Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

942. fundur
21. apríl 2020 kl. 14:30 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 318
Málsnúmer 2003008F
Matthildur vék af fundi undir þessum lið.
Umræður um Skipurit 2020, starfsmanni falið að vinna að frekari greiningu á skipuriti fyrir velferðarsvið.
Fundargerð samþykkt.
2.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Humarhátíð mun ekki fara fram árið 2020.
3.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Minnisblöð starfsmanna sveitarfélagsins lögð fram um störf sem sveitarfélagið getur boðið upp á í sumar. Atvinnuleitendur eru 90 í sveitarfélaginu af þeim falla 21 einstaklingur undir reglur um ráðningastyrk sem felur í sér greiðslur frá Vinnumálastofnun.Einnig er erindi frá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands um styrk til að ráða verkefnastjóra í rannsóknarverkefni sem sækja á um hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna. Fundargerð frá sunnlenskum samráðsfundi sem haldin var síðastliðinn föstudag með öllum sveitarfélögum á Suðurlandi og nokkrum þingmönnum lögð fram.Bæjarstjóri fór yfir ýmsar hugmyndir um kynningarmál sveitarfélagsins.
Starfsmönnum falið að auglýsa eftir umsóknum í tímabundin störf með það að leiðarljósi að kanna hver þörfin á vinnumarkaði er.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að skilgreiningu verkefna.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í umsókn Rannsóknarseturs Háskóla Íslands í Nýsköpunarsjóð námsmanna.
4.
Fyrirspurn: Frágangur á gangstígum á Álaleiru
Málsnúmer 202004050
Erindi frá Kristján Erni Ebenesarsyni dags. 15. apríl þar sem hann óskar eftir upplýsingum um hvort eigi að ganga frá göngustíg á Álaleiru og hvort ganga eigi frá snúningsplani við Hagaleiru.
Vísað til vinnu umhverfis- og skipulagssviðs.
5.
Kvörtun: Gjaldskrá sveitarfélagsins
Málsnúmer 202004034
Erindi frá Elínu Freyju Hauksdóttur dags. 13. apríl þar sem hún gerir athugsemd við gjaldskrá byggingafulltrúa.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
6.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Málsnúmer 201907087
Drög að samningi við HSU um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði lögð fram.
Bæjarstjóra falið að ganga frá samningnum.
7.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201709281
Bæjarráð samþykkir að vísa fjallskilasamþykktinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Bæjarstjóri fór yfir vinnuskjal vegna stefnumótunarvinnu.
Lagt fram til kynningar.
9.
Götulýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201903086
Bæjarráð samþykkir að ganga að samningnum, bæjarstjóra falið að ganga frá samningnum.
Kostnaðurinn rúmast innan ramma.
10.
Útboð Vöruhús endurbætur 2020 4. áfangi
Málsnúmer 202004002
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 77.784.655 kr.
Eitt tilboð barst frá Þingavað ehf. 102.300.067 kr. sem er 32% yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð frestar ákvörðun og starfsmanni falið að ræða við tilboðsgjafa.
11.
Hrollaugsstaðir: framkvæmdir
Málsnúmer 202002022
Bæjarstjóra var falið að óska eftir fresti til að skila inn umsókn.Frestur fékkst hjá HMS varðandi stofnframlag.
Lagt fram til upplýsinga.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
12.
Börn í vistun 2020
Málsnúmer 202002091
Félagsmálanefnd vísaði málinu til bæjarráðs varðandi fyrirspurn um aðgerðir vegna Covid 19.
Umsækjendum er ráðlagt að senda bæjarráði erindi ef upp koma tilfelli sem þarf að leysa vegna Covid-19.