer 201910109
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru ákvörðunar byggingarfulltrúa frá 21. október sl. um að fjarlægja eða færa til mannvirki sem stendur á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum lagður fram.
Úrskurðarnefndin telur byggingarfulltrúa hafa virt öll lög og reglur í hvívetna, meðalhófsregluna, andmælaregluna, rannsóknarregluna og jafnræðisregluna.
9.
Áfangastaðastofur
Málsnúmer 201911056
Lagt fram til kynningar.