Bæjarráð Hornafjarðar
944. fundur
5. maí 2020
kl.
14:30
-
17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 58
Fundargerðin samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 226
Hafnarstjóri gerði grein fyrir fundargerðinni.
Fundargerðin samþykkt.
Fundargerðin samþykkt.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 14
Bæjarráð fagnar frumkvæði ferðaþjónustuaðila þar sem farið er bjóða upp á fjölbreytta ferðapakka innan sveitarfélagsins.
Fundargerðin samþykkt.
Fundargerðin samþykkt.
4.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Alls eru nú 99 aðilar skráðir atvinnulausir í Sveitarfélaginu Hornafirði en auk þeirra eru á 410 manns skráðir í hlutabótaleiðina. Ljóst er að ferðaþjónustan mun eiga undir högg að sækja lengur en vonir stóðu til í upphafi Covid-19 faraldursins.
Bæjarráð fór yfir þau verkefni sem eru farin af stað og eru í undirbúningi.
5.
Útboð Vöruhús endurbætur 2020 4. áfangi
Ásgerður vék af fundi undir þessum dagskrárlið, Björgvin Sigurjónsson tók við fundarstjórn.Ásgrímur Ingólfsson sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Eftir yfirferð umsjónarmanns fasteigna er tilboðið 20% yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að ganga til samninga við tilboðsgjafa.
Undirverktaki hefur óskað eftir að fá upplýsingar um tilboð Þingavaðs sem snýr að hans verki.
Bæjarráð felur starfsmanni að vinna áfram að málinu í samráði við báða verktaka.
Undirverktaki hefur óskað eftir að fá upplýsingar um tilboð Þingavaðs sem snýr að hans verki.
Bæjarráð felur starfsmanni að vinna áfram að málinu í samráði við báða verktaka.
6.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Sveitarfélagið bauð fyrirtækjum sem urðu fyrir áföllum vegna Covid-19 að fresta greiðslum á fasteignagjöldum, 15 fyrirtæki hafa óskað eftir að fresti greiðslum á fasteignagjöldum.
Ólöf greindi frá stöðu fjármála í sveitarfélaginu.
7.
Sóttvarnir: COVID-2019
Erfitt er að segja til um hverjar takmarkanir á samkomum verða 17. júní nk. þar sem næstu skref verða byggð á árangri þeirra tilslakana sem tóku gildi í 4. maí. Ef vel gengur má gera ráð fyrir því að 100 manns geti komið saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum og tveggja metra reglan verður áfram í gildi.
Breytingu á þjónusta sveitarfélagsins frá og með 4. maí sjá umfjöllun á síðu sveitarfélagsins https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn/thjonusta-sveitarfelagsins-fra-og-med-4.-mai.
Bæjarráð mun færa fundi sína aftur í Ráðhúsið frá og með næsta fundi þann 12. maí nk. en tala áfram á móti gestum í gegn um fjarfundarbúnað til að byrja með.
Bæjarráð mun færa fundi sína aftur í Ráðhúsið frá og með næsta fundi þann 12. maí nk. en tala áfram á móti gestum í gegn um fjarfundarbúnað til að byrja með.
8.
Framkvæmdaleyfi - Varnargarður út í Einholtskletta
Eftirfarandi tilboð bárust í verkið: Kostnaðaráætlun hönnuða hljóðaði upp á 198.764.980 kr. JG vélar ehf. 178.639.850 kr. - 90 % eða 10% undir kostnaðaráætlun. Ístak ehf. 298.986.850 kr. - 150 % eða 50% yfir kostnaðaráætlun.Hafnarstjórn leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, JG vélar ehf.
Bæjarráð samþykkir tilboð frá JG vélum.
9.
Brunavarnir og gámabyggðir í Öræfum
Erindi dags. 20. apríl frá Íbúasamtökum Öræfinga þar sem skorað er á sveitarfélagið að taka fastar á brunavörnum, leyfisveitingum og endurnýjun leyfa fyrir tímabundnar byggðir í sveitarfélaginu.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
10.
Lækkun á greiðslum frá jöfnunarsjóði til sveitarfélaga
Erindi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem greint er frá að sjóðurinn mun lækka áætlaðar mánaðargreiðslur til sveitarfélaga vegna útgjaldajöfnunarframlaga og framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti um 12,5%.
Lagt fram til kynningar.
11.
Starfsmannamál 2020
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
12.
Skipurit 2020
Erla gerði grein fyrir tillögum að breytingu á skipuriti félagsmálasviðs.
Erla gerði ítarlega grein fyrir stöðu félagsþjónustunnar og verkefnum hennar sem eru að aukast.
Erla gerði ítarlega grein fyrir stöðu félagsþjónustunnar og verkefnum hennar sem eru að aukast.
13.
Málefni sláturhúss á Höfn
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála hjá sláturhúsinu.
Umræður um framtíð og húsnæði sláturhúss á Höfn.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
14.
Samningur um rekstur heilbrigðisþjónustu á Hornafirði
Samningur um heilbrigðisþjónustu milli Sveitarfélagsins Hornafjarðar og HSU lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
15.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Fundargerð og kynningarglærur vegna áhrifa Covid-19 á fjármál sveitarfélaganna, lagt fram til kynningar.
Fundargerðin með gögnum er aðgengileg á vef Sambandsins á https://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/DisplayMeeting.aspx?id=2004008F
Fundargerðin með gögnum er aðgengileg á vef Sambandsins á https://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/DisplayMeeting.aspx?id=2004008F
16.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðin lögð fram til kynningar.