Bæjarráð Hornafjarðar
925. fundur
10. desember 2019
kl.
14:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Erla Þórhallsdóttir
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 7
Bæjarráð leggur til að 8. liður í fundargerðinni, aðalskipulagsbreyting Seljavellir III verði skoðað betur í ljósi mikilla fjölgunar gistirýma í tillöguni og fari því aftur fyrir nefndina til umræðu.
Fundargerðin samþykkt.
Fundargerðin samþykkt.
2.
Málefni sláturhúss á Höfn
Eiríkur og Hermann fóru yfir rekstur sláturhúss á Höfn.
3.
Staða sorpmála
Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til að hætt verði með gáma í dreifbýli og boðið verði upp á að sveitarfélagið komi á móts við dreifbýlið með því að sveitarfélagið sjái um að flytja gáma að heimilum í dreifbýli, þjónustuþegi greiði skv. gjaldskrá og leigu á gámum. Nýr opnunartímum í Gámaporti, mánudagar 13:00-17:00 þriðjudaga til fimmtudaga frá 15:30-17:30 laugardaga 11:00-15:00. Lokað verði á föstudögum og sunnudögum. Lögð fram drög að breytingu á hirðu sorps og sorpdagatali 2020, þrisvar á ári verði spilliefni tekið í dreifbýli.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi sorphirðudagatal og breytingar á opnunartíma í sorpstöð.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að breytingu á þjónustu við dreifbýlið.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að breytingu á þjónustu við dreifbýlið.
4.
Álagningarreglur 2020
Lögð fram tillaga að lækkun vatnsgjalds úr 0,18% í 0,15%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar. Aðrir álagningarliðir eru óbreyttir að undanskildum sorpgjöldum sem hækka um 14% sbr. fyrri ákvörðun bæjarráðs. Gjaldskrár sorphirðu/eyðingar og söfnunarstöð sorps verða lagðar fram til afgreiðslu bæjarstjórnar 12. desember nk.
5.
Fjárhagsáætlun 2020
Farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið milli umræðna og forgangsröðun framkvæmda.
Fjárhagsáætlun 2020 vísað til afgreiðslu síðari umræðu bæjarstjórnar.
Fjárhagsáætlun 2020 vísað til afgreiðslu síðari umræðu bæjarstjórnar.
6.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023
Vísað til afgreiðslu í síðari umræðu bæjarstjórnar.
7.
Gjaldskrá og reglur -Gagnaveita
Bæjarráð samþykkir að vísa gjaldskrá og reglum Gagnaveitu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Unglingalandsmót 2019
Erindi frá UMFÍ dags. 2. desember þar sem USÚ er þakkað fyrir góða framkvæmd og glæsilega umgjörð og sjálfboðaliðum einnig þakkað fyrir það mikla sjálfboðalliðastarf sem lagt var fram í tengslum við mótioð.
Bæjarráð tekur undir þakkir UMFÍ og þakkar USÚ og sjálfboðaliðum.
9.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Bæjarstjóri greindi frá stöðu mála.
10.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem bent er á breytingu á reglugerðum um mat á umhverfisáhrifum og framkvæmdaleyfi. Vegna breytinganna er æskilegt að sveitarfélagið breyti samþykktum þess þar sem kom viðbót við ákvæði 3. mgr. 4. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum, nt. 3. málsl. greinarinnar er svohljóðandi: Sveitarstjórn skal í samþykkt sveitarfélagsins fela skipulagsnefnd eða öðrum aðila innan stjórnsýslu sveitarfélagsins töku fullnaðarákvörðunar um matsskyldu framkvæmdar þegar sveitarfélagið er sjálft framkvæmdaraðili, sbr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.“
Starfsmönnum falið að vinna að breytingu á samþykkt sveitarfélagsins.
11.
Ránarslóð 6: Kvöð um lóð
Sigurður Jón Skúlasson eigandi og lóðarhafi Ránarslóðar 6 fastanr. F2181135 landnúmer L159907 samþykkir að veita eigendum á Ránarslóð 8 að byggja utan á bílskur sem liggur við og inn á lóð Ránarslóðar 6.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Humarhátíð 2019
Gögn frá Humarhátíðarnefnd lokaskýrslu og ársreikning lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
13.
Hreindýraarður 2019
Erindi Umhverfisstofnunar dagsett 4. desember 2019. Tilkynning um drög að hreindýraarði fyrir árið 2019 á ágangssvæði/jarðir í sveitarfélaginu. Samkvæmt reglugerð liggja drögin frammi til skoðunar 3. til 14. desember í afgreiðslu Ráðhúss. Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum er á þeim tíma sem gögnin liggja frammi og skulu þær berast innan þess frests.
Lagt fram til kynningar.
14.
Umsögn um útgáfu leyfa: Góuhóf
Erindi frá Sýslumanni dags. 26. nóvember 2019 þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu tímabundins áfengisleyfi fyrir Góuhóf í Hofgarði 7. mars.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
15.
Áramótabrenna 2019
Sveitarfélagið óskar eftir leyfi til áramótabrennu 1. janúar.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn við útgáfu leyfis fyrir áramótabrennu.
16.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17.
Umsögn: Frumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.391. mál.
Erindi frá Alþingi dags. 29. nóvember þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga umbreytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendurúthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál.
Bæjarráð tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi frumvarpið.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa: Jólaball FAS
Erindi frá Sýslumanni dags. 26. nóvember 2019 þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu tímabundins tækifærisleyfi fyrir jólaball FAS í Sindrabæ 19. desember.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
19.
Umsögn um útgáfu leyfa: Þorrablót Hafnarbúa
Erindi frá Sýslumanni dags. 27. nóvember 2019 þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu tímabundins áfengisleyfi fyrir Þorrablót á Höfn í Íþróttahúsinu 25. janúar.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.