Bæjarráð Hornafjarðar
939. fundur
31. mars 2020
kl.
14:30
-
16:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 65
Fundargerðin samþykkt.
2.
Sóttvarnir: COVID-2019
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu og starfsemi stofnanna og skerðingu á þjónustu sveitarfélagsins.
Ragnhildur gerði grein fyrir minnisblaði um niðurfellingu gjalda vegna þjónustuskerðingar í leik- og grunnskólum. Bæjarráð samþykkir að ekki verði rukkað fyrir ónýtta þjónustu. Reikningar fyrir apríl og maí, þar til samkomubanni verður aflétt verða sendir í lok mánaðar en ekki fyrirfram eins og verið hefur.
Bæjarráð þakkar starfsfólki sveitarfélagsins sem er búið að vera í framlínu vegna Covid-19 faraldursins fyrir þeirra framlag.

3.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Bæjarstjóri fór yfir þær aðgerðir/framkvæmdir sem eru í vinnslu hjá sveitarfélaginu í tengslum við efnahagsleg áhrif faraldursins. Starfsmönnum falið að hefja greiningarvinnu fyrir aðgerðir sveitarfélagsins.
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi vinnu í bæjarstjórn.
4.
Umsóknir vegna gjalda tengt Covid-19
Lagt fram til kynningar umsóknir sem komnar eru inn og eru í vinnslu hjá starfsmönnum.
5.
Göngustígur milli húsa nr. 23 og 25 í Hlíðartúni
Erindi dags. 26. mars frá Önnu Kristínu Hauksdóttur þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið lagi grindverk við göngustíg við Hlíðartún 23 og 25.
Starfsmanni falið að svara erindinu skv. samþykkt um þátttöku Sveitarfélagsins Hornafjarðar í kostnaði við uppsetningu girðinga á móti lóðarhöfum í þéttbýli.
6.
Umsókn um styrk: til kaupa á GPS/GSM sendi á helsingja 2020
Erindi dags. 20. mars frá Náttúrustofu Suðausturlands þar sem óskað er eftir styrk til kaupa á GPS/GSM til að setja á helsingja.
Í ljósi þess að Sveitarfélagið er með aðkomu að rekstri Náttúrustofu Suðausturlands samþykkir bæjarráð kaup á einum sendi að upphæð 266.322 kr.
Tekið af óráðstöfuðu.
Tekið af óráðstöfuðu.
7.
Styrktarsjóður EBÍ 2020
Erindi dags. 16. mars frá Styrktarsjóði EBÍ Eignarhaldsfélag Brunabótafélags Íslands. Bent er á að umsóknarfrestur í sjóðinn er í lok apríl.
Lagt fram til kynningar.
8.
Niðurgreiðsla vegna daggæslugjalda
Tillaga að niðurgreiðslu vegna daggæslu barna í heimahúsum lögð fram. Miðað er við að greiðslur verði mismunandi eftir hjúskaparstöðu.
Sambúðarfólk/gift fái 65.000 kr. á mánuði og einhleypir fái 85.000 kr.
Kostnaðarauki sveitarfélagsins verður 3.391.250 á árinu 2020 að meðtaldri 1.210.940 hækkun sem kemur til vegna aukinnar aðsóknar í daggæslu.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til vinnu við gerð viðauka.

9.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu og henni falið að vinna áfram að málinu. Það liggur fyrir að á morgun 1. apríl flytjast starfsmenn heilsugæslunnar og sjúkraflutninga til HSU. Í dag er því þeirra síðasti dagur í vinnu fyrir sveitarfélagið. Sveitarfélagið hefur rekið þjónustuna með farsælum hætti í 24 ár og er því sárt að skilja við starfsemina. Bæjarráð þakkar fyrir það góða samstarf undanfarinna ára og óskar þess að yfirfærsla til HSU gangi eins vel fyrir sig og hægt er. Megi samstarf milli aðila verða eins og best er á kosið.