Bæjarráð Hornafjarðar
934. fundur
25. febrúar 2020
kl.
14:30
-
15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarason
Dagskrá
1.
Ábending um Graðaloft
Erindi frá Ragnheiði Hrafnkelsdóttur vegna fyrirhugaðs niðurrifs á Graðalofti þar sem hún bendir á að það samræmist ekki gildandi skipulagi nema liggi fyrir útgefið byggingarleyfi fyrir endurbyggingu Graðalofts eða lengingu Miklagarðs.
Bæjarráð þakkar fyrir ábendinguna en bendir á að þegar að húsið er farið verði lóðin laus til úthlutunar og skal uppbygging verða í samræmi við gildandi deiliskipulag. Ekki þarf að liggja fyrir byggingaleyfi samhliða niðurrifi hússins.
Niðurrif Graðalofts hefur verið tilkynnt til Minjastofnunar sem gerir ekki athugasemd við niðurrif hússins.
Niðurrif Graðalofts hefur verið tilkynnt til Minjastofnunar sem gerir ekki athugasemd við niðurrif hússins.
2.
Sjórnsýsluskoðun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2019
Lagt fram til kynningar.
3.
Umsókn um lóðir D, E og F í Útbæ á Höfn
Lóðin er í innköllunarferli þar sem framkvæmdir eru ekki hafnar ennþá. Lóðarhafinn óskar eftir frest.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. júní 2020.
4.
Sameining og slit hlutafélaga sveitarfélagsins
Heiti málsins á við um hin ýmsu félög sem sveitarfélagið hefur verið átt hlut í eða stofnað. Félagið Jöklasetur er til en félagið hefur ekki verið með starfsemi í mörg ár. Taka þarf ákvörðun um hvort leggja eigi félagið niður.
Bæjarráð samþykkir að leggja niður félagið Jöklasetur ses. og felur starfsmönnum að ganga frá málinu.
5.
Eftirlit með fjármálum og fjármálastjórn
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu dags. 10. febrúar 2020.
Fjármálastjóra falið að gera drög að svari og leggja fyrir bæjarráð.
6.
Stöðuleyfisumsókn: Bílaplan við Skaftafell: Afgreiðsluhús
Umsókn Arctic Adventures hf. þar sem sótt er um stöðuleyfi fyrir nýtt afgreiðsluhúsnæði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki í staðinn fyrir húsnæði sem var fyrir á staðnum en eyðilagðist í bruna nýlega.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs suðursvæði.
7.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðin lögð fram til kynningar
8.
Umsögn um Vatnaáætlun fyrir Ísland
Vísað til umfjöllunar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
9.
Fundargerðir HAUST 2020
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Varðandi lið 6.1 er bæjarstjóra falið að senda HAUST áherslur sveitarfélagsins varðandi skipun stjórnar HAUST.
Varðandi lið 6.1 er bæjarstjóra falið að senda HAUST áherslur sveitarfélagsins varðandi skipun stjórnar HAUST.
10.
Umsókn um lóð: Miðós 12
Umsókn Mikael ehf. um lóð að Miðósi 12.
Bæjarráð er jákvætt fyrir lóðarúthlutunni og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.