Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

943. fundur
28. apríl 2020 kl. 14:30 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 66
Málsnúmer 2003016F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 67
Málsnúmer 2004007F
Umræður um seinkun skólabyrjunar, starfsmanni falið að senda skoðanakönnun um málið til foreldra.
Fundargerðin samþykkt.
3.
Samningur við Ríki Vatnajökuls - ósk um endurnýjun
Málsnúmer 201910133
Olga og Hólmfríður gerðu grein fyrir sviðsmyndum fyrir rekstur Ríki Vatnajökuls vegma áhrifa Covid-19.

Bæjarstjóra og atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að vinna áfram að málinu og vera í sambandi við hluthafa Ríki Vatnajökuls.
4.
Útboð Vöruhús endurbætur 2020 4. áfangi
Málsnúmer 202004002
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið, Björgvin tók við fundarstjórn. Ásgrímur Ingjólfsson sat fundinn undir þessum lið.
Frestað til næsta fundar.
5.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Bæjarstjóri greindi frá að enginn er smitaður í sveitarfélaginu og 2 eru í sóttkví til 4. maí. Unnið er að útfærslu á starfsemi sveitarfélagsins vegna tilslakana þann 4. maí.
6.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Auglýsing um tímabundin störf fyrir framhalds- og háskólanema er í vinnslu og verður birt í vikunni.
Bæjarstjóri greindi frá öðrum verkefnum sem eru í gangi.
7.
Menntun fyrir alla: Forsendur við úthlutun fjármagns
Málsnúmer 202004017
Vísað til fræðslu- og tómstundanefndar.
8.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Málsnúmer 201907087
Bæjarstjóri greindi frá vinnu við gerð samnings um heilbrigðisþjónustu á Hornafirði.
9.
Starfsmannamál 2020
Málsnúmer 202004069
Matthildur vék af fundi undir þessum lið.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
10.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202003084
Atvinnu- og menningarmálnefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði fyrir störf ritnefndar og leggur áherslu á hve mikilvægt heimildarrit Skaftfellingur er fyrir íbúa og komandi kynslóðir.
Bæjarráð samþykkir að ritnefnd Skaftfellings fái greitt samkvæmt 8. gr. samþykkta um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Samkvæmt samþykktinni skal leggja skipunarbréf fyrir bæjarráð til samþykktar og skal það innihalda meðal annars tilgang og markmið með stofnun starfshóps/vinnuhóps ásamt kostnaðar og tímaáætlun sem hópnum er ætlað til að skila niðurstöðu. Starfsmönnum falið að ganga frá skipunarbréfi og kostnaðaráætlun.
11.
Ósk um stuðning við breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Málsnúmer 202004064
Erindi frá Landssambandi smábátaeigenda og Hrollaugi smábátafélagi Hornafjarðar dags. 20. apríl, þar sem óskað er eftir stuðningi við ósk félaganna um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið. Sjávarútvegurinn er einn af grunnstoðum í atvinnulífi sveitarfélagsins og því mikilvægt að hlutdeild sveitarfélagsins sé hagstæð við úthlutun kvóta. Sveitarfélagið hvetur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að taka tillit til allra útvegsflokka á þessum óvissu tímum, tilslakanir hljóta að vera eitt af því sem vert er að skoða svo landsmenn njóti sem mests arðs af auðlindinni.
12.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202002002
Fundargerðin lögð fram til kynningar.