Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

926. fundur
19. desember 2019 kl. 13:00 - 16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Erla Þórhallsdóttir varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 54
Málsnúmer 1911002F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 222
Málsnúmer 1912003F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 314
Málsnúmer 1912001F
Fundargerðin samþykkt.
4.
Staða sveitarsjóðs 2019
Málsnúmer 201905010
Fjármálastjóri fór yfir stöðu sveitarsjóðs.
Reksturinn er í jafnvægi.
5.
Yfirdráttarheimild
Málsnúmer 201912086
Bæjarstjóri óskar eftir samþykki bæjarráðs til að sækja um yfirdráttarheimild að fjárhæð 30.000.000.- kr. fyrir sveitarfélagið vegna skammtímasveiflna í sjóðsflæði.
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til að óska eftir yfirdráttaheimild í viðskiptabanka sveitarfélagsins.
6.
Vatnsból í Nesjum
Málsnúmer 201910107
Erindi frá landeiganda við vatnsbólið í Nesjum. Við breytingu á aðalskipulagi breyttist skilgreining á verndarsvæði vatnsbólsins.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Áheyrnarfulltrúar fastanefnda 2020
Málsnúmer 201912051
Farið yfir greiðslufyrirkomulag til ungmennaráðs og áheyrnarfulltrúa þeirra í fastanefndum sveitarfélagsins. Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu í samráði við ungmennaráð.
8.
Niðurstaða eftirlits 3.9.19 Urðunarstaður Lóni
Málsnúmer 201911100
Erindi frá Umhverfisstofnun þar sem stofnunin bendir á sjö frávik vegna urðunarstaðar. Starfsmenn hafa svarað stofnuninni og gert grein fyrir úrbótum í samráði við rekstraraðila urðunarstaðarins.
Lagt fram til kynningar.
9.
Ný umferðarlög
Málsnúmer 201912080
Ný umferðarlög taka gildi um áramót.
Bæjarráð vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar og skoðunar á hvort þurfi að breyta umferðaröryggisáætlun.
10.
Almanna- og öryggismál
Málsnúmer 201912087
Sæmundur óskaði eftir umfjöllun um málið vegna atburða síðustu daga tengt óveðri og rafmagnsleysi víða á Norðurlandi.
Almannavarna- og öryggismál í sveitarfélaginu rædd. Gera þarf stöðugreiningu á varaafli í sveitarfélaginu og yfirfara viðbragðsáætlun.
11.
Umsókn um styrk: Karlakóramót 2020
Málsnúmer 201912085
Erindi frá stjórn Karlakórsins Jökuls vegna karlakóramóts sem verður haldið á Höfn vorið 2020.
Sæmundur Helgason vék af fundi undir umræðu í þessum lið.
Gauti Árnason kom á fundinn og kynnti verkefnið. Bæjarráð fagnar framtaki Karlakórsins og vísar erindinu í styrkjaúthlutun sem fram fer í byrjun næsta árs.
12.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Lögð fram tillaga að vinnufyrirkomulagi að stefnumótunarvinnunni sem mun hefjast í janúar 2020.
Bæjarráð samþykkir vinnufyrirkomulagið en óskar eftir að dagsetning á heimsókn ráðgjafa verði færð til.
13.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Umræða um erfiða stöðu Sláturfélagsins Búa og fyrirhugaðan rekstur þjónustusláturhúss. Undanfarið hefur verið í skoðun aðkoma sveitarfélagsins að verkefninu og möguleg kaup á húsnæðinu. Þar sem húsnæðið er óhentugt fyrir starfsemi sveitarfélagsins og lögbundin verkefni þess þá mun sveitarfélagið ekki gera tilboð í eignina.
Bæjarráð hefur samþykkt aðkomu og stuðning við þjónustusláturhús og er tilbúið til áframhaldandi viðræðna á þeim grunni.
14.
Umsókn um lóð: Ósland lóð J
Málsnúmer 201904026
Umsókn Góðrar framkvæmdar ehf. Goðatúni 20 Garðabæ um lóð að Óslandi nr. J.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
15.
Umsókn um lóð: Ósland lóð G
Málsnúmer 201904028
Umsókn Góðrar framkvæmdar ehf. Goðatúni 20 Garðabæ um lóð að Óslandi nr. G.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
16.
Umsókn um lóð: Ósland lóð H
Málsnúmer 201904027
Umsókn Góðrar framkvæmdar ehf. Goðatúni 20 Garðabæ um lóð að Óslandi nr. H.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
17.
Umsókn um lóð: Ránarslóð 3 lóð B1 og B2
Málsnúmer 201912032
Sótt er um lóð B1 og B2 f.h. Þingvangs sem er núverandi eigandi að lóð og fasteign að Ránarslóð 3, Höfn í Hornafriði. Um er að ræða lóðirnar B1 og B2 í samræmi við samþykkt deiliskipulag sem unnið var af Útbæ.
Bæjarráð mælir með úthlutun lóðanna og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.
18.
Umsögn um rekstrarleyfi frá Nýpugörðum ehf
Málsnúmer 201910089
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 17. október þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar um rekstrarleyfi að Rauðabergi II til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
19.
Umsögn um útgáfu leyfa: Höfn Inn Guesthouse
Málsnúmer 201910035
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 9. október þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar um rekstrarleyfi frá Ránarslóð ehf. til sölu gistingar í flokki II hótel.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
20.
Fundargerðir HAUST 2019
Málsnúmer 201904007
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Frumvarpsdrög: Fjarskiptalög
Málsnúmer 201912059
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drögin, eigi síðar en 6. janúar 2020.
Lagt fram til kynningar.
22.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 201801057
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
23.
Daggæsla barna í heimahúsi: umsókn um leyfi
Málsnúmer 201910036
Óskað er styrks til að hefja rekstur daggæslu í heimahúsi.
Bæjarráð samþykkir styrk að fjárhæð 103.000 kr. sem tekið verði af óráðstöfuðu.
24.
Umsögn: Flugeldasýning um áramót og á þrettánda
Málsnúmer 201912056
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn og heimilar að haldin verði flugeldasýning á landi sveitarfélagsins.
25.
Reglur um foreldragreiðslur
Málsnúmer 201901033
Málinu vísað frá Fræðslu- og tómstundanefnd.
Bæjarráð samþykkir reglur um foreldragreiðslur til lok árs 2020.
26.
Grunnskóli Hornafjarðar: Ósk um aukafjárveitingu
Málsnúmer 201912069
Málinu vísað frá Fræðslu- og tómstundanefnd.
Bæjarráð gefur heimild fyrir því að auglýst verði heilt stöðugildi í stoðþjónustu skólans. Fjármálastjóra falið að uppfæra launaáætlun grunnskólans og undirbúa viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2020 þar sem fram kemur hvaða áhrif ákvörðunin hefur og hvernig auknum fjárútlátum verði mætt.