Bæjarráð Hornafjarðar
929. fundur
21. janúar 2020
kl.
14:30
-
16:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 315
Fundargerð samþykkt.
2.
Samningur um tölvuþjónustu
Samningur við Þekkingu ehf rennur út í sumar. Í samningnum er framlengingarákvæði til eins árs.
Bæjarráð óskar eftir úttekt frá fjármálastjóra um hvernig samningurinn hefur gengið fjárhagslega.
3.
Ósk um að endurnýja samning við UST
Erindi frá HAUST dags. 14. janúar þar sem tilkynnt er að Samningur milli Heilbrigðisnefndar og Umhverfisstofnunar um framsal eftirlitsverkefna með sorpurðunarstöðum og fiskimjölsverskmiðjum rann út um áramót. HAUST bendir á að það er tilbúið að halda áfram sýnatökum í samræmi við ákvæði í starfsleyfum í samstarfi við starfsmenn sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.
4.
Endurmat viðlagatrygginga 2020
Erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands (NTÍ) dags. 14. janúar þar sem upplýst er hvaða mannvirki er skylt að vátryggja hjá NTÍ.
Lagt fram til kynningar.
5.
Verklagsreglur vegna ofbeldis eða óviðeigandi framkomu starfsmanna gagnvart börnum
Verklagsreglur um viðbrögð stjórnenda/starfsmanna ef um óviðeigandi framkomu starfsmanna gagnvart börnum, lagðar fram.
Vísað til umsagna í fræðslu- og tómstundanefnd, heilbrigðis- og öldrunarnefnd og félagsmálanefnd.
6.
Hitaveita
Rarik mun senda út bréf til íbúa sem ekki eru tengdir fjarvarmaveitu á næstu dögum. Íbúar þurfa að tilkynna um þátttöku fyrir 1. mars næstkomandi.
Bæjarstjóra falið að gera verðkönnun á tengigrindum og lagnaefni vegna fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda.
Markmið með verðkönnuninni er að sveitarfélagið fái hagkvæm verð sem bæjarbúar munu geta gengið inn í.
Markmið með verðkönnuninni er að sveitarfélagið fái hagkvæm verð sem bæjarbúar munu geta gengið inn í.
7.
Íþróttahús: rakastýring
Kostnaðaráætlun vegna endurnýjunar á rakastýringartækjum fyrir Íþróttahúsið á Höfn lögð fram.
Fjármálastjóra falið að skoða áhrif verkefnisins á rekstur sveitarfélagsins.
8.
Endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í sveitarfélaginu
Erindi frá Umhverfisstofnun um endurvinnsluhlutfall lagt fram. Fram kemur í erindinu að skráning á úrgangi getur verið vandkvæðum háð og getur reynst erfitt að rekja úrganginn og vonast stofnunin að skráningin verði nákvæmari með tímanum þegar reynsla er komin á fyrirkomulagið. Í þessum úrgangstölum er allur úrgangur sem fer á urðunarstað.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
9.
Almanna- og öryggismál
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsögn um frumvarp: Drög að frumvarpi um Þjóðgarðastofnun og þjóðgarða
Umsögn bæjarráðs vegna frumvarps um Þjóðgarðsstofnun og þjóðgarða lögð fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögnina.
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögnina.
11.
Umsögn um frumvarp: Drög að frumvarpi til laga um hálendisþjóðgarð
Umsögn bæjarráðs vegna frumvarps um hálendisþjóðgarð lögð fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögnina.
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögnina.
12.
Byggðarkvóti fyrir fiskveiðiárið 2019/2020
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu og upplýsa bæjarráð áður en erindið er sent til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.