Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

927. fundur
7. janúar 2020 kl. 14:30 - 15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Björgvin Óskar Sigurjónsson 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 62
Málsnúmer 1911012F
Fundargerð samþykkt.
2.
Verklagsreglur um ofbeldi gagnvart börnum
Málsnúmer 201812046
Verklagsreglur Sveitarfélagsins Hornafjarðarum viðbrögð við ofbeldi gagnvart börnum í stofnunum þess.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
3.
Viðverustefna
Málsnúmer 201912088
Uppfærð viðverustefna lögð fram til samþykktar
Bæjarráð samþykkir breytingar á viðverustefnunni og felur forstöðumönnum að kynna hana fyrir starfsfólki.
4.
Byggðarkvóti fyrir fiskveiðiárið 2019/2020
Málsnúmer 201910136
Sótt var um byggðarkvóta fyrir næsta fiskveiðiár. Nú er úthlutun lokið.
Starfsmönnum falið að skoða reglur um úthlutun innan sveitarfélagsins.
5.
Hornafjarðarflugvöllur: Breidd flugbrautar
Málsnúmer 201912095
Á árinu 2020 stendur til að endurnýja ljósabúnað á Hornafjarðarflugvelli. Það mun leiða af sér minnkun á breidd flugbrautar til að uppfylla Evrópustaðla.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
6.
Tilnefning í svæðisráð Vatnajökulsþjóðgarð
Málsnúmer 201910050
Lagt fram til kynningar.
7.
Samningar um rekstur HSU Hornafirði 2019
Málsnúmer 201903107
Fundur var haldinn í samráðsnefnd um gerð samninga um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði mánudaginn 6. janúar 2020.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
8.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2019
Málsnúmer 201901146
Fundargerðin lögð fram til kynningar.