Bæjarráð Hornafjarðar
941. fundur
14. apríl 2020
kl.
14:30
-
16:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Ársreikningur sveitarfélagsins 2019
Sigurjón Arnarson fulltrúi endurskoðanda sveitarfélagsins frá KPMG fór yfir ársreikning 2019 og drög að skýrslu endurskoðenda.
Bæjarráð samþykkir ársreikning 2019 og vísar honum til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
2.
Sóttvarnir: COVID-2019
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.
Engin ný smit hafa greinst í Sveitarfélaginu Hornafirði, bæjarráð bendir íbúum á að fara áfram eftir ábendingum sóttvarnarlæknis.
Engin ný smit hafa greinst í Sveitarfélaginu Hornafirði, bæjarráð bendir íbúum á að fara áfram eftir ábendingum sóttvarnarlæknis.
3.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Bæjarráð samþykkir að fella niður húsaleigu fyrir Sporthöllina í apríl og maí meðan að samkomubann sem kemur í veg fyrir hefðbundna starfsemi er í gildi.
Bæjarstjóra er falið að kalla eftir upplýsingum frá forstöðumönnum um möguleg verkefni/sumarstörf sem hægt er að fara í ef atvinnuástand kallar á. Bæjarráð óskar eftir upplýsingum frá atvinnu- og ferðamálafulltrúa um fjölda atvinnuleitenda á næsta fundi bæjarráðs.

4.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og vinnu við gerð samningsins.
5.
Staða sorpmála
Farið var yfir magntölur sorps til urðunar á árinu 2019, urðað efni var 2.566 tonn og magnið minnkað um 849 tonn á milli ára.
Kynntar breytingar á þjónustu við heimili í dreifbýli.
Kynntar breytingar á þjónustu við heimili í dreifbýli.
6.
Samstarf MMH og menningarmiðstöðvar Paskov
Erindi frá EVRIS Foundation þar sem leitað er til Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Nýheima um samstarf um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í bænum Paskov í Tékklandi í gegn um uppbyggingarsjóð EFTA.
Bæjarráð samþykkir að Menningarmiðstöðin taki þátt í samstarfinu. Áætlanir gera ráð fyrir að styrkir dekki kostnað við verkefnið.
7.
Hitaveita
Borist hafa tilboð frá Húsasmiðjunni, Danfoss og BYKO. Hagstæðustu tilboð komu frá Húsasmiðjunni.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og ganga að tilboði við lægst bjóðanda.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og ganga að tilboði við lægst bjóðanda.
8.
Hrollaugsstaðir: framkvæmdir
Bæjarstjóri fór yfir hugmyndir að breytingu á nýtingu á heimavist og skólabyggingu að Hrollaugsstöðum.
Umræður um að sækja um stofnframlag hjá HMS, frestur til að sækja um er til 15. apríl.
Bæjarstjóra falið að óska eftir fresti til að skila inn umsókn.
Umræður um að sækja um stofnframlag hjá HMS, frestur til að sækja um er til 15. apríl.
Bæjarstjóra falið að óska eftir fresti til að skila inn umsókn.
9.
Götulýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Stefnt er að því að sveitarfélagið taki yfir götulýsingu í sveitarfélaginu af RARIK.
Starfsmönnum falið að skoða tímasetningu yfirfærslu og áhrif á fjárhagsáætlun 2020.
10.
Brúarstæði yfir Fellsá
Stjórn Suðursveitar ehf. skorar á bæjastjórn að álykta um legu þjóðvegar 1 um land Reynivalla í Suðursveit.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu.
Vísað til bæjarstjórnar.
Vísað til bæjarstjórnar.
11.
Ósk um breytingu á lóðarhafa
Erindi frá Aron Franklín Jónssyni þar sem hann óskar eftir að breyta lóðarhafa á lóð nr. 6 við Borgartún.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Tilnefning hamingjuráðherra: Hamingjulestin
Verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags verður hamingjuráðherra sveitarfélagsins.