Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

932. fundur
11. febrúar 2020 kl. 14:30 - 17:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 9
Málsnúmer 2001015F
Fundargerð samþykkt.
2.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201805104
Árni Helgason sat fundinn í síma og svaraði fyrirspurnum varðandi málsmeðferð og spurningar sem vöknuðu við umfjöllun á síðasta bæjarráðsfundi.
Björgvin vék af fundi undir þessum lið.
Ásgrímur Ingólfsson sat fundinn undir þessum lið.
3.
Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn
Málsnúmer 201809084
Bæjarstjóri tók á móti undirskriftalista frá íbúum í innbænum þar sem óskað er eftir fundi með bæjarstjórn.
Sæmundur ítrekar bókun minnihluta skipulagsnefndar sem leggur til að málið fari í íbúakosningu, þar sem það er af þeirri stærðargráðu miðað við fjölda undirskrifta.
Forsvarsmönnum undirskriftarlista verður boðinn fundur með bæjarstjórn nk. fimmtudag.


4.
Hrollaugsstaðir: framkvæmdir
Málsnúmer 202002022
Bæjarráð leggur til að unnið verði að breytingu á skólahúsnæði að Hrollaugsstöðum og felur umsjónarmanni fasteigna að vinna að skipulagi á húsnæðinu.
5.
Vatnsból í Nesjum
Málsnúmer 201910107
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála.
6.
Sameining og slit hlutafélaga sveitarfélagsins
Málsnúmer 201502090
Lagt til að sveitarfélagið afsali eignarhlut sínum í Brennu-Flosa hf. til Sinnu ehf. sbr. framlagða yfirlýsingu. Meðfylgjandi er ársreikningur Brennu-Flosa hf. fyrir 2018 til upplýsinga.
Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið afsalar sér eign sinni í Brennuflosa.
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 202002017
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka I við fjárhagsáætlun 2020. Viðauka er mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka I.
Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
8.
Samningur um tölvuþjónustu
Málsnúmer 201709145
Bæjarráð samþykkir að framlengja samningi um tölvuþjónustu um eitt ár.
9.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
10.
Humarhátíð 2020
Málsnúmer 202002006
Humarhátíðarnefnd frá 2019 er áhugasöm um aðkomu að Humarhátíð 2020.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
11.
Ósk um að endurnýja samning við UST
Málsnúmer 201911066
Framhaldsmál eftir að málið var tekið fyrir hjá bæjarráði 21.1.2020. Bæjarstjóra var falið að kanna málið frekar við afgreiðslu síðasta fundar.
Bæjarráð harmar þá ákvörðun Umhverfisstofnunar að taka verkefni af Heilbrigðiseftirliti Austurlands og þar með draga úr tekjumöguleikum þess. Mikilvægt er að standa vörð um þau verkefni sem hægt er að sinna í heimabyggð en eftirlit með urðunarstað er dæmi um slíkt verkefni og öll þekking er til staðar til að sinna því. Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar hvetur Umhverfisstofnun til að breyta ákvörðun sinni og eftirláta HAUST eftirlit með urðunarstöðum á Austurlandi líkt og undanfarin ár. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að semja við HAUST um sýnatökur á urðunarstaðnum í Lóni.
12.
Breyting í stjórn Gagnaveitu Hornafjarðar
Málsnúmer 202002024
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri verður í stjórn Gagnaveitu Hornafjarðar í stað Björns Inga Jónssonar.
Ólöf Ingunn Björnsdóttir verður varamaður í stað Ástu Guðmundsdóttur.
13.
Efnahagsþróun á norðurslóðum
Málsnúmer 202002009
Erindi frá Utanríkisráðuneytinu dags. 31. janúar 2020 þar sem óskað er eftir greinargerð frá sveitarfélaginu um, mat á helstu tækifærum fyrir íslenskst atvinnu- og efnahagslíf á norðurslóðum, sem og þeim áskorunum sem bregðast þarf við. Hvort það sé mikilvægt að grípa til sérstakra aðgerða til að tryggja efnahagslega og atvinnutengda hagsmuni á norðurslóðum.
Lagt fram til kynningar.
14.
Umsögn: Millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 67.mál
Málsnúmer 202001108
Erindi frá Alþingi dags. 30. janúar 2020 þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um millilandaflugvöll um Hornafjarðarflugvöll 67, mál.
Bæjarráð fagnar því að þingsályktunartillagan er lögð fram og hvetur Alþingi til þess að samþykkja að farið verði í þessa vinnu. Bæjarráð tekur undir með flutningsmönnum tillögunnar að mikilvægt sé að á Hornafjarðarflugvelli sé nægjanlegur búnaður og aðstaða til að hægt sé að sinna þaðan millilandaflugi með minni farþegaflugvélum og vélum í ferjuflugi til að treysta enn frekar atvinnulíf í Hornafirði og nágrenni og stuðla að frekar uppbyggingu og vexti Vatnajökulsþjóðgarðs.
15.
Umsögn: Heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 64. mál.
Málsnúmer 202001109
Erindi frá Alþingi dags. 30. janúar þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld 64, mál.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202002010
Fundargerðin lögð fram til kynnningar.
17.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202002002
Fundargerðin lögð fram til kynnningar.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa: Árshátíð FAS
Málsnúmer 202002016
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi dags. 30. janúar, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um tækifærisleyfi í Sindrabæ fyrir árshátíð FAS.
Bæjarráð er jákvætt fyrir útgáfu leyfisins.
19.
Umsókn um lóð: Ósland lóð J
Málsnúmer 201904026
Málið fékk umfjöllun í desember, nú er umsóknin um tvær lóðir J og K í samræmi við vilja bæjarráðs. Framkvæmdaaðilinn var sáttur við þessa útfærslu.Umsókn Góðrar framkvæmdar ehf. Goðatúni 20 Garðabæ um lóð að Óslandi nr. J.
Bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutun lóðarinnar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
20.
Umsókn um lóð: Ósland lóð K
Málsnúmer 202002027
Umsókn Góðrar framkvæmdar ehf. Goðatúni 20 Garðabæ um lóð að Óslandi nr. K.
Bæjarráð er jákvætt fyrir úthlutun lóðarinnar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
21.
Umsókn um lóð: Hagaleira 1
Málsnúmer 202001104
Umsókn Einars Jóhanns Sigurjónssonar um lóð að Hagaleiru 1 lögð fram.
Bæjarráð er jákvætt fyrir umsókninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.