Bæjarráð Hornafjarðar
933. fundur
18. febrúar 2020
kl.
14:30
-
16:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 316
Bæjarráð vísar endurskoðun á jafnréttisáætlun til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 64
Fundargerð samþykkt.
3.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að Sveitarfélagið Hornafjörður sæki um aðild að verkefninu. Nefndin telur mikinn ávinning af því hvað varðar lærdómstækifæri þeirra sem taka þátt í innleiðingunni, til að virkja enn betur samráð við börn og tryggja að tekið sé tillit til hagsmuna barna í allri ákvarðanatöku hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð er jákvætt fyrir að taka þátt í Barnvænu sveitarfélagi með innleiðingu Barnasáttmála SÞ.
Óskar eftir að verkefnið verði kostnaðarmetið og í hvaða farveg í stjórnsýslunni það fari.
Óskar eftir að verkefnið verði kostnaðarmetið og í hvaða farveg í stjórnsýslunni það fari.
4.
Stýrihópur um heilsueflandi samfélag: Erindisbréf.
Sveitarfélagið Hornafjörður er aðili að Heilsueflandi samfélagi og leik- grunn- ogframhaldsskóli eru allir heilsueflandi skólar.Í stýrihóp eiga sæti fulltrúar leik- grunn- og framhaldsskóla, fulltrúi HSU,félagsþjónustu, Ungmennaráð, Umf. Sindra, foreldrafélags grunnskólans, félags eldriHornfirðinga
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og leggur til að stýrihópurinn beri heitið lýðheilsuráð. Hópurinn sem unnið hefur að forvarnarmálum verður hluti af lýðheilsuráði.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Seinkun skólabyrjunar
Bæjarráð fylgist með umræðu um málið.
6.
Verklagsreglur vegna ofbeldis eða óviðeigandi framkomu starfsmanna gagnvart börnum
Reglunum var vísað til viðeigandi nefnda sveitarfélagsins sem gerðu ekki athugasemd við þær.
Verklagsreglum vegna ofbeldis eða óviðeigandi framkomu starfsmanna gagnvart börnum vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Aðalskipulagsbreyting: Þétting byggðar á Höfn
Fulltrúar undiskriftalista mættu á fund bæjarstjórnar fimmtudaginn 13. febrúar í framhaldinu var samþykkt að fresta málinu.
Starfsmönnum falið að taka saman upplýsingar um áherslur og athugasemdir undirskriftalistans.
8.
Hönnun: Víkurbraut 24 húsnæði málefna fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
9.
Veðurofsi 14. febrúar 2020
Bæjarstjóri fór yfir aðgerðir sveitarfélagsins, Björgunarfélagsins og RARIK þegar veðurstofan gaf út rauða veðurviðvörun föstudaginn 14. febrúar.
Bæjarstjóra falið að kanna kostnað vegna varaafls fyrir Skjólgarð.
Bæjarstjóra falið að kanna kostnað vegna varaafls fyrir Skjólgarð.
10.
Almanna- og öryggismál
Erindi frá SASS þar sem farið er yfir viðbragðsáætlun sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
11.
Deiliskipulag Útbæ Höfn
Minnisblað byggingafulltrúa lagt fram, þar sem hann greinir frá að götuheiti vantar í deiliskipulag útbæ.
Umræðum bæjarráðs vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
12.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa: Kúttmagakvöld
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna tímabundið áfengisleyfi þann 28.-29. mars fyrir kúttmagakvöld Lionsklubbs Hornafjarðar í Sindrabæ.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
14.
Umsögn um frumvarp: Breytinga á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga.
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögn.
15.
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna.
Lagt fram til kynningar.