Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

936. fundur
10. mars 2020 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 56
Málsnúmer 2002009F
Umræður um rekstarstöðu HSU á Hornafirði, áætlað er að rekstrartap verði 41 milljón á árinu 2019.
Bæjarráð óskar eftir minnisblaði frá starfsmönnum með helstu þáttum rekstarstöðunnar.
Fundargerðin samþykkt.
2.
Almannavarnanefnd - 61
Málsnúmer 2003002F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Viðbragðsáætlun vegna COVID 19 sveitarfélagsins er í vinnslu.
Umræður um fyrirhugaða árshátíð sveitarfélagsis 20. mars nk. bæjarráð ákveður að árshátíðinni verði frestað fram á haust.
4.
Graðaloftið: ósk um samstarf
Málsnúmer 202003011
Erindi frá Hlyni Pálmasyni þar sem hann óskar eftir að fá Graðaloftið til afhendingar.
Bæjarráð hafnar erindinu.
Húsið er dæmt ónýtt og hætta stafar af því eins og það er.
Undirbúningur fyrir niðurrif er í gangi hjá starfsmönnum.

5.
Umsókn um styrk
Málsnúmer 202003012
Erindi dags. 3. mars 2020 frá Lionsklúbbi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir styrk til áhaldakaupa í Þorgeirslundi.
Styrkúthlutun er lokið fyrir árið 2020. Bæjarráð bendir umsækjanda á að opið er fyrir styrkumsóknir í nóvember nk. fyrir árið 2021.
6.
Umsókn um styrk: Útgáfustyrkur
Málsnúmer 202003019
Umsókn um útgáfustyrk frá Bjarna Einarssyni vegna útgáfu á bók um Bæ í Öræfasveit. Þekkt stærð að útgáfan sjálf mun kosta um 4 milljónir og það er sótt um styrk á fleiri stöðum. Hugmynd að upphæð frá Bjarna er 500 þús.
Styrkúthlutun er lokið fyrir árið 2020. Bæjarráð bendir umsækjanda á að opið er fyrir styrkumsóknir í nóvember nk. fyrir árið 2021.
7.
Starfshópur um endurskoðun reglna um úthlutun byggðarkvóta
Málsnúmer 201908054
Sveitarfélagið Hornafjörður óskaði eftir fresti til að skila inn athugasemdum vegna skýrslu starfshóps um endurskoðun á meðferð og ráðstöfun 5,3% aflaheimilda til 16. mars næstkomandi.
Bæjarstjóra falið að vinna umsögn.
8.
Uppbygging innviða 2020
Málsnúmer 202003020
Samráð um uppbyggingu innviða ríkisstjórnarinnar er opið á samradsgatt.is frá 28. febrúar 2020 til 31. mars 2020
Lagt fram til kynningar.
9.
Loðnukvóti
Málsnúmer 201903010
Sameiginleg yfirlýsing sveitarfélaganna, Fjarðabyggðar, Vestmannaeyja, Hornafjarðar, Vopnafjarðar og Langanesbyggðar vegna ástands og umhald um loðnuveiðar.
Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
10.
Ósk um umsögn tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar
Málsnúmer 202003005
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 311. mál.
Bæjarráð leggur áherslu á að flugvöllurinn verði í Vatnsmýrinni svo lengi sem sambærilegur eða betri kostur finnst ekki.
Viðhengi
311. mál.pdf
11.
Landskipti: Skálafell 2
Málsnúmer 202003004
Bæjarráð vísar landskiptunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Landskipti:Holtsendi
Málsnúmer 202002067
Bæjarráð vísar landskiptunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202002010
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202001081
Fundargerðin lögð fram til kynningar.